Fréttablaðið - 12.07.2011, Blaðsíða 2
12. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
Þórsteinn, er þetta eldfimt
mál?
„Já, það brennur á mörgum.“
Þórsteinn Ragnarsson er forstjóri
Kirkugarða Reykjavíkurprófastsdæma.
Bálförum hefur fjölgað stórlega á undan-
förnum árum og eru nú fjögur af hverjum
tíu líkum brennd fyrir útför.
SPURNING DAGSINS
Ásta Hársnyrtistofa er í
Bolholti 6. Síminn er 588 3200.
Hárlitun er á kostakjörum hjá
Ástu sem selur einnig hárvörur
á lágu verði, t.d. vörur frá TIGI.
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
í krafti fjöldans
1.490 kr. GILDIR 24 TÍMA
3.800 kr. 60% 2.310 kr.
•
SÍ
A
LITHÁEN Efnahagurinn í Litháen
er á góðri leið með að ná sér eftir
hrunið 2008. Í bænum Druskin-
inkai í suðurhluta landins, alveg
við landamæri Hvíta-Rússlands,
eru menn svo bjartsýnir að þeir
hafa hafist handa við gerð innan-
hússskíðasvæðis eins og reist
var í Dubai. Tvær skíðabrekkur
verða innanhúss en ein utanhúss.
Lengsta brekkan verður nær
hálfur kílómetri að lengd.
Vonast er til að 200 til 400
þúsund manns komi á svæðið á
hverju ári. Í Litháen hefur aðeins
verið hægt að skíða í tvo til þrjá
mánuði á ári en nú verður hægt
að æfa sig allt árið. - ibs
Aukinn hagvöxtur í Litháen:
Reisa innan-
hússskíðasvæði
LANDBÚNAÐUR Það getur verið vandasamt að heyja í
brekkunni fyrir ofan bæinn Kvíaból í Köldukinn en í
síðustu viku rúllaði 800 kílóa heyrúlla niður túnið og
braut sér leið inn í fjós.
„Það voru nokkrar kýr inni og ég
er viss um að einhver þeirra hefur
orðið fyrir henni þó ekki sjái á
neinni,“ segir Marteinn Sigurðsson,
bóndi á Kvíabóli.
Hann segir að rúllan hafi oltið úr
bindivélinni. Þá getur fátt stöðvað
hana en í brekkunni er í um 18 til
23 gráðu halli. Hún lenti með slíku
afli á fjósinu að hún fór í gegnum
vegginn, sem gerður er úr einangr-
unarklæðningu, og reif upp veggstoð sem skrúfuð var
niður í gólfið. Hafi hún lent á kú hefur þó stoðin verið
búin að taka mesta höggið.
„Þetta var slíkur kraftur í þessu að konan mín sem
var heima hélt að það hefði orðið sprenging,“ segir
Marteinn en íbúðarhúsið er fyrir neðan fjósið. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem Marteinn horfir á eftir hey-
rúllu niður brekkuna. Eitt sinn endaði rúlla á steypt-
um hlöðuvegg og sprakk þar. Marteinn getur þó andað
léttar núna því búið er að heyja í hallanum mikla.
Kýrnar fengu væna sárabót fyrir öll óþægindin sem
þær urðu fyrir en þar sem rúllan var orðin götótt var
ekkert annað að gera, segir Marteinn, en að opna hana
og leyfa kúnum að gæða sér á innihaldinu. - jse
Vandasamt að heyja í brekkunni ofan við Kvíaból í Köldukinn:
Heyrúlla fór í gegnum fjósvegg
FERÐALOK HEYRÚLLUNNAR Kýrnar á Kvíabóli fengu að gæða
sér á innihaldinu þegar rúllan var búin að raska ró þeirra í
fjósinu. MYND/HAUKUR MARTEINSSON
MARTEINN
SIGURÐSSON
VIÐSKIPTI Hrein eign lífeyrissjóð-
anna stóð í rúmum tvö þúsund
milljörðum króna í lok maí og
höfðu hún þá aldrei verið meiri.
Heildareignir námu 2.007
milljörðum króna og var það 23
milljarða króna aukning á milli
mánaða.
Mest jókst eign lífeyrissjóð-
anna í ríkisskuldabréfum, eða
um 15,2 milljarða króna.
