Fréttablaðið - 12.07.2011, Qupperneq 19
HREINGERNING
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Þrif, hreinsiefni, húsráð, þvottur.
ISS Ísland er stærsta
eignaumsýslufyrirtæki í
heimi með um 530.000
starfsmenn í 52 löndum,
þar af 800 á íslandi.
Þetta er nokkuð sem margir vita ekki af og halda að ISS sé bara ræstingafyrirtæki,“
segir Ívar Harðarson, sviðsstjóri
fasteignaumsjónar, en ISS hjálp-
ar fyrirtækjum að losna við áreiti
og umstang sem fylgir því að reka
fasteign og að halda henni í ásætt-
anlegu ásigkomulagi. Hugmyndin
á bak við þessa þjónustu er meðal
annars sú að stjórnendur og eig-
endur geti betur einbeitt sér að
sinni kjarnastarfsemi.
„Segjum að þú eigir Kringl-
una eða einhverja aðra húseign.
Þá gætum við hjá ISS séð um alla
fjármálastjórnun, fjárstýringu,
greiðslur og innborgun fyrir húsið,
allt bókhald fyrir húseignina, inn-
heimtu á leigugjöldum og aðra
fjármálastjórnun. Sjálfur getur þú
svo bara verið í golfi á meðan við
sjáum um fjárhagsáætlanir, rekstr-
aráætlun og samskipti við endur-
skoðendur,“ segir Ívar og telur upp
lítið eitt af þeirri þjónustu sem ISS
býður upp á. Hann útskýrir að ekk-
ert sé ISS óviðkomandi í fasteigna-
umsýslunni, allt frá því að laga
hurð til þess að jafna ágreining
við leigjendur og nágranna, og að
sjá um að halda lóð umhverfis hús
snyrtilegri sem og bílastæðum.
ISS sér ekki aðeins um ver-
aldlegar eignir fyrirtækja heldur
býður fyrirtækið líka upp á stoð-
þjónustu en í henni felst meðal
annars símavarsla, móttaka, ljós-
ritun, póstumsjón og umsjón
fundarherbergja. Svo má ekki
gleyma veitingasviðinu: „Hvort
sem þú þarft að láta sjá um mötu-
neyti starfsmanna, kaff istof-
una eða umsjón með fundum og
öðrum viðburðum þá búum við til
lausn sem er sérsniðin. Við seljum
núna yfir 2.000 matarskammta á
dag sem er ekkert smotterí,“ segir
Ívar en maturinn er keyrður út þó
að einnig sé hægt að fá kokk til að
elda á staðnum ef aðstæður eru
fyrir hendi.
ISS býður líka upp á lausnir
varðandi móttökur, fundi, boð
og veislur þar sem fagfólk á snær-
um ISS annast umsjón og fram-
kvæmd.
„Svo geta fyrirtæki valið þessa
þjónustuþætti, hvað viltu að við
tökum að okkur?“ segir Ívar og
minnist svo á að ISS Ísland hafi
náð þeim árangri að vera fyrir-
myndarfyrirtæki VR árið 2011.
„Það er í sjötta skipti sem fyrir-
tæk inu hlot nast sá heiður.
Fyrirmyndarfyrirtækið er valið
eftir ánægju starfsmanna. En það
sem starfsmenn okkar gera í stuttu
máli er að sjá um eignir frá A til Ö,
alveg sama hvort það er á fast-
eignasviði, veitingasviði, ræstinga-
sviði eða í stoðþjónustunni eða
skrifstofuaðstoðinni,“ segir Ívar.
Sjá um allt frá A til Ö
ISS hefur langa og víðtæka reynslu á öllum sviðum
ræstinga og hreingerninga hjá fyrirtækjum.
Þegar húsnæði eru hreingerð eða gólf eru bónleyst og bónuð er mikilvægt að velja réttu efnin,
áhöldin og aðferðirnar en fagþekking er grunnurinn að góðum árangri.
Nánari upplýsingar
í síma 5 800 600
sala@iss.is • www.iss.is
Hreingerning • Viðhald gólfa • Gluggaþvottur • Iðnaðarþrif- 30 ára reynsla
Eitt af því sem ISS býður upp
á er að keyra út ávaxtakörfur
til fyrirtækja og starfsmanna
þeirra. Ávextirnir eru holl-
ari orkugjafi þegar sykurþörf
hellist yfir fólk í vinnunni.
Með ávaxtakörfunum frá ISS
gefst starfsmönnum kostur
á heilbrigðari millimálamat
sem er betur til þess fallinn
að hjálpa þeim að viðhalda
skerpu og athygli. Innihald
ávaxtakarfanna er breytilegt
eftir árstíðum, allt eftir því
hvaða ávextir eru ferskastir á
hverjum tíma.
ÁVEXTIR Í
SAMKEPPNI VIÐ
NAMMIÐ
Ein af ástæðum þess að ISS Ís-
land kemur vel út í mælingum
VR á ánægju starfsmanna er
sú að fyrirtækið gerir sér grein
fyrir því að hrós er mikilvægt.
Reglulega er gerð könnun á
meðal viðskiptavina ISS og í
leiðinni er athugað hvað þeir
eru ánægðir með. Þegar við á
er hrósinu komið til skila. En
þetta segir á heimasíðu ISS:
„Okkur Íslendingum er ekki
gjarnt að hrósa og við eigum
oft erfitt með að taka við hrósi.
Í hrósi er hins vegar fólgin við-
urkenning á að vel sé gert og í
því felst lærdómsferli.“
HRÓSIÐ KÆTIR OG
EYKUR GÆÐI
Nokkrir starfsmenn ISS Ísland fyrir utan höfuðstöðvarnar í Austurhrauni 7 í Garðabæ. MYND/VILHELM