Fréttablaðið - 12.07.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.07.2011, Blaðsíða 38
12. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR30 Á GRILLIÐ Í SUMAR „Kjúklingabringur í tandoori- marineringu eru uppáhalds á grillið. Annars reyni ég að grilla fisk tvisvar í viku því það er dásamlega gott og hollt.“ Þorbjörg Marínósdóttir, kynningarfulltrúi og rithöfundur. Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Breski leikstjórinn Ridley Scott hefur fengið leyfi til sprenginga frá 5. júlí til 1. ágúst við Dóma- dalsleið samkvæmt fundargerð hreppsnefndar Rangárþings ytra. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að aðeins verði sprengt þrjá daga innan þess tímaramma. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru sprengingarnar ekki stórar heldur eru einungis hugsaðar sjón- rænt fyrir tökuvélarnar. Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti hreppsnefndarinnar í Rangárþingi ytra, staðfesti að sveitarfélagið hefði gefið kvikmyndagerðar- fólkinu leyfi til að athafna sig við Dómadalsleið. „Þeir eru þarna í gosefnunum frá Heklu.“ Hún sagði sveitarfélagið ekki fá neitt fyrir sinn snúð annað en góða kynningu. Þá styrki nærvera þeirra þjónustu- aðila á svæðinu. Hún bætir því við að íbúar í Rangárþingi kippi sér lítið upp við nærveru leikstjór- ans Scotts og annarra Hollywood- stjarna sem væntanlegar eru aust- ur. „Nei, ætli þeir geri sér nokkuð grein fyrir umfanginu, menn eru líka að gera mynd og vilja örugg- lega ekkert vera að vekja of mikla athygli á sér.“ Flugbjörgunarsveitin á Hellu sér um gæslu fyrir Ridley Scott. Svanur Sævar Lárusson, formaður sveitarinnar, staðfesti það í sam- tali við Fréttablaðið. Hann vísaði að öðru leyti á starfsfólk fram- leiðslufyrirtækisins True North sem hefur veg og vanda af komu tökuliðsins til Íslands. True North er búið að stofna fyrirtækið KOP til að halda utan um framleiðsl- una hér á landi en það er gert með vísan í lög um tímabundna endur- greiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins gista Hollywood-stjörn- urnar á Hótel Rangá meðan á GUÐFINNA KARLSDÓTTIR: KIPPA SÉR EKKERT UPP VIÐ HOLLYWOOD Ridley Scott og félagar sprengja í Rangárþingi ytra tökum við Dómadalsleið stendur. Friðrik Pálsson, staðarhaldari þar, vildi ekkert tjá sig við Fréttablað- ið heldur vísaði öllum spurningum yfir til True North. Á vefsíðu hót- elsins kemur fram að gestum bjóð- ist viðamikill lúxus, eitthvað sem Óskarsverðlaunaleikkonan Char- lize Theron hlýtur að gera kröfu til en eins og kom fram í Frétta- blaðinu í gær eru Noomi Rapace og Michael Fassbender einnig meðal leikara sem dvelja hér á landi. freyrgigja@frettabladid.is SPRENGINGAR Ridley Scott ætlar að sprengja í þrjá daga við Dómadalsleið en leyfi fyrir slíku var veitt í hreppsnefnd Rangárþings ytra. Stjörnur kvikmyndarinnar munu gista á Hótel Rangá, en meðal þeirra sem hingað koma er Óskars- verðlaunaleikkonan Charlize Theron. „Ég er búinn að vera aðdáandi lengi,“ segir Guðlaugur Hannesson sem skipuleggur sýningu með Hollywood- leikstjóranum Kevin Smith í Hörpunni í nóvember. Þar verður leikstjórinn, sem er þekktastur fyrir myndirnar Clerks, Chasing Amy og Dogma, með uppi- stand og svarar spurningum áhorfenda úr salnum. „Ég fékk samband við umboðsmanninn