Fréttablaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 6
30. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150224
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur
birt viðauka við grunnlýsingu dagsett 28. mars 2011 vegna
töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf.
Viðaukann og gögn sem vitnað er til í honum er hægt að
nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105
Reykjavík og á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.
lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna
sem óskað hefur verið að tekin
verði til viðskipta 31. ágúst 2011 er
300.000.000 kr., heildarnafnverð
flokksins eftir þá stækkun er þá
26.684.000.000 kr. Nafnverð hverr-
ar einingar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafn-
greiðslubréf. Bréfin bera fasta 3,75%
ársvexti sem greiddir eru hálfsárslega,
15. febrúar og 15. ágúst ár hvert, í fyr-
sta sinn 15. febrúar 2009 og í síðasta
sinn 15. febrúar 2024. Auðkenni
flokksins á NASDAQ OMX Iceland
hf. er LSS150224 og ISIN númer
IS0000018869.
Reykjavík, 30. ágúst 2011.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
EFNAHAGSMÁL Stjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS) samþykkti á
föstudag sjöttu og síðustu endur-
skoðun sína á samstarfsáætlun
íslenskra stjórnvalda og AGS. Þar
með er formlegu samstarfi Íslands
og sjóðsins lokið.
Í fréttatilkynningu sem AGS
sendi frá sér af þessu tilefni
kemur fram að lykilmarkmið með
samstarfinu hafi náðst og að efna-
hagsbatinn sé hafinn á Íslandi.
„Ísland hefur farsællega
lokið við samstarfsáætlunina.
Lyki lmarkmið hafa náðst:
ríkisfjármálin nálgast það að vera
sjálfbær, gengi krónunnar hefur
náð stöðugleika og fjármálakerfið
hefur verið endurreist,“ segir
Nemat Shafik, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá AGS.
Shafik segir þó óvissu og
ákveðna áhættuþætti hamla efna-
hagsbatanum. Þá geti frekari
seinkanir á fjárfestingarverkefn-
um og versnandi verðbólguhorfur
veikt stöðu hagkerfisins.
Í tilkynningu sinni segir AGS að
nýleg vaxtahækkun Seðlabankans
hafi verið viðeigandi. Vaxtahækk-
unin endurspegli versnandi verð-
bólguhorfur og lækkun sem orðið
hafi á raunvöxtum auk þess að búa
í haginn fyrir losun gjaldeyris-
hafta. - mþl
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir vaxtahækkun Seðlabankans viðeigandi:
AGS segir lykilmarkmið hafa náðst
HÖFUÐSTÖÐVAR AGS Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn segir efnahagsbatann hafinn
á Íslandi.
LÍBÍA, AP Eiginkona og þrjú börn Múammars Gaddafí
eru farin til Alsírs. Utanríkisráðuneyti Alsírs stað-
festi þetta í gær og tilkynnti bæði Sameinuðu þjóð-
unum og uppreisnarstjórninni í Líbíu um það.
Uppreisnarstjórnin í Líbíu hefur beðið NATO um að
vera til staðar í landinu eitthvað áfram eftir að átök-
um lýkur. „Gaddafí er enn fær um að gera eitthvað
skelfilegt á síðustu stundu,“ sagði Mustafa Abdul-
Jalil, yfirmaður bráðabirgðastjórnar uppreisnar-
manna.
Uppreisnarmenn hafa fundið ýmsa muni sem
Gaddafí skildi eftir sig þegar hann flúði úr aðsetri
sínu í höfuðborginni Trípolí, meðal annars ljós-
myndir og skjöl af ýmsu tagi.
Einnig hefur komið í ljós að Abdel Baset al-Meg-
rahi, sem var dæmdur í Lockerbie-málinu í Skot-
landi árið 2001, liggur fyrir dauðanum á heimili
fjölskyldu sinnar í Trípolí.
Hann var látinn laus úr fangelsi árið 2009 af
mannúðarástæðum, þegar læknar töldu hann aðeins
eiga þrjá mánuði ólifaða vegna krabbameins. Þegar
fréttir af láti hans létu bíða eftir sér fóru af stað
sögusagnir um að í raun væri hann við hestaheilsu.
Þær sögusagnir virðast ekki hafa átt við rök að
styðjast. - gb
Uppreisnarmenn vilja NATO áfram í Líbíu eftir að átökum lýkur:
Fjölskylda Gaddafís fór til Alsírs
LÚXUS Í EINKAÞOTU GADDAFÍS Uppreisnarmenn skoða
herlegheitin. NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra segir að allt
sé uppi á borðum varðandi stuðn-
ing Íslands í mars síðastliðnum
við aðgerðir Atl-
antshafsbanda-
lagsins (NATO)
gegn hersveit-
um Gaddafís í
Líbíu. Flokks-
ráðsfundur
Vinstrihreyf-
ingarinnar -
græns framboðs
(VG) ályktaði
um málið um
helgina og beindi því til Alþingis að
skipuð yrði rannsóknarnefnd „til
að rannsaka aðdraganda þess að
Ísland samþykkti þessar aðgerðir“.
„Þetta eru allavega óvenjuleg
vinnubrögð,“ sagði Össur í samtali
við Fréttablaðið, spurður hvort
í þessari ályktun fælist ádeila á
ríkisstjórnina.
