Fréttablaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 23
KYNNING − AUGLÝSING9. ÁGÚST 2011 ÞRIÐJUDAGUR
Mímir símenntun býður
upp á námsleiðina
Grunnstoðir fyrir fólk sem
ekki er með formlega
grunnmenntun og stríðir
við lestrarerfiðleika.
Grunnstoðir verða nú kennd-ar í fyrsta skipti hjá Mími að sögn Anneyjar Þ. Þorvalds-
dóttur, verkefnastjóra hjá Mími sí-
menntun. „Grunnstoðir er náms-
leið sem samanstendur af tveim-
ur öðrum námsleiðum sem steypt
hefur verið saman í eina, það er
Aftur í nám og Grunnmennta-
skólann,“ segir Anney hjá Mími sí-
menntun. Með samþættingunni
fæst tækifæri til þess að bæta við
þjálfun í notkun gagnlegra tölvu-
forrita, til dæmis Easy Tutor. Auk
þess mun sami náms- og starfs-
ráðgjafinn fylgja hópnum eftir og
styðja frá upphafi til loka.
Anney segir að nemendur fái
einkatíma í les-
blinduleiðrétt-
ingu hjá Dav-
is-ráðgjafa.
„Í f ra m ha ld-
inu hafa nem-
endurnir verið
þjálfaðir í notk-
un aðferðarinn-
ar við íslensku-
og tölvunám,“
upplýsir Anney.
„Í Grunnmenntaskóla er kennd ís-
lenska, stærðfræði, enska og tölv-
ur en einnig sjálfstyrking, náms-
tækni, framsögn og ræðumennska.
Þetta hefur ekki verið sérstaklega
í boði fyrir lesblinda áður en við
ákváðum að laga Grunnmennta-
skólann að þeim hópi,“ segir Anney
og bætir við að lesblindir nemend-
ur geti með þessari nýjung spreytt
sig í fjölbreyttari námsgreinum.
Innt eftir því af hverju ákveð-
ið hafi verið að fara af stað með
Grunnstoðir segir Anney: „Það
hefur komið fyrir að fólk með les-
blindu sem kemur beint inn í
Grunnmenntaskólann á erfitt upp-
dráttar og fer þá í Aftur í nám. Það
er ekki alveg rétta röðin. Þarna fær
það grunninn og getur svo hald-
ið áfram og klárað Grunnmennta-
skólann.“
Anney segir að margir þeirra
sem farið hafa í Aftur í nám hafi
verið með brotna skólagöngu
að baki. „Margir hafa ekki farið
í framhaldsskóla eða eru með
slæma reynslu af námi,“ útskýr-
ir Anney og tekur fram að Grunn-
stoðir snúist mikið til um að byggja
upp jákvætt viðhorf gagnvart námi.
„Þetta snýst um að byggja ein-
staklinginn upp. Nám getur verið
skemmtilegt og allir geta stundað
nám.“
Aðspurð segir Anney að kennt
verði alla morgna, frá mánudegi
til föstudags. Grunnstoðir hefj-
ast 30. september og standa fram
í desember. Skráning stendur yfir.
Grunnstoðir – fyrir
nemendur með lestrarerfiðleika
Anney segir að námsleiðirnar Aftur í nám og Grunnmenntaskólinn hafi verið vinsælar hvor í sínu lagi.
Anney Þ. Þorvalds-
stjóri kynnir nýjung
Mímis, Grunnstoðir.
Menntastoðir er krefjandi námsleið í boði hjá Mími
símenntun. „Nám í menntastoðum er fyrir þá sem
ekki hafa lokið stúdentsprófi en eru orðnir 23 ára og
vilja komast inn í undirbúningsdeildir háskólanna,“
segir Anney Þ. Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá
Mími símenntun.
Menntastoðir hafa bæði staðnám og dreif-
inám. „Þetta er 660 stunda nám sem er mjög stíft.
Það tekur sex mánuði í staðnámi, sem kennt er
allan daginn. Svo ætlum við að bjóða í fyrsta skipti
upp á það í dreifinámi líka, sem er staðnám með
fjarnáms sniði,“ segir Anney og bætir við að þá sé
kennt alla miðvikudaga frá 15 til 19.30 og annan
hvern laugardag frá 9 til 14. Unnin eru verkefni á
milli. „Við erum að stíla inn á fólk sem getur ekki
nýtt sér staðnámið. Dreifinámið tekur tíu mánuði.“
Anney segir að kenndar séu bóklegar greinar, ís-
lenska, enska, stærðfræði, danska, tölvur og upplýs-
ingatækni. Námsmarkmið Menntastoða er að stuðla
að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi
náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni
að sögn Anneyjar. Í náminu er lögð áhersla á að
nemendur læri að læra, efli sjálfstraust og lífsleikni.
Staðnámið hófst í gær en Anney segir að skráning
standi enn yfir, bæði í staðnámið og dreifinámið
sem hefst 9. september.
Jón Fannar Hafsteinsson, fyrrverandi nemandi
Menntastoða, hóf nám eftir nokkurt hlé og sá ekki
eftir því. „Það sem mér er efst í huga núna er þakk-
læti til skólans míns og alls starfsfólks Mímis því að
það hefur breytt lífi mínu til hins betra og hér hefur
mér liðið svo vel.“
Góður undirbúningur fyrir háskóla
Námsmarkmið Menntastoða er meðal annars að stuðla að
jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms.
Menntastoðir er tilvalin námsleið
fyrir þá sem vilja hefja nám að nýju.
Boðið er upp á staðnám 5 daga vikunnar
og dreifnám með fjarnámssniði.
Skráning stendur yfir
í síma 580 1800
Grunnstoðir er nám sem byggir á árangurs-
ríkum kennsluaðferðum fyrir lesblinda.
Næstu námskeið hefjast 30. sept.
Skráning í síma 580 1800
Ofanleiti 2 - 103 Reykjavík - Sími: 580 1800 - www.mimir.is
Pantaðu tíma
hjá náms- og starfsráðgjafa
í síma 580 1800