Fréttablaðið - 12.07.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Þriðjudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Hreingerning
12. júlí 2011
160. tölublað 11. árgangur
HREINGERNINGÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Þrif, hreinsiefni, húsráð, þvottur.
ISS Ísland er stærsta eignaumsýslufyrirtæki í heimi með um 530.000 starfsmenn í 52 löndum, þar af 800 á íslandi.
Þ etta er nokkuð sem margir vita ekki af og halda að ISS sé bara ræstingafyrirtæki,“ segir Ívar Harðarson, sviðsstjóri fasteignaumsjónar, en ISS hjálp-ar fyrirtækjum að losna við áreiti og umstang sem fylgir því að reka fasteign og að halda henni í ásætt-anlegu ásigkomulagi. Hugmyndin á bak við þessa þjónustu er meðal annars sú að stjórnendur og eig-endur geti betur einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi.
„Segjum að þú eigir Kringl-una eða einhverja aðra húseign. Þá gætum við hjá ISS séð um alla fjármálastjórnun, fjárstýringu, greiðslur og innborgun fyrir húsið, allt bókhald fyrir húseignina, inn-heimtu á leigugjöldum og aðra fjármálastjórnun. Sjálfur getur þú svo bara verið í golfi á meðan við sjáum um fjárhagsáætlanir, rekstr-aráætlun og samskipti við endur-skoðendur,“ segir Ívar og telur upp lítið eitt af þeirri þjónustu sem ISS býður upp á. Hann útskýrir að ekk-ert sé ISS óviðkomandi í fasteigna-umsýslunni, allt frá því að laga hurð til þess að jafna ágreining við leigjendur og nágranna, og að sjá um að halda lóð umhverfis hús snyrtilegri sem og bílastæðum.
ISS sér ekki aðeins um ver-aldlegar eignir fyrirtækja heldur býður fyrirtækið líka upp á stoð-þjónustu en í henni felst meðal annars símavarsla, móttaka, ljós-ritun, póstumsjón og umsjón fundarherbergja. Svo má ekki gleyma veitingasviðinu: „Hvort sem þú þarft að láta sjá um mötu-neyti starfsmanna, kaff istof-una eða umsjón með fundum og öðrum viðburðum þá búum við til lausn sem er sérsniðin. Við seljum núna yfir 2.000 matarskammta á dag sem er ekkert smotterí,“ segir Ívar en maturinn er keyrður út þó að einnig sé hægt að fá kokk til að elda á staðnum ef aðstæður eru fyrir hendi.
ISS býður lík
varðandi móttökur, fundi, boð og veislur þar sem fagfólk á snær-um ISS annast umsjón og fram-kvæmd.
„Svo geta fyrirtæki valið þessa þjónustuþætti, hvað viltu að við tökum að okkur?“ segir Ívar og minnist svo á að ISS Ísland hafi náð þeim árangri að vera fyrir-myndarfyrirtæki VR árið 2011. „Það er í sjötta skipti sem fyrir-tæk inu hlot nast sá heiður. Fyrirmyndarfyrirtækið er valið eftir ánægju starfsmanna. En það sem starfsmenn okkar gera í stuttu máli er að sjá um eignir frá A til Ö, alveg sama hvort það er á fast-eignasviði, veitingasviði, ræstingsviði ð í
Sjá um allt frá A til Ö
Eitt af því sem ISS býður upp á er að keyra út ávaxtakörfur til fyrirtækja og starfsmanna þeirra. Ávextirnir eru holl-ari orkugjafi þegar sykurþörf hellist yfir fólk í vinnunni. Með ávaxtakörfunum frá ISS gefst starfsmönnum kostur á heilbrigðari millimálamat sem er betur til þess fallinn að hjálpa þeim að viðhalda skerpu og athygli. Innihald ávaxtakarfanna er b
ÁVEXTIR Í
SAMKEPPNI VIÐ NAMMIÐ
Ein af ástæðum þess að ISS Ís-land kemur vel út í mælingum VR á ánægju starfsmanna er sú að fyrirtækið gerir sér grein fyrir því að hrós er mikilvægt. Reglulega er gerð könnun á meðal viðskiptavina ISS og í leiðinni er athugað hvað þeir eru ánægðir með. Þegar við á er hrósinu komið til skila. En þetta segir á heimasíðu ISS: „Okkur Íslendingum er ekki gjarnt að hrósa og við eigum oft erfitt með að taka við hrósi. Í hrósi er hins vegar fólgin við-urkenning á að vel sé gert og í því felst lærdómsferli.“
HRÓSIÐ KÆTIR OG EYKUR GÆÐI
Nokkrir starfsmenn ISS Ísland fyrir utan höfuðstöðvarnar í Austurhrauni 7 í Garðabæ.