Greining Íslandsbanka segir
svo virðast sem sjóðirnir hafi
notað handbært fé í töluverðum
mæli til fjárfestinga í maí. - jab
Lífeyrissjóðirnir aldrei stærri:
Eignir upp á
2.000 milljarða
HEILBRIGÐISMÁL Af 53 fíkniefna-
neytendum sem greinst hafa
með HIV-sýkingu síðastliðinn
aldarfjórðung hafa 32 greinst á
síðustu fjórum árum.
Meðalaldur þeirra er 34 ár
og ákveðin innbyrðis tengsl eru
milli margra þeirra sem hafa
smitast.
Þetta kemur fram í Farsótta-
fréttum sóttvarnalæknis.
Enn fremur segir að annað
sem einkenni faraldurinn meðal
fíkniefnaneytenda sé að margir
þeirra hafi misnotað rítalín með
því að sprauta efninu í æð.
Auk fíkniefnaneytendanna
hafa 216 aðrir greinst með HIV-
sýkingu undanfarinn aldar-
fjórðung.
- jss
HIV-faraldurinn:
Hópsýking hjá
sprautufíklum
SKROKKAR SKORNIR Hlutabréf SS hafa
verið skráð um árabil á Opna tilboðs-
markaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/
VIÐSKIPTI Hlutabréf Sláturfélags
Suðurlands (SS) verða skráð á
First North-hlutabréfamarkaðinn
á fimmtudag. Hlutabréfin hafa um
árabil verið skráð á tilboðsmark-
að Kauphallarinnar. Þau verða
afskráð þar á morgun fyrir skrán-
ingu á First North-markaðinn.
Stjórnin telur breytinguna
henta SS mjög vel. Um tvö hundr-
uð milljón hlutir verða skráðir á
markaðnum. Skráning SS er sú
fyrsta á íslenskum hlutabréfa-
markaði síðan Skipti, móðurfélag
Símans, var skráð í Kauphöllina
vorið 2008. - jab
SS á First North-markaðinn:
Fyrsta félag á
markað í þrjú ár
DÝRALÍF Hópur Vestfirðinga áform-
ar að flytja hreindýr til Vestfjarða
innan þriggja ára. Þó standa nokk-
ur ljón í veginum en Búnaðarsam-
band Strandamanna hefur lagst
gegn áformunum sem og Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir meðal
annars vegna hættu á að þau smiti
riðu eða garnaveiki.
„Ef sýnt verður fram á það með
vísindalegum hætti að þau smiti
sauðfé á svæðinu þá verðum við
fyrstir til að bakka með þessa hug-
mynd,“ segir Magnús Ólafs Hans-
son, einn af hvatamönnunum. „Við
erum hins vegar ekki til í að láta
tala okkur af hugmyndinni bara
með einhverjum „af því bara“
rökum. Yfirdýralæknir segist
mótfallinn þessu því að hreindýr
geti hugsanlega
smitað sauðfé.
Þetta eru ekki
vísindaleg rök.“
Hann segir að
hópurinn hafi
fengið álit hjá
sænska yfir-
dýralæknisemb-
ættinu og þar
segir að hrein-
dýr geti ekki
smitað sauðfé af riðu eða garna-
veiki.
Halldór segist ekki hafa séð
þetta álit. „Ég þyrfti að fá að sjá
hvaða forsendur þeir gefa sér áður
en ég segi eitthvað um það,“ segir
hann. „Aðalatriðið er þó það að við
viljum láta Vestfirðinga, með sitt
hreina svæði, njóta vafans,“ segir
hann, „Vestfirðingar hafa algjöra
sérstöðu hvað það varðar og því
markmiði var náð með miklum
fjárútlátum af hálfu ríkisins og
eins með miklum fórnum af hálfu
bænda. Því er það ekki ásættan-
legt að taka hættuna á því að ein-
hverjir sjúkdómar komi upp á
svæðinu. Við lítum líka svo á að
hagsmunir sauðfjárbænda vegi
þyngra en hagmunir hóps manna
sem vilja flytja hreindýr á svæðið
einungis til að skjóta þau.“
Varðandi það að málið hafi
aldrei verið rannsakað segir hann:
„Það liggja reyndar fyrir ákveðn-
ar rannsóknir sem Sigurður Sig-
urðarson dýralæknir gerði og við
byggðum okkar álit meðal annars
á þeim.“
Hann segir einnig önnur rök
renna stoðum undir afstöðu hans.
