Fréttablaðið - 04.08.2011, Side 10

Fréttablaðið - 04.08.2011, Side 10
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR10 SAMGÖNGUR Samgönguyfirvöld stefna að því að yfirumsjón með almenningssamgöngum á landi verði komin á hendur sveitarfélaga fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið undirrit- að sjö ára samkomulag við Sam- band sunnlenskra sveitarfélaga, sem fær 80 milljónir króna á ári í þeim tilgangi. Formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga segir hag- ræði geta falist í þessum breyt- ingum en ríkið verði að standa við sitt. Hingað til hefur ríkið styrkt ýmsar almenningssamgöngur á landinu í gegnum samgönguáætl- un og Vegagerðin hefur haft yfir- umsjón með ráðstöfun fjármuna. Samkvæmt nýja fyrirkomu- laginu, sem er hluti af nýrri tólf ára samgönguáætlun, mun vegur sveitarfélaganna aukast og munu þau skipuleggja almenningssam- göngur á landi. Í því felst fram- kvæmd útboða, val á leiðum og tíðni ferða. Ríkið ver árlega um 300 milljónum króna til þessara mála. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri segir í samtali við Frétta- blaðið að markmiðið með þessum breytingum sé hagræði og bætt þjónusta. „Sveitarfélögin þekkja betur þörfina á hverjum stað og geta stýrt fjármagni betur til að bæta þjónustu og ánægju með kerfið. Sveitarfélögin leggja nú þegar fé í skólaakstur og þess háttar og von er um að finna frekari hagræð- ingu með því að færa þessa hluti alla á sömu hendi.“ Hreinn segir að viðræður standi yfir við landshlutasam- bönd sveitarfélaga um yfirfærslu. Hann vonast til að flest verði í höfn á þessu ári eða því næsta. Halldór Hall- dórsson, for- maður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, segir í samtali við Fréttablað- ið að sambandið hafi ekki mark- að sér stefnu í þessum málum en mörg sveitar- félög hafi þó sýnt áhuga á að taka við þeim. „Mér finnst mikilvægt að yfir- sýnin sé sem mest á hendi heima- manna, þar sem með því er til dæmis hægt að samnýta skólaakst- ur, akstur með fatlaða og almenn- ingssamgöngur.“ Halldór segir sveitarfélögin munu fylgjast grannt með því hvernig reynslan verði hjá þeim sveitarfélögum sem þegar hafa tekið við málaflokknum. „Við munum líka ganga úr skugga um að ríkið skjóti sér ekki undan fjárhagslegri ábyrgð í þessum málum.“ thorgils@frettabladid.is Vilja auka hlut sveitarfélaga í almenningssamgöngum Sveitarfélög á Suðurlandi taka við umsjón almenningssamgangna á landi. Vegamálastjóri vonast til að semja við sveitarfélög um allt land fyrir lok næsta árs. Stefnt að hagræðingu og bættri þjónustu. RÚTUFERÐIR TIL SVEITARFÉLAGA Útboð sérleyfa fyrir rútuferðir er meðal þess sem verður í umsjón sveitarfélaga sem taka yfir umsjón almenningssamgangna á landi. Sveitarfélög á Suðurlandi hafa þegar samið við Vegagerðina um að taka við málaflokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG HREINN HARALDSSON SKÁK Efnilegustu ungu skákmenn landsins munu tefla við gesti og gangandi á skákmaraþoni í Ráð- húsi Reykjavíkur um næstu helgi. Mótherjar ungmennanna munu geta borgað upphæð að eigin vali sem rennur beint í söfnun Rauða kross Íslands vegna hungurs- neyðarinnar í Sómalíu og öðrum löndum Austur-Afríku. Fyrir söfnunarféð verður keypt vítamínbætt hnetusmjör, sem er notað til að hjúkra alvarlega van- nærðum börnum til heilbrigðis. Á hverjum degi dreifir Rauði krossinn mat til þúsunda fjöl- skyldna í Mið- og Suður-Sómal- íu og 5.500 börn njóta umönnunar í fjörutíu næringarmiðstöðvum Rauða krossins og Rauða hálf- mánans víðs vegar um landið. Auk þess rekur Rauði krossinn tuttugu heilsugæslustöðvar í Sómalíu og vinnur að vatnsveituverkefnum