Fréttablaðið - 04.08.2011, Síða 24
4. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR2
Djúpir og dökkir haustlitir eru farnir að láta á sér kræla og
minna margir á eðalsteina. Má þar nefna smaragðsgræna,
rúbínrauða og safirbáa liti á bæði fötum og fylgihlutum.
Útsala
30-50%
afsláttur
af útsöluvörum
Pro-Gastro8 hefur hjálpað þúsundum Íslendinga
að koma jafnvægi á meltinguna.
Pro-Gastro8 er stútfullt af hjálpsömum góðgerlum
ensímum og trefjum.
Pro-Gastro8
er fáanlegt á ný!
Pro-Gastro 8 fæst í apótekum, heilsubúðum
og heilsuhillum stórmarkaðanna.
D
reifing: G
engur vel ehf.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
ÚTSALAN
hafin
25-60% afsláttur
TAX FREE FRÁ FIMMTUDEGITIL LAUGARDAGS
Kalda, hönnun systranna Katrín Öldu Rafnsdóttur og
Rebekku Rafnsdóttur, hefur hlotið mikla athygli undanfarið.
Í nýjasta tölublaði breska Vogue birtist mynd af jakka úr lín-
unni þeirra Rjúflandi. Einnig birtist hönnun þeirra í sænska
tímaritinu Elle fyrir september og í breska blaðinu Time Out
í júlí. Kalda hefur verið til sölu hjá bresku versluninni Liberty
síðan í júní á þessu ári.
Ameríski söngvarinn Steven
Tyler bar eyrnalokka hönnuðar-
ins Rannveigar Gísladóttur í loka-
þætti American Idol og á frum-
sýningu Pirates of the Caribbean:
On Stranger Tides í vor. Stílist-
ar Rihönnu og Keishu hafa einn-
ig keypt lokka Rannveigar fyrir
skjólstæðinga sína en hún hefur
þó enn ekki séð þær koma fram
með þá.
Rannveig er búsett í Hollywood
og þar hannar hún undir merki
sínu Ranna Design. Hún segist
selja hönnun sína í lítilli tísku-
verslun í Los Angeles. „Þetta er
mjög fín búð og þar verslar mikið
af frægu fólki og stílistum. Búðin
er falin og ekki merkt,“ segir
Rannveig og bætir við að Steven
Tyler og stílistar Rihönnu og
Keishu hafi keypt eyrnalokkana
þar.
Rannveig segist hafa fengið
talsverð viðbrögð eftir að Tyler
birtist opinberlega með eyrna-
lokk sinn. „Þegar ég var einu
sinni með svipaðan eyrnalokk
og Steven Tyler var með var ég
spurð úti á götu hvort þetta væri
eins lokkur og hann var með,“
segir Rannveig glaðlega og finnst
gaman að frægt fólk noti hönnun
hennar.
Rannveig er 25 ára og útskrif-
aðist sem fatahönnuður úr Fas-
hion Institute of Design and
Merchandising síðasta vor. Hún
hlaut verðlaun fyrir glæsilegan
árangur í náminu við útskrift.
Frá útskrift hefur hún meðal
annars verið að vinna hjá sænska
hönnuðinum Lottu Stensson og
einnig hefur hún hannað búninga
fyrir tónlistarmyndbönd og stutt-
myndir. „Ég var meðal annars að
vinna með plötusnúðnum Flying
Lotus sem er þekktur hérna úti.“
Hvað er á döfinni hjá þér núna?
„Ég ætla reyndar að koma heim
núna í haust í eitt ár. Svo ætla ég
að fara aftur út og halda áfram í
skóla,“ segir Rannveig sem hefur
til dæmis hug á að læra meira í
búningahönnun. „Ég ætla líka
að fara að byggja upp mína eigin
línu þegar ég kem heim. Það
verður kannski rólegra í öðrum
verkefnum þá.“
martaf@frettabladid.is
Hannar fyrir Hollywood
Eyrnalokkar Rannveigar Gísladóttur fatahönnuðar eru vinsælir meðal stjarnanna í Hollywood. Söngvar-
inn Steven Tyler bar lokk í lokaþætti American Idol í vor og á frumsýningu Pirates of the Caribbean.
Steven Tyler mætti með eyrnalokk frá Rannveigu á
frumsýningu Pirates of the Caribbean í vor.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hönnun Rannveigar Gísladóttur hefur vakið lukku á meðal stjarnanna í
Hollywood. MYND/ÚR EINKASAFNI