Fréttablaðið - 19.07.2011, Qupperneq 2
19. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
SKIPULAGSMÁL Öskjuhlíð gæti
komist í forsjá Skógræktarfélags
Íslands og Háskólans í Reykja-
vík ef borgaryfirvöld samþykkja
tillögu þessara aðila.
„Við undirritaðir erum sann-
færðir um að Skógræktarfélag
Íslands og Háskólinn í Reykjavík
séu réttir aðilar til að halda utan
um þá uppbyggingu sem þarf að
eiga sér stað í Öskjuhlíðinni til að
hún geti orðið sú útivistarperla
sem hún sannarlega býður upp á,“
segja Ari Kristinn Jónsson, rektor
skólans, og Magnús Gunnarsson,
formaður Skógræktarfélagsins, í
bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra.
Hugmyndin er sú að aðilarnir
tveir, í nánu samstarfi við borg-
ina, verði „fósturforeldrar“ Öskju-
hlíðar. „Í því felst að SÍ og HR
skuldbinda sig til að bera ábyrgð
á svæðinu á komandi árum, stuðla
að fegrun þess og uppbyggingu og
laða að önnur fyrirtæki og stofn-
anir í nágrenni Öskjuhlíðar til
að leggja sitt af mörkum til að
vinna að uppbyggingu og fegrun
svæðisins,“ segir í erindinu til
borgarstjóra.
Ari og Magnús segja meðal ann-
ars mikla ónýtta möguleika varð-
andi göngustíga, íþróttir, fræðslu
og ferðamennsku í Öskjuhlíð.
Staðurinn gæti gegnt lykilhlut-
verki sem útivistarsvæði. Skipu-
leggja þurfi skógræktina mun
betur. „Þarna þarf að grisja og
gróðursetja með fjölbreytni í
huga, til dæmis blómstrandi rósir
og berjarunna,“ segja þeir í bréfi
sínu.
Málið er nú á leið til skoðunar
í skipulagsráði borgarinnar. Auk
þess sem aðilarnir vilja fóstra
Öskjuhlíðina óskar Skógrækt-
arfélag Íslands eftir lóð fyrir
nýjar höfuðstöðvar á svæðinu.
Félagið segir húsinu ætlað að vera
„hjarta“ skógræktaráhugamanna
á Íslandi. Húsið verði lágreist og
sem næst Perlunni til að raska
svæðinu sem minnst.
„Skógræktarfélag Íslands mun
líta á sitt nýja heimili sem „póst“
á ferð útivistarfólks um stíga-
kerfi Öskjuhlíðarinnar, þar sem
það getur staldrað við, slappað
af eða leikið sér samhliða því að
fræðast um skógrækt og Öskju-
hlíðina. Með veru sinni í Öskju-
hlíðinni vill félagið gjarnan koma
að skipulagi og framkvæmd við
grisjun og plöntun ríkari flóru
á svæðinu,“ segir í lóðarumsókn
skógarmanna. gar@frettabladid.is
HR og skógræktarfólk
vilja Öskjuhlíð í fóstur
Háskólinn í Reykjavík og Skógræktarfélag Íslands vilja taka Öskjuhlíð í fóstur
og að borgin feli þeim að fegra og byggja upp svæðið. Skógræktarfélagið biður
jafnframt um lóð til að byggja nýjar höfuðstöðvar við aðkeyrsluna að Perlunni.
HUGMYND AÐ HÖFUÐSTÖÐVUM Sigurður Einarsson arkitekt hefur gert tillögu fyrir höfuðstöðvar Skógræktarfélags Íslands í
austanverðri Öskjuhlíð. MYND/SIGURÐUR EINARSSON - BATTERÍIÐ.
STJÓRNSÝSLA Einungis Hæstiréttur
hefur vald til þess að endurupp-
taka dómsmál. Innanríkisráð-
herra getur því ekki skipað fyrir
um að mál séu
endurupptekin,
en hann getur
þó sent réttin-
um beiðni þar
um.
