Fréttablaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 42
30. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR30 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI ÍBV og Stjarnan unnu í gær sannfærandi og glæsilega sigra í leikjum sínum í Pepsi-deild- inni í gær. ÍBV vann Víking 3-1 og heldur því vel í við KR-inga í topp- baráttu deildarinnar en Stjörnu- menn fóru hins vegar nokkuð illa með titilvonir FH-inga með sann- færandi 4-0 sigri í leik liðanna í gær. FH-ingar eru nú sjö stigum á eftir toppliði KR sem á enn leik til góða. Umdeild vítaspyrna gaf tóninn Sigur Eyjamanna á Víkingum var sanngjarn. Víkingar náðu þó að sýna klærnar á köflum í fyrri hálfleik en það voru leikmenn ÍBV sem nýttu færin og skoruðu mörk- in. Nánar tiltekið Tryggvi Guð- mundsson því hann var í allt í öllu. ÍBV komst yfir með marki úr víti á 7. mínútu sem Tryggvi fisk- aði sjálfur og skoraði úr. Hann kom svo liðinu í 2-0 með öðru marki sínu í lok hálfleiksins en það gerði í raun út um leikinn því Víking- ar náðu sér aldrei á strik í seinni hálfleik. Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkings, var afar ósáttur í lokin. „Þar hallaði helvíti mikið á okkur. Ég er afar ósáttur við Tryggva og að hann skyldi hafa látið sig falla. Mér finnst þetta afar leiðinleg- ur blettur á hans spilamennsku,“ sagði Bjarnólfur. Sjálfur viðurkenndi Tryggvi að dómurinn hefði verið rangur. „Ég held að ég hafi frekar spark- að í Mark [Rutgers, leikmann Vík- ings] frekar en hann í mig. Ég stóð upp og hélt að dómarinn ætlaði annaðhvort að dæma hornspyrnu eða útspark,“ sagði hann. „En ég var alls ekki að fiska og alls ekki að biðja um víti. Þetta var mjög skrýtið, allt saman.“ Víkingar fækkuðu í vörninni til að reyna að auka sóknarþungann. Það bar lítinn árangur því Eyja- menn sóttu nánast án afláts. Ian Jeffs tókst þó einum að skora og náðu Víkingar meira að segja að klóra í bakkann í uppbótartíma með glæsilegu skoti Sigurðar Egils Lárussonar. En niðurstað- an er að staða Víkinga er slæm og ekkert annað en fall sem blasir við liðinu. Skutu FH úr titilbaráttunni Stjarnan gerði meistaravonir FH að engu með því að skella nágrönnum sínum úr Hafnar- firði 4-0 á heimavelli sínum í Garðabæ. Stjarnan hóf leikinn af krafti og komst verðskuldað yfir eftir aðeins 11. mínútna leik. Fyrri hálfleikur var hinn fjörugasti og gátu bæði lið bætt við mörkum. Ingvar Jónsson í marki Stjörn- unnar átti stórleik í markinu og að því er virðist löglegt mark var dæmt af Stjörnunni en staðan í hálfleik var 1-0. FH-ingar hófu seinni hálfleik af krafti og ætluðu sér að jafna metin fljótt en misstu Gunnleif markvörð sinn meiddan af leik- velli á 53. mínútu og fengu mark á sig tveimur mínútum síðar. Stjarnan skoraði tvö mörk til viðbótar á næstu átta mínútum og gerði út um leikinn og hefði hæglega getað bætt við mörkum. „Við gerðum okkur seka um mörg barnaleg varnarmistök sem urðu þess