MYND/VILHELM
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Sarah Neufeld úr hljómsveitinni Arcade Fire kemur með jógakennaranum Ryan Leier til Íslands í ágúst.
Kennir jóga við undi leik
fiðluleik A d i
Sölustaðir:10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
teg LUCY - mjög fallegur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 8.350,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
N Ý K O M I N N – S U M A R L E G U R
Guðný Aradóttir er ein af stofnfélögum styrktarfélags-ins Göngum saman, sem hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini, ætlar að ganga á Esjuna á háum hælum klukkan 17 í dag. Hún safnar áheitum og vekur athygli á árlegri fjáröflunargöngu félagsins hinn 4. september.
Algjört
súkkulæði!
FÓLK Sara Naufeld úr kanadísku
hljómsveitinni Arcade Fire er
væntanleg til Íslands í ágúst.
Naufeld mun leika undir hjá
Vestur-Íslendingnum Ryan Leier
sem verður gestakennari jóga-
stöðvarinnar Yoga Shala í ágúst,
en Naufeld þykir auk þess góður
jógakennari.
Leier segir allt eins líklegt að
fleiri hljómsveitarmeðlimir sláist
í för með þeim til Íslands. „Ég
verð með Arcade Fire í Stokk-
hólmi og Danmörku 26. og 27.
ágúst og veit að hljómsveitin á
frí fyrir það. Það er því aldrei
að vita nema þau skelli sér til
Íslands.“ - sg / allt í miðju blaðsins
Sara Naufeld til landsins:
Fiðluleikari
Arcade Fire í
jóga á Íslandi
LEIKUR UNDIR Í JÓGA Naufeld er fiðlu-
leikari hljómsveitarinnar Arcade Fire.
Hefur aldrei klikkað
Hafnargönguhópurinnn
fagnar tuttugu ára afmæli.
tímamót 16
Innblástur frá Gunnari á Hlíðarenda
Mjölnir býður upp á æfingar þar sem
Gunnar á Hlíðarenda og Grettir sterki
koma við sögu.
allt 3
Kevin Smith til Íslands
Hollywood-leikstjórinn
Kevin Smith í Hörpunni
í nóvember.
fólk 30
BJART N- OG A-TIL Í dag verður
bjart á N- og A-landi en hálfskýjað
og einhver væta V-til. Fremur
hægur vindur en 8-13 m/s SV-
lands. Hiti 10-18 stig.
VEÐUR 4
12
12
15
17
10
UTANRÍKISMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra gerði
Angelu Merkel, kanslara Þýska-
lands, grein fyrir sérstöðu Íslend-
inga í sjávarútvegs- og landbún-
aðarmálum á fundi í Þýskalandi
í gær.
Leiðtogarnir ræddu sérlausn-
ir í þessum málum fyrir Íslend-
inga gagnvart Evrópusamband-
inu. Jóhanna segir takmarkanir
á fjárfestingum í sjávarútvegi
verða erfiðasta málið í aðildar-
viðræðunum.
„Við fórum yfir áherslur
Íslands vegna aðildarumsókn-
ar okkar og ég gerði grein fyrir
þeim málum sem yrðu erfið, land-
búnaði og sjávarútvegi, og kom
sérstaklega inn á fjárfestingar
í sjávarútvegi. Ég vildi tryggja
að hún yrði inni í okkar málum
og skildi að við þyrftum þar sér-
lausnir.“
Jóhanna segir Merkel hafa
gert sér grein fyrir að þetta yrðu
erfiðustu málin og að niðurstað-
an í þeim gæti ráðið úrslitum
varðandi afstöðu þjóðarinnar til
aðildarumsóknar þegar að þjóð-
aratkvæðagreiðslu kæmi. Merkel
hélt fram sjónarmiðum Evrópu-
sambandsins í þessum efnum
en sýndi sérstöðu Íslendinga þó
skilning, að sögn forsætisráð-
herrans.
