Fréttablaðið - 12.07.2011, Side 10
12. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR10
HLAUP Í MÚLAKVÍSL
SAMGÖNGUR Rúta og sérútbúnir
vörubílar ferja nú fólk og bíla yfir
Múlakvísl, þar sem þjóðvegurinn
fór í sundur í hlaupinu á laugar-
dag. Nokkur fjöldi fólks beið þess
að komast yfir kvíslina þegar farið
var í fyrstu ferð um miðjan dag-
inn í gær.
Reynsla á eftir að komast á það
hvernig flutningarnir ganga og
hvernig aðstæður eru, en stefnt
er að því að halda þessum flutn-
ingum áfram daglega þar til
bráðabirgðabrú verður tilbúin,
að sögn G. Péturs Matthíassonar,
upplýsingafulltrúa Vegagerðar-
innar. Vegagerðin hefur umsjón
með flutningunum og mun standa
straum af kostnaðinum við þá.
Flutningur yfir Múlakvísl verður
því almenningi að kostnaðarlausu.
Björgunarsveitir og lögregla munu
fylgjast með ferðunum og vakta
svæðið. Björgunarsveitarbílar eru
beggja vegna Múlakvíslar vegna
flutninganna.
Vegagerðin gerir ráð fyrir því að
hægt sé að anna um 25 til 35 pró-
sentum af venjubundinni umferð
með þessum hætti. Júlíumferð á
svæðinu er um 1.000 til 1.200 bílar
á sólarhring, en tíu mínútur tekur
að koma bíl yfir vaðið. Því gæti
fólk þurft að bíða ansi lengi eftir
því að komast yfir ef mikil umferð
verður á svæðinu.
Vinna er hafin við gerð bráða-
birgðabrúar vestan megin við
gamla brúarstæðið. Allt efni sem
þarf er komið á staðinn og báðir
brúarvinnuflokkar Vegagerðar-
innar komu þangað í gær. Unnið
verður á sólarhringsvöktum við
gerð brúarinnar og aukamann-
skapur verður kallaður út eftir
þörfum. Gert er ráð fyrir að um
tvær til þrjár vikur taki að klára
brúna, sem verður 150 til 160
metra löng.
Unnið er einnig að lagfæringum
á vegunum á Fjallabaksleið nyrðri
og Dómadalsleið. Mikil umferð var
um Fjallabak í gær, en vegurinn er
aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
Lögregla og björgunarsveitir hafa
einnig eflt gæslu sína þar.
Vegagerðin hefur útbúið sex
skilti sem komið verður upp í dag
við Seyðisfjörð, Egilsstaði, Klaust-
ur, Landvegamót og Rauðavatn.
Skiltin eru á ensku og benda þann-
ig ferðamönnum á að hringvegur-
inn er rofinn við Múlakvísl.
thorunn@frettabladid.is
Samgöngur komnar
á yfir Múlakvísl
Vegagerðin hóf í gær að flytja fólk og bíla yfir Múlakvísl á rútu og trukkum.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að anna 25 til 35 prósentum hefðbundinnar um-
ferðar með þessum hætti. Vinna við bráðabirgðabrú er einnig hafin.
Engir nýir sigkatlar
Flogið var með vísindamenn yfir Mýrdalsjökul í gærmorgun. Engir nýir katlar
hafa myndast og er staðan óbreytt frá því á laugardag. Ekki er frekari flóða
að vænta nema nýjar hræringar verði á jöklinum, samkvæmt upplýsingum
vísindamanna. Hluti Mýrdalsjökuls er þó enn lokaður og lýstur hættusvæði,
samkvæmt Vegagerðinni.
„Menn eru kvíðnir og slegnir yfir
því að tapa tveimur verðmætustu
vikum ársins í ferðaþjónustu,“
segir Einar Hafliðason, forstöðu-
maður brúardeildar Vegagerðar-
innar. Hann var staddur í Víkur-
skála í gær á leið suður eftir vinnu
við Múlakvísl.