valdandi að Stjarnan skoraði þessi fjögur mörk,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn. „Frábær innkoma í þennan leik sem skóp það að við náðum for- ystunni. Það var frábær mark- varsla Ingvars sem hélt okkur inni í leiknum í fyrri hálfleik og upphafi seinni hálfleiks. Svo þegar við skoruðum annað mark- ið þá blómstruðu allir,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, að leiknum loknum. eirikur@frettabladid.is, - gmi KR-völlur, áhorf.: 1652 KR Fram TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 13–14 (4–7) Varin skot Hannes 5 – Ögmundur 3 Horn 9–4 Aukaspyrnur fengnar 16–11 Rangstöður 2–1 FRAM 4–3–3 Ögmundur Kristinss. 6 Daði Guðmundsson 5 (78., Arnar Gunnl. -) Hlynur Atli Magnúss. 7 Allan Lowing 5 Sam Tillen 6 Halldór Hermann 7 Jón Gunnar Eyst. 6 Samuel Hewson 7 Kristinn Ingi Halld. 6 Hólmbert Aron Frið. 3 (45., Jón Orri Ólafss. 5) Steven Lennon 7 *Maður leiksins KR 4–3–3 *Hannes Þór Halld. 8 Magnús Már Lúðv. 6 (64., Dofri Snorras. 5) Aron Bjarki Jósepss. 5 Grétar Sigfinnur Sig. 6 Guðmundur Reynir 6 Bjarni Guðjónsson 5 Egill Jónsson 6 Baldur Sigurðsson 6 Björn Jónsson 4 (54., Gunnar Örn J. 5) Viktor Bjarki Arnarss. 5 Kjartan Henry Finnb. 7 1-0 Kjartan Henry Finnb., víti (81.) 2-0 Sjálfsmark Allans Lowing (86.) 2-1 Arnar Gunnlaugsson (90+1) 2-1 Þorvaldur Árnason (7) VÍKINGUR 1-3 ÍBV 0-1 Tryggvi Guðmundsson, víti (7.) 0-2 Tryggvi Guðmundsson (41.) 0-3 Ian David Jeffs (74.) 1-3 Sigurður Egill Lárusson (90+1) Víkingsvöllur, áhorf.: 921 Dómari: Magnús Þórisson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–20 (6–7) Varin skot Magnús 4 – Albert 4 Horn 2–10 Aukaspyrnur fengnar 14–11 Rangstöður 7–6 Víkingur 4–5–1 Magnús Þormar 5 - Kristinn Jens Bjartmarsson 3, Tómas Guðmundsson 4, Mark Rutgers 4, Sigurður Egill Lárusson 5 - Colin Marshall 6, Halldór Smári Sigurðsson 5 (46., Walter Hjaltested 3), Aron Elís Þrándsson 5 (75., Viktor Jónsson -), Magnús Páll Gunnarsson 3, Björgólfur Takefusa 5 - Helgi Sigurðsson 5 (46., Kristinn Magnússon 4). ÍBV 4–3–3 Albert Sævarsson 7 - Arnór Eyvar Ólafsson 6, Brynjar Gauti Guðjónsson 6, Rasmus Christiansen 7, Matt Garner 7 - Finnur Ólafsson 8 (80., Óskar Zoega -), Þórarinn Ingi Valdimarsson 7 (77., Aaron Spear -), Tony Mawejje 7 (68., Yngvi Magnús Borgþórsson 6) - Ian Jeffs 7, Guðmundur Þórarinss. 7, *Tryggvi Guðmundsson 8 STJÖRNUKONUR geta orðið Íslandsmeistarar í Pepsi-deild kvenna í kvöld vinni þær Aftureldingu á gervigrasinu í Garða- bæ. Það yrði fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins í meistaraflokki í knattspyrnu. Hljómsveitin Dikta ætlar að sýna stuðning sinn í verki og bjóða frítt á leikinn. Leikurinn hefst kl 18.30. „Sýnum nú úr hverju silfurskeiðin er gerð – allir á völlinn!