Fréttablaðið - 12.07.2011, Side 6
12. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Dr Organic – hreinar náttúruvörur
Kælandi og græðandi hrein náttúruafurð á húðina í sólinni
„Double Strength“ Lífrænt og 98,9% hreint
Aloe Vera gel án skaðlegra aukaefna svo sem:
Gervilitarefna, parabena, SLS, ilmefna eða rotvarnarefna
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
www.sindri .is
/ sími 5 75 0000
VERKFÆRI SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA Á!
IBTTG-28305
283 HLUTA VERKFÆRASKÁPUR.
1/4”, 3/8” og 1/2” topplyklasett
Fastir lyklar, sexkantar og skrúfjárn,
djúpir toppar, höggskrúfjárn, öfuguggasett,
slaghamar, splittatangir, tangir, bitar og fl.
Lífstíðarábyrgð af toppum og föstum lyklum.
TOPTUL
THE MARK OF PROFESSIONAL TOOLS
179.900m/vsk
Fullt verð 231.900
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
LÖGREGLUMÁL Sérsveit lögregl-
unnar var kölluð út vegna ölvaðs
manns sem ógnaði fólki með byssu
í miðbæ Keflavíkur að morgni
sunnudags. Víkurfréttir greindu
fyrst frá málinu.
Maðurinn hafði ógnað tveim-
ur stúlkum við skemmtistaðinn
Center og meðal annars beint að
þeim byssu. Þegar lögregla mætti
kom á daginn að maðurinn bar
svokallaða startbyssu, sem gjarn-
an eru notaðar við upphaf kapp-
hlaupa. Maðurinn var handtekinn
og færður til yfirheyrslu. - sh
Sérsveitin kölluð út í Keflavík:
Ógnaði fólki
með startbyssu
FRÉTTASKÝRING
Hvað er þetta 4G-farsímanet?
Farsímafyrirtækin Nova og Sím-
inn hafa sótt um heimild til Póst-
og fjarskiptastofnunar (PFS) til
að prófa innleiðingu á því sem
kallað hefur verið fjórða kynslóð
í gagnaflutningstækni. Vodafone
fylgist grannt með þróun mála.
„Þessi tækni mun að sjálfsögðu
ryðja sér til rúms hérlendis líkt og
annars staðar. Við fylgjumst mjög
vel með þróuninni og erum í góðu
sambandi við Vodafone erlend-
is, sem þegar er kominn með
tæknina í rekstur. Íslendingar
munu njóta góðs af þeirri reynslu
þegar þar að kemur,“ segir Kjart-
an Briem, framkvæmdastjóri
tæknisviðs Vodafone.
Heilmikil þróun
Þeir forsvarsmenn símafyrir-
tækjanna sem Fréttablaðið
hefur rætt við segja þau skref
sem stigin voru með þriðju kyn-
slóð í gagnaflutningstækni hafa
verið svar við
kröfu um aukna
möguleika í
þráðlausum
lausnum. Það
sama eigi við
um uppfærslu í
fjórðu kynslóð
í gagnaflutn-
ingstækni. Það
er stigið vegna
snarprar þróunar í nettengjan-
legum tækjum og tólum síðustu
misserin, svo sem með tilkomu
öflugra snjallsíma, þráðlausra
nettölva og spjaldtölva, og kall-
ar á aukna burðargetu kerfisins
svo hægt sé að flytja mikið magn
gagna á milli tækja.
Þriðja kynslóðin í fjarskipta-
tækni var kynnt til sögunnar úti
í hinum stóra heimi í kringum
síðustu aldamót. Það ræður við
í kringum sjö til fjórtán mega-
bæta gagnasendingar á sekúndu.
Kerfið gerði þeim sem áttu far-
síma með netvafra og önnur net-
tengjanleg tæki kleift að rápa um
netið auk þess sem sækja mátti
og senda myndir á milli tækja í
hærri upplausn en áður og hljóð-
skrár af miklum gæðum. Þá
gerði þriðja kynslóðin í farsíma-
tækni fólki kleift að horfa næsta
hnökralaust á sjónvarpsfréttir
í farsímum og tölvum tengdum
þráðlaust við gagnaflutnings-
netið.
Með fjórðu kynslóðinni í gagna-
flutningstækni er stigið enn eitt
skrefið. Það ber um tífalt meira
gagnamagn en forverinn, allt frá
hundrað til þúsund megabæta á
sekúndu.
Eftirspurn skoðuð í sumar
Ekki liggur fyrir hvernig staðið
verður hér að uppbyggingu og
tíðni úthlutun fjórðu kynslóðar-
innar í gagnaflutningstækni.
Þegar uppbygging 3G-netsins
var boðin út á sínum tíma voru
gerðar miklar útbreiðslukröfur
og þurftu tíðnirétthafar að skuld-
binda sig til að byggja kerfið upp í
mörgum smærri byggðarlögum í
öllum kjördæmum landsins.
Í öðrum löndum voru tíðnir
boðnar upp, svo sem í Þýska-
landi. Sá galli fylgdi gjöf Njarð-
ar að sá fékk tíðnina sem hæst
bauð í hana. Kostnaðurinn lenti
á herðum neytenda sem urðu að
greiða háar fjárhæðir til að nýta
sér tæknina. Kostnaðurinn hefur
minnkað talsvert síðan þá.