á þurrkasvæðum. Skákakademía Reykjavíkur og Skáksamband Íslands standa fyrir maraþonskákinni, sem hefst klukkan tíu á laugardag og stend- ur til klukkan sex síðdegis. Skák- in heldur svo áfram á sama tíma daginn eftir. - sh Börn og unglingar taka þátt í skákmaraþoni í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina: Styrkja soltin börn í Sómalíu NEYÐARÁSTAND Um tólf milljónir Sómala eru taldar í lífshættu vegna þurrkanna sem hafa geisað þar undan- farið. NORDICPHOTOS/AFP DÝRAHALD Landssamband hesta- manna semur nú við Fatahreins- unina Fönn um að taka við not- uðum reiðfatnaði í rauða hliðinu á Keflavíkurflugvelli og þrífa fyrir eigendurna. Með þessu er ætlunin að auð- velda hestamönnum að flytja notaðan reiðbúnað til landsins. Óheimilt er að flytja inn not- aðan reiðfatnað nema að und- angenginni hreinsun og sótt- hreinsun samkvæmt reglum Matvælastofnunar. - jss Notaður reiðfatnaður heim: Hestamenn semja um þrif STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað Helga Magnús Gunnarsson í embætti vara- ríkissaksókn- ara. Helgi Magn- ús er 46 ára og hefur veitt efnahagsbrota- deild Ríkis- lögreglustjóra forstöðu frá árinu 2007 en hefur verið í leyfi frá þeim störfum síðan haustið 2010, þegar hann var kosinn varasaksóknari Alþingis í málarekstrinum gegn Geir H. Haarde. - sh Ögmundur skipar í embætti: Helgi Magnús skipaður vara- ríkissaksóknari HELGI MAGNÚS GUNNARSSON LÖGREGLUMÁL Lögregla bíður nú gagna frá Sjálf- stæðisflokknum áður en saksóknari tekur afstöðu til kæru sem flokkurinn lagði fram vegna meints fjárdráttar sem kom upp hjá Norðurlandaráði í vor, segir Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Málið var kært til efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra, en greint var frá því í fjölmiðlum að grunur léki á að það fé sem starfsmaður Norður- landaráðs er grunaður um að hafa dregið sér sé á annan tug milljóna króna. Eins og fram hefur komið er starfandi innan Norðurlandaráðs svokallaður íhaldshópur sem er samstarfsvettvangur hægri manna á Norður- löndum. Undanfarin ár hefur starfsmaður hópsins verið íslenskur með aðstöðu í Valhöll. Hann lét af störfum fyrr á árinu þar sem Finnar áttu að taka við keflinu. Við mannaskiptin vaknaði grunur um að ekki væri allt sem skyldi varðandi fjármál hópsins. Fyrirspurnir frá Finnlandi leiddu til þess að bók- hald var skoðað og vísbendingar bentu til þess að starfsmaðurinn hefði dregið sér fé. Maðurinn hélt til útlanda eftir að grunurinn vaknaði. Ekki er vitað hvort hann dvelur erlendis eða hér á landi um þessar mundir. Umræddur maður hefur ekki verið kallaður til yfirheyrslu þar sem rannsóknin er ekki hafin, að sögn Guðmundar. Hann segist ekki geta tjáð sig um innihald þeirra gagna sem beðið sé frá Sjálfstæðisflokknum. - jss Lögregla ekki tekið afstöðu til kæru vegna fjárdráttarmáls í Norðurlandaráði: Bíða gagna frá Sjálfstæðisflokknum VALHÖLL Starfsmaðurinn hafði aðstöðu í Valhöll, höfuð- stöðvum Sjálfstæðisflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LEGIÐ MEÐ LJÓNYNJU Úkraínski dýragarðseigandinn Alexander Pylyshenko ætlar að deila búri með ljónum í 35 daga til að vekja athygli á einkareknum dýragörðum. NORDICPHOTOS/AFP Mér finnst mikilvægt að yfirsýnin sé sem mest á hendi heimamanna, þar sem með því er til dæm- is hægt að samnýta skóla- akstur, akstur með fatlaða og almenningssamgöngur. HALLDÓR HALLDÓRSSON FORMAÐUR SAMBANDS ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Morgunhanar Sigmundsdóttir, lýðheilsufræðingur. Verð kr. 13.900 eða í áskrift á kr. 9.900 á mánuði Hefst 8. ágúst Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.