“ voru lokaorðin í fréttatilkynningu Stjörnunnar og Diktu. Þegar við skoruðum annað markið þá blómstruðu allir BJARNI JÓHANNSSON ÞJÁLFARI STJÖRNUNNAR Keflavíkurvöllur, áhorf.: 560 Keflavík Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–10 (7–8) Varin skot Ómar 7 – Fjalar 5 Horn 7–7 Aukaspyrnur fengnar 18–10 Rangstöður 1–1 FYLKIR 4–3–3 Fjalar Þorgeirsson 6 Trausti Björn Ríkharð. 7 Kristján Valdimarsson 5 Valur Fannar Gíslason 6 Kjartan Ág. Breiðdal 5 (56., Tómas Þorst. 5) Ásgeir Börkur Ásgeirs. 6 Hjörtur Hermannsson 5 Baldur Bett 6 Ásgeir Örn Arnþórss. 5 (77., Jóhann Þórhal. -) Ingimundur Níels 7 (85., Rúrik Andri Þor. -) *Albert Brynjar 8 *Maður leiksins KEFLAVÍK 4–3–3 Ómar Jóhannsson 8 Guðjón Árni Anton. 4 Adam Larsson 5 (72., Jóhann Birnir -) Haraldur Freyr Guðm. 6 Viktor Smári Hafst. 4 Einar Orri Einarsson 5 Arnór Ingvi Traustas. 6 (48., Magnús Þór 5) Magnús Þórir Matth. 5 (72., Magnús Sverrir -) Bojan Stefán Ljubicic 4 Hilmar Geir Eiðsson 5 Guðm.Steinarsson 7 0-1 Albert Brynjar Ingason (21.) 1-1 Guðmundur Steinarsson, víti (36.) 1-2 Ingimundur Níels Óskars., víti(44.) 1-2 Vilhjálmur Alvar (6) STJARNAN 4-0 FH 1-0 Garðar Jóhannsson (11.) 2-0 Bjarki Páll Eysteinsson (57.) 3-0 Garðar Jóhannsson (63.) 4-0 Þorvaldur Árnason (65.) Stjörnuvöllur, áhorf.: 1298 Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 17–10 (9–6) Varin Ingvar 6 – Gunnleifur 3, Gunnar 2 Horn 4–5 Aukaspyrnur fengnar 18–12 Rangstöður 1–5 Stjarnan 4–3–3 Ingvar Jónsson 9 - Baldvin Sturluson 6, Tryggvi Sveinn Bjarnason 6, Daníel Laxdal 8, Hörður Árnason Nikolaj Pedersen 7, Atli Jóhannsson 6 (46. Þorvadlur Árnason 7), Jóhann Laxdal 8 (84., Ólafur Karl Finsen -) - Bjarki Páll Eysteinsson 7, Ellert Hreinsson 7 (80., Víðir Þorvarðarson -), *Garðar Jóhannsson 9. FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnleifsson 6 (54., Gunnar Sigurðsson 3) - Guðmundur Sævarsson 5 (73., Gunnar Kristjánsson -), Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 3 (73., Jón Ragnar Jónsson -), Tommy Nielsen 5, Viktor Örn Guðmundsson 4 - Hákon Atli Hallfreðsson 3, Hólmar Örn Rúnarsson 4, Emil Pálsson 5 - Matthías Vilhjálmsson 6, Atli Guðnason 5, Atli Viðar Björnsson 4 KR 16 11 5 0 35-14 38 ÍBV 17 11 3 3 29-16 36 FH 17 9 4 4 33-23 31 Valur 17 8 5 4 25-16 29 Stjarnan 17 7 6 4 35-25 27 Fylkir 17 6 4 7 25-30 22 Breiðablik 17 5 5 7 25-30 20 Þór 17 5 3 9 22-32 18 Grindavík 17 4 6 7 19-29 18 Keflavík 16 5 2 9 20-24 17 Fram 17 2 5 10 13-25 11 Víkingur R. 17 1 6 10 14-31 9 NÆSTU LEIKIR Í DEILDINNI Fram - Breiðablik sun. 11. sept. kl. 14.00 ÍBV - Þór sun. 11. sept. kl. 16.00 Valur - Keflavík sun. 11. sept. kl. 17.00 Grindavík - Stjarnan sun. 11. sept. kl. 17.00 Fylkir - Víkingur R. sun. 11. sept. kl. 17.00 FH - KR sun. 11. sept. kl. 17.00 PEPSI-DEILDIN FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson, Heiðar Helguson, Gylfi Þór Sig- urðsson og Aron Einar Gunnars- son verða ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum á móti Noregi og Kýpur í undakeppni EM. Ólafur Jóhannesson landsliðs- þjálfari hefur kallað inn fjóra nýja menn í hópinn: Steinþór Freyr Þorsteinsson, Matthías Vil- hjálmsson, Hallgrím Jónasson og Guðmund Kristjánsson. Gunnleif- ur Gunnleifsson meiddist síðan í gær og gæti líka þurft að segja sig út úr hópnum. - óój A-landslið karla í fótbolta: Fjórir úr leik FÓTBOLTI KR-ingar unnu 2-1 sigur á lánlausu Framliði í stórskemmti- legum leik í Vesturbænum. Hvort það var seigla eða meistara- heppni þá eru KR-ingar þremur stigum ríkari á meðan Framarar voru sjálfum sér verstir enn eina ferðina. Gestirnir réðu gangi mála í fyrri hálfleik og fengu gullið tækifæri til þess að komast yfir úr vítaspyrnu. Hannes Þór varði hins vegar slaka spyrnu Stevens Lennon. „Ég vildi taka vítið fyrst það var brotið á mér en það voru von- brigði hversu illa ég hitti boltann. Ég hefði betur neglt boltann í mitt markið eða eitthvað,“ sagði Lennon í leikslok. Meira jafnvægi var með liðun- um í síðari hálfleik en á fimm mín- útna kafla tryggðu KR-ingar sér stigin þrjú. Fyrst skoraði Kjartan Henry úr vítaspyrnu eftir að varn- armaður Framara handlék knött- inn. Svo varð Alan Lowing fyrir því óláni að skora sjálfsmark áður en Arnar Gunnlaugsson skoraði sárabótarmark úr aukaspyrnu í viðbótartíma. „Við kláruðum okkar víta- spyrnu, ekki þeir. Þetta var víti sem við fengum, spurning hvort um víti hafi verið að ræða hjá þeim. Við nýttum okkar mögu- leika, þeir ekki og unnum leik- inn 2-1,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sem var ekki sáttur við spilamennsku sinna manna. „Við vorum lélegir í dag, Fram- arar voru góðir og áttu örugg- lega meira skilið eins og svo oft áður í sumar. Þeir hafa bara ekki haft heppnina með sér. Þeir voru okkur mjög erfiðir í dag.“ Fylkismenn fögnuðu sínum fyrsta sigri síðan í júlí þegar þeir unnu 2-1 sigur í Keflavík. „Þetta var langþráður sigur fyrir okkur Fylkismenn,“ sagði Albert Brynj- ar Ingason, besti maður vallarins í gær, eftir leikinn. „Við höfum sett okkur ný markmið og þau eru að hafa gaman af því að spila fótbolta og safna eins mörgum stigum og við getum. Það vita allir að ég er stórhættulegur skallamaður og menn verða bara að dekka mig betur en þetta.“ -ktd, sáp KR og Fylkir komust aftur á sigurbraut í Pepsi-deildinni í gær en Fylkir vann sinn fyrsta sigur síðan í júlí: Slakir KR-ingar kreistu út sigur gegn Fram MIKILVÆGT Hannes Þór fremstur í flokki í fögnuði KR-inga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Stjörnumenn réttu ÍBV hjálparhönd KR og ÍBV eru með dágóða forystu á toppi Pepsi-deildar karla eftir leiki gærkvöldsins. Stjarnan sá til þess með glæsilegum 4-0 sigri á FH að Hafnfirðingar eiga nú litla möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna. VANTAR BARA EITT MARK Í METIÐ Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk í gær og vantar nú bara eitt mark til að jafna markamet Inga Björns Albertssonar. Tryggvi fiskar hér víti á Mark Rutgers í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.