„Í fyrsta lagi vita menn ekki
hvort fæðuframboðið sé nægilegt
á svæðinu svo að þau þrífist þar,“
segir hann. „Síðan halda engar
venjulegar girðingar þessum
dýrum, þau gætu þess vegna farið
suður í Dali eða eitthvert annað
þar sem þeirra er ekki óskað.“
Magnús Ólafs ítrekar að rann-
saka verði öll þessi atriði. „Ef það
kemur upp úr dúrnum, eftir þá
skoðun, að þetta sé ekki gæfulegt
þá tökum við því.“ Hann segir enn
fremur að kanna þyrfti hversu
mörg dýr væri hyggilegt að hafa á
svæðinu, en þau gætu hugsanlega
verið á bilinu tuttugu til fimmtíu.
jse@frettabladid.is
Vilja fá hreindýr á
vestfirskar heiðar
Hópur Vestfirðinga áformar að flytja hreindýr í heimasveitina. Í áliti frá
sænska yfirdýralæknaembættinu segir að hreindýr smiti ekki sauðfé. Yfirdýra-
læknir sem og Búnaðarsamband Strandamanna eru á móti hugmyndinni.
HREINDÝR Á AUSTFIRSKRI HEIÐI Ef hvatamönnum að vestan verður kápan úr klæð-
inu verður þess ekki langt að bíða uns hreindýr sjáist einnig á vestfirskum heiðum.
FRÉTTANLAÐIÐ/VILHELM
MAGNÚS ÓLAFS
HANSSON
HEILBRIGÐISMÁL Mælingar á roð-
valdandi geislum hér á landi gefa
það til kynna að háa tíðni sortu-
æxla beri ekki eingöngu að skýra
með ljósabekkjanotkun og utan-
landsferðum heldur einnig að hluta
til með íslenskri sól.
Þetta kemur fram í rannsókn-
arskýrslu læknanna Bárðar Sig-
urgeirssonar og Hans Christians
Wulf.
Sortuæxlum, sem er alvarleg-
asta tegund húðkrabbameina,
hefur fjölgað hér á landi undan-
farna áratugi þó eitthvað hafi
dregið úr þeim síðustu ár. Hefur
sú þróun venju-
lega verið tengd
við aukna notk-
un ljósabekkja
og utanlands-
ferðir en í ljósi
þessara mæl-
i n g a s e g j a
læknarnir að
vert sé að taka
þátt íslenskr-
ar sólar með í
reikninginn.
Samkvæmt krabbameins-
skrá Krabbameinsfélags Íslands
greindust að meðaltali 49 manns
með sortuæxli í húð á árunum
2004 til 2008 og tíu létust árlega.
Mælingarnar á roðvaldandi
geislum sólar fóru fram í Skorra-
dal síðastliðið sumar og er þetta í
fyrsta sinn sem slíkar mælingar
fara fram hér á landi.
Notast er við svokallaðan ÚF-
stuðul en þegar hann er í fimm stig-
um þýðir það að Íslendingur með
venjulega húðgerð getur eingöngu
verið um eina klukkustund í sólinni
án þess að húðin roðni. Í júnímán-
uði í fyrra mældist ÚF-stuðullinn í
sextán daga yfir fimm stigum. Mest
náði hann 7,5 stigum. - jse
Ljósabekkjanotkun og utanlandsferðir eflaust ekki einu orsakavaldar sortuæxla:
Böndin beinast að íslenskri sól
MANNÚÐARMÁL UNICEF, Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, á
Íslandi stendur nú fyrir fjár-
söfnun til hjálpar vannærðum
börnum í Austur-Afríku.
Yfir tvær milljónir ungra
barna þjást af vannæringu og
um 500 þúsund þeirra eru nú
þegar talin lífshættulega van-
nærð vegna mestu þurrka í
hálfa öld og hækkaðs matvæla-
verðs, segir í fréttatilkynningu
frá Barnahjálpinni.
Hægt er að styrkja neyð-
arstarf UNICEF með því að
hringja í söfnunarsímanúmerin
908-1000 (1.000 krónur), 908-
3000 (3.000 krónur), 908-5000
(5.000 krónur).
Einnig er hægt að styrkja
neyðarstarfið í gegnum heima-
síðu UNICEF á Íslandi eða með
því að leggja inn á neyðarreikn-
ing samtakanna: 515-26-102040,
kennitalan er 481203-2950. - jse
UNICEF á Íslandi:
Söfnun fyrir
Austur-Afríku
BÁRÐUR
SIGURGEIRSSON