Einar sat fund með fulltrúum
Almannavarna og Ferðamálastofu
ásamt ferðaþjónustuaðilum í Vík
síðdegis í gær um stöðu mála. Þar
kom fram gagnrýni á alla þá sem
vinna að því að koma samgöngum
í samt lag eftir að hlaupið í Múla-
kvísl rauf þjóðveginn um liðna
helgi.
Á fundinum skýrði Einar verklag
Vegagerðarinnar en vinna hófst við
gerð bráðabirgðabrúar yfir Múla-
kvísl í gær. Einar reiknar með að
fyrsti brúarstöpullinn verði tilbú-
inn í dag, tengingu komið á yfir
kvíslina um næstu helgi og mögu-
legt að aka yfir hana eftir um viku.
„Við erum komin á fullt og gerum
okkar besta,“ segir Einar. - jab
Vegagerðin vinnur að smíði bráðabirgðabrúar:
„Gerum okkar besta“
SÉRFRÆÐINGUR Í BRÚARSMÍÐI Einar tók
á móti verðlaunum Norræna vegasam-
bandsins, NVF, fyrir hönd Vegagerðar-
innar fyrir hönnun Þjórsárbrúar árið
2008. NVF/HENRIK KETTUNEN
LAGAÐ TIL EFTIR HLAUP Efla þarf öryggi á vinsælum ferðamannastöðum, að því er
fram kemur í nýlegri skýrslu. MYND/FRIÐRIK
NÝ BRÚ Í SMÍÐUM Vegagerðin hóf í gær vinnu við gerð bráðabirgðabrúar yfir Múlakvísl. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vafasamt þykir að hægt verði að
gera miklar bætur á veginum um
Fjallabak nyrðra vegna umhverf-
issjónarmiða þó hægt sé að bæta
hann frá því sem er í dag. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
greinargerð um samgöngukosti
og kostnað við landsamgöngur í
kjölfar umbrota í Kötlu sem unnin
var fyrir Vegagerðina í janúar árið
2008.
Kannað var hvaða umferðar-
leiðir eru færar í nágrenni við
Kötlu meðan á umbrotum stendur
og hver yrði hugsanlegur viðbót-
arkostnaður samfélagsins vegna
lokunar á hringvegi um Mýrdals-
sand. Þeir samgöngukostir sem
voru skoðaðir voru annars vegar
um Norðurland og hins vegar um
Fjallabak nyrðra.
Í skýrslunni kemur fram að leið-
in um Norðurland liggi um upp-
byggða vegi með slitlagi en leiðin
um Fjallabak nyrðra sé víða um
erfitt landslag, þrönga og hlykkj-
ótta vegi sem ekki eru með bundnu
slitlagi og ekki færir nema hluta
árasins. Vafasamt sé að hægt verði
að gera miklar bætur á veginum
vegna umhverfissjónarmiða og að
samgöngur um veginn að vetrar-
lagi muni einnig verða töluverð-
um erfiðleikum háð vegna snjóa
og veðurs.
Ekki var gert arðsemismat þar
sem um tímabundnar lokanir eða
tilfærslur er að ræða.
Skýrsla um samgöngur í kjölfar umbrota Kötlu:
Erfitt verði að bæta
Fjallabak nyrðra
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Takmarkað sætaframboðTaktu þátt
í Lukkulífi VITA
Tyrkland 16. og 26. júlí.
Lukkulíf VITA gerir þér kleift að velja áfangastað, brottfarardag
og lengd ferðar en upplýsingar um gististað berast þér síðar.
116.500kr.* 99.400kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Flug og gisting m/hálfu fæði miðað
við 2 fullorðna og 1 barn í herbergi.
*Verð án Vildarpunkta 126.500 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
Flug fram og til baka.
*Verð án Vildarpunkta 109.400 kr.
TYRKLAND
Vinsælasti sólarstaðurinn í Tyrklandi
Takmarkað
sætaframboð
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
V
IT
5
56
92
0
7/
11