Krafan um
endurupptöku í
Guðmundar- og
Geirfinnsmál-
inu hefur orðið
æ háværari í
kjölfar andláts Sævars Ciesielski,
en hann var einn sakborninganna
í málinu. Margir hafa beint máli
sínu til Ögmundar Jónasson-
ar innanríkisráðherra og hvatt
hann til að beita sér fyrir endur-
upptöku. Undirskriftasöfnun er
hafin á netinu þar um. Hæstirétt-
ur hefur í tvígang hafnað endur-
upptöku málsins.
Sigurður Líndal prófessor segir
að það væri andstætt þrískiptingu
valdsins ef pólitískur ráðherra
hefði heimild til að skipa fyrir
um endurupptöku mála. Hana
hafi Hæstiréttur einn.
Ráðherra geti þó sent réttinum
beiðni um endurupptöku, líkt og
aðrir. Fjölmörg skilyrði séu til-
greind fyrir endurupptöku. „Ég
sé ekki að ráðherrann geti gert
annað en að beina því til Hæsta-
réttar að hann taki málið upp.“
Sú hugmynd hefur einnig skotið
upp kollinum að skipuð yrði rann-
sóknarnefnd sem færi yfir málið.
Sigurður segir slíka nefnd ekki
myndu hafa lagalegt gildi, en hún
gæti haft pólitískt vægi.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra vildi ekkert tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið leitaði
eftir því. - kóp
Innanríkisráðherra getur ekki mælt fyrir um endurupptöku mála:
Hæstiréttur einn hefur valdið
SIGURÐUR LÍNDAL
ÖGMUNDUR JÓNASSON Ráðherra vill
ekki tjá sig um kröfuna um að Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið verði tekið
upp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STANGVEIÐI Breskur veiðimaður
veiddi í gær 106 sentimetra lax
á Valdabreiðu í Fljótaá í Skaga-
firði. Að sögn Árna Jörgensen,
sem gjörþekkir ána, má áætla að
laxinn hafi verið allt að 28 pund.
Árni segir stórlaxinn hafa verið
veiddan á nákvæmlega sömu
svörtu hálftommu snælduna sem
Kandamaður var með þegar hann
landaði 97 sentimetra laxi úr
Steinseyrarbreiðu í Fljótaá fyrir
nokkrum dögum. Fyrri veiðimað-
urinn hafi sennilega gefið þeim
síðari snælduna þegar hollaskipti
voru í ánni. Að sögn Árna hefur
gengd stórlaxa í Fljótaá aukist
jafnt og þétt síðustu ár eftir að
gert var skylt að sleppa öllum
laxi. - gar
Velgengni útlendinga í Fljótaá:
Tveir risalaxar á
sömu snælduna
Regína, eruð þið í rusli yfir
sóðaskapnum?
„Nei – við ruslum bara upp
nokkrum sektarmiðum og komum
út í bullandi gróða.“
Regína Ásvaldsdóttir er staðgengill borg-
arstjóra. Til skoðunar er hjá Reykjavíkur-
borg að sekta þá einstaklinga á staðnum
sem verða uppvísir að sóðaskap.
HEILSA Skálafell Bike Park var
opnaður formlega um síðustu
helgi. Þar er að finna tvær hjól-
reiðabrautir í 220 metra fallhæð.
Þangað er farið með stólalyftu en
markmiðið er að nýta betur þjón-
ustu skíðasvæðisins yfir sumar-
tímann.
„Í fyrra vorum við með eina
braut en núna höfum við bætt
annarri við,” segir Einar Bjarna-
son rekstrar stjóri Bláfjalla. Nú
henti svæðið bæði byrjendum
og lengra komnum. Hann segir
aðstæðuna einnig nýtast skíða-
göngufólki. - ve / sjá allt
Betri nýting á skíðasvæði:
Hjólað niður
Skálafell
Á FLEYGIFERÐ Hjólreiðamenn bruna
niður Skálafell á fjallahjólum.
MYND/BOB VAN DUIN
SKIPULAGSMÁL Sex tilboð bárust í
byggingu hótels á reitnum vestan
við tónlistarhúsið Hörpu. Tilboðs-
frestur rann út í gær.
Tilboð bárust frá þremur
íslenskum og þremur erlendum
aðilum. Í útboðsgögnunum fyrir
lóðina við hlið Hörpu var bygg-
ing hótels þar áskilin í samvinnu
við alþjóðlega hótelkeðju. Gert
er ráð fyrir að minnsta kosti 250
herbergja hóteli sem verði fjórar
til fimm stjörnur. Byggingin
getur að hámarki orðið 28 þúsund
fermetrar ofan jarðar.
Situs hf., sem á lóðina, fer nú
yfir tilboðin. Markmið fyrir-
tækisins er að hótelrekstur verði
hafinn vorið 2015. - þeb
Lúxushótel risið árið 2015:
Sex tilboð í
hótel við Hörpu
SAMGÖNGUR Samninganefndir
flugmanna og Icelandair funduðu
hjá ríkissáttasemjara í gær, og
stóð fundurinn enn þegar Frétta-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Yfirvinnubann flugmanna hjá
félaginu tekur gildi klukkan 14 í
dag.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir að
vaktir næstu daga séu fullmann-
aðar og yfirvinnubannið muni
því ekki hafa fyrirsjáanleg áhrif.
Þó megi ekki mikið út af bregða.
Flugmenn felldu kjarasamning við
Icelandair sem náðist eftir að yfir-
vinnubann þeirra. - bj
Deila flugmanna enn í hnút:
Sjá ekki fram
á tafir á flugi
FLUG Ekki má mikið út af bregða til að
yfirvinnubann valdi töfum á flugi Ice-
landair. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LANDBÚNAÐUR Það er ekki rétt að skortur sé á
lambakjöti hér á landi, segir formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda, Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson. Leifur Þórsson, framkvæmda-
stjóri hjá Ferskum kjötvörum, sagði í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær að skortur væri á lamba-
kjöti á Íslandi. Hann hefur óskað eftir því við
landbúnaðarráðuneytið að fá leyfi til innflutn-
ings á lambalærum.
„Birgðastaðan 1. júlí var 1100 tonn, og síð-
ustu ár hefur salan þessa sumarmánuði verið
í kringum 500 tonn á mánuði. Það eru tveir
mánuðir, júlí og ágúst, þangað til ný sláturtíð
hefst,“ segir Sigurgeir Sindri.
Hann segir að mögulegt sé að minna sé til af
ákveðnum bitum en öðrum. „Ég er svo jákvæð-
ur fyrir því að við förum inn í nýja sláturtíð
með nánast tómar geymslur, mér finnst það
bara frábært nýting. Það hafa oft verið sögur
um kjötfjöll sem hafi verið sturtað á haugana.“
Um fjörutíu prósent af íslensku lambakjöti
eru flutt úr landi. Sigurgeir Sindri segir að þótt
sala erlendis gangi vel sé innanlandsmarkaður-
inn í forgangi. „Innanlandsmarkaður er okkar
besti markaður, hefur alltaf verið og mun alltaf
verða. Við bændur verðum mjög óánægðir ef
það er kjötlaust á Íslandi. Við erum hérna til að
sinna íslenskum neytendum fyrst og fremst.“
Ekki náðist í Leif Þórsson, framkvæmdastjóra
Ferskra kjötvara, í gær. - þeb
Landssamtök sauðfjárbænda segja innanlandsmarkaðinn í forgangi hjá þeim:
Segir lambakjötsbirgðir duga út sumarið
LAMBAKJÖT Sauðfjárbændur segja birgðir duga fram
að næstu slátrun, sem sé fín nýting.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
9 AF HVERJUM 10 KONUM
FINNA FYRIR ÓÞÆGINDUM
Á KYNFÆRASVÆÐI?
RAKAAUKANDI
GEL, EYKUR OG
VERNDAR RAKASTIG,
VIRKAR EINNIG SEM
SLEIPIEFNI
FÆST Í APÓTEKUM