Fréttablaðið - 30.08.2011, Síða 8
30. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
1. Hversu mörgum aðstoðar-
beiðnum sinntu björgunarsveitir á
hálendinu í sumar?
2. Hversu mikið hefur heildar-
raforkukostnaður viðskiptavina OR
hækkað frá því í júní í fyrra?
3. Hversu lengi hefur Svali á FM
957 starfað sem útvarpsmaður?
SVÖR
1. Um 250. 2. 26 prósent. 3. Tuttugu ár.
STJÓRNMÁL Davíð Þorláksson hér-
aðsdómslögmaður var á sunnu-
dag kjörinn
formaður Sam-
bands ungra
sjálfstæðis-
manna næstu
tvö árin.
Davíð er
fæddur og upp-
alinn á Akur-
eyri en búsett-
ur í Reykjavík.
Hann er með
embættispróf í lögfræði frá
Háskóla Íslands og hlaut héraðs-
dómslögmannsréttindi árið 2009.
Davíð sat í stjórn SUS frá 2003
til 2005 og svo aftur frá árinu
2009. Hann hefur verið formaður
Félags sjálfstæðismanna í Vest-
urbæ og Miðbæ og í stjórn full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík. - mþl
Formannskjör hjá SUS:
Davíð kjörinn
nýr formaður
DAVÍÐ
ÞORLÁKSSON
EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur í Banda-
ríkjunum var einungis 1% á árs-
grundvelli á öðrum ársfjórðungi.
Búist hafði verið við 1,3% hag-
vexti.
Þá voru hagvaxtartölur fyrir
annan ársfjórðung í Bretlandi
endurskoðaðar niður. Hagvöxtur
þar mældist 0,7% á ársgrundvelli
á tímabilinu en var 2,5% á sama
tímabili í fyrra. Svipuð þróun er
víða að eiga sér stað í Evrópu og
hefur til að mynda hægt á hag-
vexti í Þýskalandi, Frakklandi og
á Ítalíu. Nokkur lönd standa þó
vel og mælist hagvöxtur 3,7% í
Finnlandi og 5,3% í Svíþjóð. - mþl
Slæmar hagtölur að birtast:
Hagvöxtur víða
að minnka
Samstöðuhópur gegn misrétti
v/kynferðisafbrotamála!
Gagnasöfnun hafin!
„Hefur barnið þitt fengið að njóta vafans?“
1. Hefur Rannsóknarlögregla fellt niður þitt mál?
2. Hefur Ríkissaksóknari fellt niður þitt mál?
3. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum með rannsókn
málsins?
4. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum gagnvart þeim lögum
er lúta að kynferðisafbrotamálum?
5. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum með dóminn.
6. Hefur þú orðið var/vör við að eitthvað eftirlit sé með
manni sem lokið hefur afplánun?
Hafir þú/þið svör við ofantöldum spurningum, endilega hafið
samband!
Facebook síða „Samstöðuhópur gegn misrétti..“ í skilaboð.
Skrifið mér á netfangið: kristinsn@simnet.is og/eða
Pósthólf 8915 - 108 Reykjavík - merkt: „Samstöðuhópur“
Heimasíða: www.kristinsnaefells.com
Kær kveðja, Kristín Snæfells Arnþórsdóttir
F U L L U M T R Ú N A Ð I H E I T I Ð !
EFNAHAGSMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
og Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, eru gagnrýnir á málflutning
ríkisstjórnarinnar í tengslum við
lok formlegs samstarfs Íslands og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
Þeir segja ríkisstjórnina hafa
brugðist í endurreisn efnahags-
lífsins.
„Þegar menn fara yfir það lið
fyrir lið hverju átti að áorka í
upphafi komast menn að annarri
niðurstöðu en ríkisstjórnin,“ segir
Bjarni og bætir við að upphafleg
markmið um afnám gjaldeyris-
hafta, lága verðbólgu og hagvöxt
hafi ekki náðst fram.
Þá segir Bjarni fyrirheit um að
kjarasamningar endurspegluðu
ástandið í efnahagslífinu hafa
verið brotin. Loks hafi verið geng-
ið mun lengra í skattahækkunum
en AGS hafi lagt til og of lítið gert
til að koma nýrri fjárfestingu af
stað.
„Mér finnst því miður fátt
benda til þess að efnahagslífið
sé farið af stað, að minnsta kosti
ekkert í líkingu við það sem ætti
að vera,“ segir Sigmundur Davíð
og bætir við: „Við fórum á mis
við þá uppsveiflu sem kom víð-
ast hvar fram í kjölfar fyrri hluta
fjármálakrísunnar. Jafnvel þótt
aðstæður hafi að mínu mati verið
á margan hátt heppilegar fyrir
nýja fjárfestingu með lágt gengi
krónunnar og nægt vinnuafl til
reiðu.“
Þá segir Sigmundur ríkisstjórn-
inni hafa mistekist að nýta þau
tækifæri sem voru til staðar og
raunar gert illt verra með því að
viðhalda stöðugri pólitískri óvissu
og með því að flækja skattkerfið
og hækka skatta ítrekað. - mþl
Telja árangur stjórnar minni en af hefur verið látið:
Tækifærum glutrað
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
BJARNI
BENEDIKTSSON
GEIMVÍSINDI Nýtt verkefni Geim-
ferðastofnunar Bandaríkjanna,
NASA, gæti markað kaflaskil
í skilningi mannkyns á eðli,
gerð og upphafi tunglsins og
bergreikistjarna í sólkerfi okkar.
GRAIL-verkefnið svokallaða
felst í því að tveimur könnunar-
förum verður komið á braut um
tunglið, þaðan sem þau munu
senda nákvæmar upplýsingar um
segulsvið tunglsins.
Meðal þess sem fram mun koma,
gangi verkefnið að óskum, er upp-
bygging tunglsins allt frá kjarna
að skorpu.
Fyrir utan það sem læra
má um þróun og uppbyggingu
annarra reikistjarna verður
þetta verkefni ómetanleg fróð-
leiksnáma fyrir tunglferðir
framtíðarinnar.
Könnunarförunum tveimur,
Grail-A og Grail-B, verður að
öllum líkindum skotið á loft hinn
8. september og er gert ráð fyrir
því að þau verði komin á braut
um áramót. Eftir það taka við 82
dagar af rannsóknum, en að því
loknu munu tækin lækka flugið
og lenda á yfirborði tungslins.
thorgils@frettabladid.is
Tunglið kortlagt með meiri
nákvæmni en nokkru sinni
NASA undirbýr spennandi verkefni þar sem segulsvið tunglsins verður kortlagt með áður óþekktri ná-
kvæmni. Gæti gefið vísbendingar um innri gerð tunglsins og uppruna jarðar og annarra bergreikistjarna.
SPENNIÐ BELTIN Könnunarförin eru komin um borð í eldflaugina sem mun koma
þeim út í geim í átt að tunglinu. MYND/NASA
KORTLEGGJA TUNGLIÐ Könnunargeimförin
tengjast á sporbaug um tunglið og senda gögn
til jarðar. MYND/NASA
■ Tunglið er í 360.000 til
405.000 kílómetra fjar-
lægð frá jörðu.
■ Tunglið er 1.737
kílómetrar í þvermál
og 2.159 kílómetrar í
ummál.
■ Þyngdaraflið á tunglinu
er 1/6 af því sem er á
jörðu þannig að 90 kílóa
maður á jörðu yrði 15
kíló á tunglinu.
■ Tunglið fjarlægist jörðina
um 3,8 sentimetra á ári.
■ Tunglið snýr alltaf sömu
hlið að jörðu.
■ Sólarhringurinn á
tunglinu jafngildir um 30
sólarhringum á jörðu.
Heimild: NASA
Fróðleiksmolar um
tunglið
MATVÆLI „Þegar loksins var búið
að framlengja opna tollkvótann í
nautakjöti var búið að selja öðrum
aðila nautakjötið sem ég ætlaði
að kaupa erlendis. Ég þurfti þess
vegna að byrja að því að leita að
kjöti aftur. Og það er ekki eins og
menn úti í heimi bíði eftir þessum
viðskiptum.“
Þetta segir Leifur Þórsson,
fram kvæmda stjóri Ferskra
kjötvara, vegna fréttatilkynn-
ingar frá sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu um að opið
sé fyrir innflutning nautakjöts á
lækkuðum tollum. Þar segir að
upphaflega hafi
átt að vera opið
fyrir innflutn-
inginn frá 10.
júní til 30. júlí.
Heimild til inn-
flutnings hafi
hins vegar verið
framlengd til
30. september.
„Það er alveg
rétt að opið er fyrir innflutning
ennþá en hann getur verið erfið-
leikum háður þegar hann er mjög
tímabundinn. Í fyrsta lagi þarf
að sækja um leyfi fyrir hvern
einasta framleiðanda ef maður
hefur ekki flutt inn frá honum
áður. Þegar slíkt samþykki hefur
fengist, sem getur tekið tvær til
þrjár vikur, þarf kjötið svo að vera
í frysti í 30 daga áður en það er
flutt inn. Ég benti strax á, hinn 9.
júní, að þegar heimildin væri veitt
í svona stuttan tíma, eins og gert
var þegar tollkvótinn átti bara að
vera opinn í rúman mánuð, væri
ekki hægt að flytja kjötið inn. Það
var hins vegar ekki tekin ákvörð-
un um framlengingu fyrr en 14.
júlí. Þá byrjaði leit að kjöti á ný.“
- ibs
Framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara gagnrýnir reglur um kjötinnflutning:
Naumur tími er hindrun
LEIFUR ÞÓRSSON
SAMGÖNGUR Sölu á strætókortum
á sérstöku tilboði fyrir veturinn
sem nálgast lýkur á morgun. Eins
mánaðar, þriggja mánaða og níu
mánaða strætókort sem keypt
eru fyrir miðnætti á morgun hafa
þriðjungi lengri gildistíma en
hefðbundið er.
Mánaðarkort gildir því í fimm
vikur, þriggja mánaða kort í fjóra
mánuði og níu mánaða kort í tólf
mánuði.
Hægt er að kaupa strætókort
eða strætómiða á vefsíðu Strætó,
straeto.is, og fást þá kortin send
heim í pósti svo ekki þarf að gera
sér ferð á sölustað. - mþl
Tilboðinu lýkur á morgun:
Strætókort á
tilboðsverði
STRÆTÓ Um hríð hefur verið hægt að
kaupa strætókort og -miða á vefsíðu
Strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILSA Sameinuðu þjóðirnar vör-
uðu í gær við því fuglaflensan
gæti dreift sér upp á nýtt. Har-
aldur Briem sóttvarnalæknir
telur ekki mikla hættu á að fugla-
flensan berist hingað.
Hann segir ekki um nýtt til-
brigði flensunnar að ræða heldur
sé þetta H5N1-tilbrigðið sem hafi
verið þekkt lengi. Hann segir
Íslendinga ekki þurfa að hafa
áhyggjur í bili. Það séu helst
þeir sem vinni við fuglarækt eða
umgangist veika fugla í Asíu sem
þurfi að hafa áhyggjur.
SÞ varar við fuglaflensu:
Lítil hætta á
flensunni hér
VEISTU SVARIÐ?