Hann bætti því við að öll
afgreiðsla á málinu hefði verið uppi
á borðum og meðal annars rædd á
þingi, í utanríkisnefnd og í ríkis-
stjórn.
„Það er því ljóst að þegar
ákvörðunin var tekin upphaflega
voru engar upplýsingar um það
að VG hefði aðrar skoðanir en ég
á þessu máli. Það lá fyrir yfirlýs-
ing Gaddafís um að fara með eldi
og eimyrju gegn íbúum Bengasí
og hann stóð bókstaflega í borgar-
hliðunum. Þegar ákvörðunin var
svo framlengd [hinn 1. júní] var
hún líka rædd á Alþingi og það
var alveg skýrt að það væri yfir-
gnæfandi meirihluti á þingi með
aðgerðinni. Það var sömuleiðis
rætt í utanríkisnefnd og þar bók-
uðu VG andstöðu sína. En það er
alveg skýrt að ég var ekki viðskila
við vilja Alþingis í þessu máli.“
Össur bætir því við að ráðherrar
VG hefði bókað andstöðu sína við
aðgerðir NATO, en hann hefði sem
utanríkisráðherra haft heimild til
að taka ákvörðun um stuðning.
En er hann mótfallinn stofnun
rannsóknarnefndar um þessa rás
atburða?
„Það eru aðrir en ég sem hafa
eitthvað að fela í þessu máli. Ég er
síður en svo hræddur um að minn
þáttur eða Samfylkingarinnar í
þessu máli verði skoðaður. Ég segi
þinginu aldrei fyrir verkum og ef
þingið vill samþykkja svona álykt-
un stend ég ekki í vegi fyrir því.
Það er hins vegar algjör óþarfi því
að öll gögn málsins liggja fyrir og
allt hefur verið uppi á borðum.“
Mun þetta mál hafa afleiðingar
í samskiptum stjórnarflokkanna?
„Ég mun halda áfram að stíga
minn ástleitna dans við VG þrátt
fyrir þetta.“ thorgils@frettabladid.is
Ráðherra segir allt Líbíu-
málið vera uppi á borðum
Flokksráð VG vill að Alþingi stofni rannsóknarnefnd um aðdraganda þess að Ísland studdi aðgerðir NATO
í Líbíu. Utanríkisráðherra segir að allt sé uppi á borðum. Meirihluti Alþingis hafi stutt aðgerðirnar.
NUTU GÓÐS AF AÐGERÐUM NATO Uppreisnarmenn ráða nú nær öllu í Líbíu, en þeir hefðu trauðla náð því án hjálpar NATO. Utan-
ríkisráðherra segist ekkert hafa að fela vegna stuðnings Íslands við aðgerðir NATO. Flokksráð VG kallaði um helgina eftir því að
rannsóknarnefnd tæki þá atburðarás til skoðunar. NORDICPHOTOS/AFP
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Ég er síður en svo
hræddur um að minn
þáttur eða Samfylkingarinnar
í þessu máli verði skoðaður.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
TRÚMÁL Þrennt hefur verið skipað
í rannsóknarnefnd um kynferðis-
brot og annað ofbeldi innan kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi og
Landakotsskóla. Þau eru Hjördís
Hákonardóttir, fyrrverandi
hæstaréttardómari, sem verður
formaður, Hrefna Friðriksdóttir,
dósent í fjölskyldurétti, og Jón
Friðrik Sigurðsson, prófessor
og yfirsálfræðingur á geðsviði
Landspítalans.
Róbert R. Spanó lagaprófessor
skipaði í nefndina samkvæmt
ákvörðun kirkjunnar.
Nefndin á að rannsaka hvort
vígðir þjónar eða aðrir starfs-
menn hafi gerst sekir um mistök,
vanrækslu eða þöggun, leggja til
úrbætur og vísa málum til lög-
reglu. Hún mun hafa óheftan
aðgang að gögnum kirkjunnar og
taka viðtöl við meint fórnarlömb
og aðra sem málum tengjast.
Niðurstöðum skal skilað eigi
síðar en 1. september 2012. - sh
Rannsóknarnefnd skipuð:
Þrír rannsaka
kaþólskt ofbeldi
STJÓRNSÝSLA Hafin verður á næst-
unni vinna við hættumat fyrir
eldgos á Íslandi. Ríkisstjórn-
in hefur samþykkt tillögu þess
efnis frá Svandísi Svavarsdóttur
umhverfisráðherra.
Í tilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu segir að það taki 15
til 20 ár að klára vinnuna. Fyrsti
áfangi sé hins vegar til þriggja
ára. Þá segir að eldgosin í Gríms-
vötnum og Eyjafjallajökli hafi
undirstrikað nauðsyn þess að
vinna slíkt hættumat enda búist
við áframhaldandi eldvirkni. - mþl
Búist við eldvirkni næstu ár:
Meta hættu
vegna eldgosa
Með hass í tölvutösku
Íslensk kona á sextugsaldri var
handekin við komu Norrænu til
Færeyja í gærmorgun. Við leit fundust
1,5 kíló af hassi í fórum hennar.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá
þessu. Efnin faldi hún í fölsku hólfi í
tölvutösku.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Óttast þú kaup erlendra fjár-
festa á íslenskum jörðum?
JÁ 36%
NEI 64%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú tínt ber í sumar?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN