Fréttablaðið - 04.08.2011, Blaðsíða 56
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Engin Ellen
Allt ætlaði um koll að keyra í
gær þegar fréttir bárust af komu
spjallþáttastjórnandans Ellen
DeGeneres til landsins. Talsmenn
Gay Pride-hátíðarinnar lýstu yfir
mikilli ánægju með komu hennar
til landsins, enda hefur hún barist
ötullega fyrir réttindum samkyn-
hneigðra í gegnum tíðina, og sögð-
ust þeir vona að hún kæmi í Gleði-
gönguna á laugardaginn.
Gleðin var þó skammvinn
þar sem Vísir birti frétt
um að Ellen væri ekki
á landinu, heldur
þýskur tvífari,
Caroline Koch.
Koch skemmti
sér konunglega
yfir fréttunum
af fræga tvífar-
anum sínum
og sagðist
vera mikill
aðdáandi
hennar.
- afb, sh
Stefán lætur undan
Einn þrautseigasti bloggari landsins
er formaður Samtaka hernaðar-
andstæðinga, Stefán Pálsson. Svo
lengi sem elstu menn muna hefur
Stefán haldið úti sínu bloggi á vef-
svæðinu kaninka.net og þrátt fyrir
ótal gylliboð hefur engum tekist
að lokka hann á aðrar slóðir. Það
er þangað til núna. Í gær upplýsti
Stefán nefnilega að hann væri
meðal nýrra bloggara á endurreistri
Smugu, vefritinu sem er að hluta
til í eigu Vinstri grænna (þótt hann
haldi reyndar áfram til á
Kaninkunni líka). Líklega
þykjast æðstráðendur
Smugunnar hafa himin
höndum tekið með því
að tryggja sér krafta
Stefáns, en það
er hins vegar
einn galli á
þeirri gjöf:
Stefán er
eiginlega
hættur að
blogga.
Göngu-
götunni á
Akureyri
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞAÐ ERU
ENGIN HÖFT Í
VIÐSKIPTUM
Á VÍSI
1 Stórstjarnan Ellen Degeneres
í Smáralind
2 Auðmannsdóttir með
sprengju um hálsinn
3 Mataræði og lífsstíll geta
lengt ævina um 15 ár
4 Heiðmerkurmorðinginn
ósakhæfur
5 Katrín Middleton fær þjálfun
hjá sérsveitamönnum