hans árið 2008 en þá kom þetta blessaða hrun. Ég er búinn að vera í stöðugum samskiptum síðan þá,“ segir Guðlaugur sem var að vonum ánægður þegar samningar tókust loks í síðustu viku. Smith mun dvelja hér á landi í nokkra daga og hlakkar hann mikið til að heimsækja Ísland í fyrsta sinn. Guðlaugur er 29 ára nemi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann lofar skemmtilegri sýningu í Hörpunni enda Smith vanur maður þegar svona við- burðir eru annars vegar. „Hann er mjög góður sögu- maður og síðan eru ákveðnir valdir sem fá að standa upp og spyrja spurninga um kvikmyndaiðnaðinn og sögurnar sem tengjast honum persónulega,“ segir Guðlaugur. Eftir sýninguna verður svokallað „meet and greet“ þar sem þeir sem eiga dýrustu miðana geta spjallað við Smith augliti til auglits. Sýningin verður í Eldborgarsalnum sem tekur 1.600 manns og hefst forsala miða í þessari viku. „Svona viðburður hefur ekki átt sér stað á Íslandi áður. Quentin Tarantino kom hingað 2002 en eitthvað í þess- um strúktúr hefur ekki sést hérna áður. Íslendingar eru alltaf að kvarta yfir því að það sé ekkert að gerast þannig að ég býst við góðri mætingu,“ segir Guðlaugur. - fb Kevin Smith kemur til Íslands KEMUR Í NÓVEMBER Bandaríski leikstjórinn spjallar við íslenska aðdáendur sína í nóvember. NORDICPHOTOS/GETTY Björk Guðmundsdóttir heims- frumsýnir myndband við nýjasta lagið sitt, Crystalline, á síðunni Youtube í lok mánaðarins. Þetta verður í fyrsta sinn sem hún frumsýnir myndband á You- tube og bíða aðdáendur henn- ar spenntir eftir útkomunni. Leikstjóri er Frakkinn Michel Gondry, samstarfsmaður Bjark- ar til margra ára. „Hún er vön að gera rosaleg myndbönd og þetta er brjálæðislegt,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Ice- land Airwaves-hátíðarinnar, sem sá myndbandið fyrir skömmu. Björk er þessa dagana að kynna væntanlega plötu sína og hefur hún verið dugleg að veita erlendum fjölmiðlum viðtöl, þar á meðal tímaritunum Dazed and Confused og Wired þar sem hún prýðir forsíðurnar. Söngkonan mætir á Airwaves- hátíðina um miðjan október með tvenna Biohpilia-tónleika í far- teskinu og heldur svo ferna til viðbótar, alla í Hörpunni. Hingað til hefur hún aðeins stigið á svið á menningarhátíðinni í Manc- hester við frábærar undirtektir. „Þetta verður væntanlega flókn- asta og flottasta uppsetning sem hefur verið gerð hér á landi, með fullri virðingu fyrir Clapton- tónleikunum sem ég hélt,“ segir Grímur. Almenn miðasala á tónleikana hefst fimmtudaginn 14. júlí kl. 12 á Icelandairwaves.is og Harpa. is. Aðeins 700 manns komast á hverja tónleika. -fb Heimsfrumsýning á Youtube BJÖRK Nýjasta myndband söngkonunnar verður frum- sýnt á Youtube seinna í mánuðinum. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Bulthaup innréttingar HÁRIÐ Söngleikurinn sem sló í gegn á Akureyri er loksins kominn suður! Aukasýningum bætt við! SILFUR TUNGLIÐ „Algjör snilld“ Júlíus Júlíusson, Mbl. Miðasala á harid.is Sýningar: fim. 14. júlí kl. 19, kl. 22 fös. 15. júlí kl. 19, kl. 23 lau. 16. júlí kl. 19 mið. 20. júlí kl. 19 fim. 21. júlí kl. 19, kl. 22 fös. 22. júlí kl. 19 AUKASÝNING FM-SÝNING AUKASÝNING AUKASÝNING UPPSEL T ÖRFÁ S ÆTI ÖRFÁ S ÆTI ÖRFÁ S ÆTI ÖRFÁ S ÆTI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.