Fréttablaðið - 04.08.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.08.2011, Blaðsíða 24
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR2 Djúpir og dökkir haustlitir eru farnir að láta á sér kræla og minna margir á eðalsteina. Má þar nefna smaragðsgræna, rúbínrauða og safirbáa liti á bæði fötum og fylgihlutum. Útsala 30-50% afsláttur af útsöluvörum Pro-Gastro8 hefur hjálpað þúsundum Íslendinga að koma jafnvægi á meltinguna. Pro-Gastro8 er stútfullt af hjálpsömum góðgerlum ensímum og trefjum. Pro-Gastro8 er fáanlegt á ný! Pro-Gastro 8 fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna. D reifing: G engur vel ehf. Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is ÚTSALAN hafin 25-60% afsláttur TAX FREE FRÁ FIMMTUDEGITIL LAUGARDAGS Kalda, hönnun systranna Katrín Öldu Rafnsdóttur og Rebekku Rafnsdóttur, hefur hlotið mikla athygli undanfarið. Í nýjasta tölublaði breska Vogue birtist mynd af jakka úr lín- unni þeirra Rjúflandi. Einnig birtist hönnun þeirra í sænska tímaritinu Elle fyrir september og í breska blaðinu Time Out í júlí. Kalda hefur verið til sölu hjá bresku versluninni Liberty síðan í júní á þessu ári. Ameríski söngvarinn Steven Tyler bar eyrnalokka hönnuðar- ins Rannveigar Gísladóttur í loka- þætti American Idol og á frum- sýningu Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides í vor. Stílist- ar Rihönnu og Keishu hafa einn- ig keypt lokka Rannveigar fyrir skjólstæðinga sína en hún hefur þó enn ekki séð þær koma fram með þá. Rannveig er búsett í Hollywood og þar hannar hún undir merki sínu Ranna Design. Hún segist selja hönnun sína í lítilli tísku- verslun í Los Angeles. „Þetta er mjög fín búð og þar verslar mikið af frægu fólki og stílistum. Búðin er falin og ekki merkt,“ segir Rannveig og bætir við að Steven Tyler og stílistar Rihönnu og Keishu hafi keypt eyrnalokkana þar. Rannveig segist hafa fengið talsverð viðbrögð eftir að Tyler birtist opinberlega með eyrna- lokk sinn. „Þegar ég var einu sinni með svipaðan eyrnalokk og Steven Tyler var með var ég spurð úti á götu hvort þetta væri eins lokkur og hann var með,“ segir Rannveig glaðlega og finnst gaman að frægt fólk noti hönnun hennar. Rannveig er 25 ára og útskrif- aðist sem fatahönnuður úr Fas- hion Institute of Design and Merchandising síðasta vor. Hún hlaut verðlaun fyrir glæsilegan árangur í náminu við útskrift. Frá útskrift hefur hún meðal annars verið að vinna hjá sænska hönnuðinum Lottu Stensson og einnig hefur hún hannað búninga fyrir tónlistarmyndbönd og stutt- myndir. „Ég var meðal annars að vinna með plötusnúðnum Flying Lotus sem er þekktur hérna úti.“ Hvað er á döfinni hjá þér núna? „Ég ætla reyndar að koma heim núna í haust í eitt ár. Svo ætla ég að fara aftur út og halda áfram í skóla,“ segir Rannveig sem hefur til dæmis hug á að læra meira í búningahönnun. „Ég ætla líka að fara að byggja upp mína eigin línu þegar ég kem heim. Það verður kannski rólegra í öðrum verkefnum þá.“ martaf@frettabladid.is Hannar fyrir Hollywood Eyrnalokkar Rannveigar Gísladóttur fatahönnuðar eru vinsælir meðal stjarnanna í Hollywood. Söngvar- inn Steven Tyler bar lokk í lokaþætti American Idol í vor og á frumsýningu Pirates of the Caribbean. Steven Tyler mætti með eyrnalokk frá Rannveigu á frumsýningu Pirates of the Caribbean í vor. NORDICPHOTOS/GETTY Hönnun Rannveigar Gísladóttur hefur vakið lukku á meðal stjarnanna í Hollywood. MYND/ÚR EINKASAFNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.