Póst- og fjarskiptastofnun
(PFS) ætlar í sumar að efna til
opins samráðs um tíðnistefnu
PFS. Þar verður jafnframt kann-
að hversu mikill áhugi er hjá fjar-
skiptafyrirtækjunum á næstu
kynslóð í fjarskiptatækni.
jonab@frettabladid.is
Framfarir í tækni
kalla á öflugra net
Mikil fjölgun þráðlausra tækja sem senda gögn sín á milli og farsímar með
góðum myndavélum gerir það að verkum að byggja þarf upp gagnaflutnings-
net sem getur borið mikið magn upplýsinga. Flutningsgeta mun margfaldast.
KJARTAN BRIEM
1G-netið: Þetta er fyrsta farsímakerfið. Það var tekið í notkun árið 1981.
Áherslan einvörðungu á flutning á tali.
2G-netið: Farsímaskerfi sem kynnt var í Finnlandi árið 1991. Áherslan var
lögð á flutning á tali. Uppfærslur á 2G-netinu, svo sem GPRS-netið sem
gjarnan er kallað 2,5G, geta ráðið við gagnaflutning frá 56 kílóbætum (Kbit)
á sekúndu til 115 kbæta. Næsta skref, EDGE, ræður svo við 230 kbæt á
sekúndu. Kerfið gerði notendum þráðlausra tækja kleift að senda ýmis
stafræn gögn, svo sem hreyfimyndir í lítilli upplausn.
3G-netið: Japanska fjarskiptafyrirtækið NTT DoCoMo svipti hulunni af
tækninni árið 2001. Hér var það tekið formlega í notkun í kringum 2007.
Kerfið ræður við mun meiri gagnaflutninga, í kringum sjö til rúmlega fjórtán
megabæt (Mbæt) á sekúndu. Af þeim sökum ráða farsímar og önnur
nettengjanleg tæki við almennt netráp auk þess sem tæknin gerir það að
verkum að sækja má og senda myndir í hærri upplausn og hljóðskrár af
meiri gæðum en áður, jafnvel horfa á sjónvarpsfréttir í símanum.
4G-netið: Nokkrar gerðir af gagnaflutningsnetinu hafa verið í notkun í tvö ár,
svo sem í Bandaríkjunum, Noregi og Svíþjóð. Áherslan er nú einvörðungu
á stafræna gagnaflutninga og er sendihraðinn 100 Mbæt á sekúndu og allt
upp í 1 Gbæt.
Kerfin í hnotskurn
ÖFLUGIR SNJALLSÍMAR
Farsímar í dag eru nær því
að vera smátölvur. N8-
farsíminn frá Nokia er með
12 megadíla myndavél.
Öflugt gagnaflutningsnet
þarf til að senda myndir
í þvílíkri upplausn á milli
farsíma eða í tölvur.
Þessi tækni mun að
sjálfsögðu ryðja sér til
rúms hérlendis líkt og annars
staðar.
KJARTAN BRIEM
HJÁ TÆKNISVIÐI VODAFONE
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra segir ekkert
hæft í því að hún hafi hafnað því
að hitta kínverskan starfsbróður
sinn, Wen Jiabao, á fundi 14. júlí.
Í frétt Morgunblaðsins frá 7. júlí
fullyrti Agnes Bragadóttir blaða-
maður að ekki hefðu fengist skýr-
ingar frá forsætisráðuneytinu hví
Jóhanna „sá sér ekki fært að taka
á móti Wen Jiabao, forsætisráð-
herra Kína“, en Kínverjar hefðu
nefnt þann dag sem mögulega dag-
setningu fundar.
„Það er ekkert hæft í þessu.
Þetta er ein-
faldlega eins og
maður segir á
hreinni íslensku:
Moggalygi. Það
var búið að festa
niður heimsókn
14. júlí og ég
er búin að sam-
þykkja hana.
V i ð v o r u m
farin að undir-
búa hana sem og viðskiptalífið, en
síðan komu skilaboð frá Kínverj-
um að þeir gætu ekki þegið hana á
þessum tíma,“ segir Jóhanna.
Hún segir að Kínverjum hafi
verið boðið að velja úr dagsetning-
um það sem eftir er af þessu ári
eða á því næsta.
Jóhanna segir athugasemdum
hafa verið komið á framfæri við
Morgunblaðið en ekki hafi verið
tekið tillit til þeirra. Þá hafi Kín-
verjar sent Morgunblaðinu stað-
festingu á að heimboðinu hafi
ekki verið hafnað, en hún hafi ekki
heldur birst á síðum blaðsins.
„Þetta er ótrúleg blaðamennska,
ég hef aldrei séð annað eins.“ - kóp
Segir ekkert hæft í fregnum Morgunblaðsins af fundi með leiðtoga Kína:
Stendur áfram til að hitta Wen
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Gætir þú hugsað þér að kaupa
litla rafmagnsvespu?
Já 56,7%
Nei 43,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Viltu láta brenna lík þitt?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson
jab@frettabladid.is
KJÖRKASSINN