„Ég geri mér grein fyrir því
eftir þetta samtal að fjárfesting-
ar í sjávarútvegi verða erfiðasti
þátturinn. Ég hef minni áhyggjur
af öðrum málum. Þó að vissulega
verði erfiðleikar í landbúnaðar- og
sjávarútvegsmálum almennt verð-
ur þetta okkur erfiðast. Merkel
sýndi sjónarmiðum Íslendinga
skilning og þeirri stöðu sem við
erum í varðandi staðbundna fiski-
stofna og efnahagslögsögu.“
Hömlur eru á fjárfestingum
útlendinga í sjávarútvegi og mega
þeir aðeins eiga 49 prósent fyrir-
tækja í greininni með óbeinni aðild.
Kanslarinn lauk lofsorði á skjót-
an efnahagsbata Íslendinga og var
Merkel áhugasöm um íslenskar
efnahagsstærðir. - kóp
Erlend fjárfesting í
sjávarútvegi erfiðust
Jóhanna Sigurðardóttir ræddi sérlausnir í landbúnaði og sjávarútvegi í viðræð-
unum við Evrópusambandið við Þýskalandskanslara. Segist ekki óttast niður-
stöðuna í málaflokkunum en fjárfestingar í sjávarútvegi verði erfiðastar.
VÍSINDI Ekki hefur verið hægt að
nýta TF-SIF, flugvél Landhelgis-
gæslunnar, við rannsóknir í Kötlu
eða Heklu þar sem vélin hefur
verið að sinna verkefnum fyrir
landamærastofnun Evrópusam-
bandsins í Miðjarðarhafi. Vélin
verður þar til loka september.
TF-SIF er útbúin ratsjá og hita-
myndavél sem getur nýst vel til
að meta stærð sigkatla og þar
með stærð mögulegra hlaupa. Þá
gerir ratsjá vélarinnar jarðvís-
indamönnum kleift að glöggva sig
á aðstæðum jafnvel þótt skyggni
sé afleitt, eins og sannaðist í
eldgosunum í fyrra.
„Ef eldgos hefði náð að bræða sig
upp í gegnum jökulinn og mynda
katla þá hefði verið auðveldara að
greina katlana og nýjar sprungur
miklu fyrr úr flugvélinni,“ segir
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlis-
fræðingur hjá Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands.
TF-SIF er ekki eina farartæki
Landhelgisgæslunnar sem er við
störf við Miðjarðarhafið því varð-
skipin Týr og Ægir eru þar líka. Þá
fer þyrlan TF-LÍF til Noregs til við-
halds eftir áramót og verður þar í
tvo til þrjá mánuði. - sh / sjá síðu 4
TF-SIF nýtist ekki til rannsókna á jarðhræringum og jökulhlaupum undanfarið:
Tæki Gæslunnar upptekin ytra
KJARAMÁL Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna felldi í gær kjarasamn-
inginn sem gerður var 30. júní
síðastliðinn. Mjótt var á munum,
þar sem 51 prósent félagsmanna
hafnaði samningnum en 49 pró-
sent samþykktu. Einungis þrjú
atkvæði báru á milli.
Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
framhaldið. Meðan á samninga-
viðræðum stóð í síðasta mánuði
neituðu flugmenn að vinna yfir-
vinnu og hlaust af því töluverð
röskun á flugi Icelandair. - jse
Atvinnuflugmenn ósáttir:
Felldu kjara-
samninginn
farartæki Landhelgis-
gæslunnar, tvö skip
og ein flugvél, eru að
störfum við Miðjarðarhaf.
3
STAÐIÐ UPP Í STAFNI Norska seglskútan Staatsrad Lehmkuhl lét úr Reykjavíkurhöfn í gær en
eins og sjá má er það ekki heiglum hent að hífa upp seglin á þessu risafleyi. Hjarta þessa sæfara, sem þarna
prílar, er greinilega ekki sem fóarn úr fugli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Valur missteig sig
Valsmenn máttu þakka
fyrir stig og Fram er enn án
sigurs í Pepsi-deildinni.
sport 26
Ég vildi tryggja
að hún yrði inni í
okkar málum og skildi að við
þyrftum þar sérlausnir.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA