Fréttablaðið - 30.08.2011, Side 24
KYNNING − AUGLÝSINGheilsa ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 20112
Við erum að setja á mark-að stóra vítamínlínu frá Bretlandi, undir merkj-
um vítamínrisans Vitabiotics,“
segir Sandra K rist jánsdótt ir,
vörumerkjastjóri hjá Icepharma,
umboðsaðila Vitabiotics á Íslandi.
„Þetta eru markhópatengd
vítamín sem hugsuð eru þannig
að fólk geti tekið eina vítamíntöflu
sem inniheldur allt sem viðkom-
andi þarf á að halda,“ segir Sandra
og útskýrir það nánar: „Allar töfl-
urnar eru með sama steinefna- og
fjölvítamíngrunninn, þannig að
allir fá nauðsynleg grunnvítamín
sem líkaminn þarfnast, en hver
og ein tegund inniheldur svo alls
kyns aukavítamín og bætiefni sem
henta þörfum markhópsins hverju
sinni,“ upplýsir Sandra og nefn-
ir sem dæmi að til séu töflur fyrir
konur og karla á öllum aldri, heil-
ann og minnið, íþróttafólk, ófrísk-
ar konur, börn, konur á breytinga-
skeiði og svo mætti lengi telja.
Sandra segir að allir geti fund-
ið vítamín við sitt hæfi innan Vita-
biotics-línunnar. „Fyrirtækið sem
framleiðir vítamínin er breskt og
vítamín þess eru þau mest seldu
þar í landi. Fyrirtækið hefur tvisv-
ar sinnum hlotið konunglegu verð-
launin „The Queen´s Awards for
Enterprise“ í Bretlandi. Einstök
vítamín frá Vitabiotics hafa einnig
hlotið ýmis verðlaun, til dæmis frá
Boots-keðjunni í Bretlandi,“ segir
Sandra og bætir við að vítamínin
séu öflug og traustsins verð. Vita-
biotics hefur einnig stutt vel við
bakið á afreksfólki í íþróttum í
Bretlandi og eru fjölmargir þeirra
á leið á Ólympíuleikana í London
2012 og segja vítamínin hafa skilað
sér auknum árangri.
Vitabiotis-vítamínin fást í öllum
apótekum og einnig í völdum mat-
vöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu.
Verðlaunavítamín
á markað á Íslandi
Vítamínlínan Vitabiotics er nýkomin á markað hér á landi. Vítamínin eru þau mest seldu
í Bretlandi en þau eru hugsuð þannig að ein tafla innihaldi allt sem fólk þarf á að halda.
Sandra segir að allir geti fundið vítamín við sitt hæfi innan Vitabiotics-vítamín-
línunnar. MYND/GVA
1. Ráðfærðu þig við lækni
Áður en rokið er af stað er ekki
vitlaust að heimsækja heimilis-
lækninn. Sérstaklega ef þú ert of
þung(ur), ert hjartveik(ur), kom-
in(n) yfir fertugt eða hefur aldrei
hlaupið neitt áður.
2. Farðu rólega af stað
Ef þú ætlar ekki að gefast upp
vegna meiðsla eða þreytu strax
á fyrstu vikunum skaltu byrja á
rólegri göngu.
3. Fylgstu með hjartslættinum
Ekki horfa bara á vigtina. Mældu
púlsinn áður en þú ferð fram úr á
morgnana og fylgstu með hvernig
hlaupin styrkja hjartað.
4. Haltu hlaupadagbók
Skrifaðu niður hverja æfingu,
hversu langt var hlaupið, hve lang-
an tíma það tók og hversu hratt var
hlaupið. Það virkar hvetjandi.
5. Hlustaðu á líkamann
Harðsperrur og þreyta eru eðli-
legir fylgifiskar hlaupa. Ef þig fer
að svima eftir æfingar eða finnur
verki í brjósti, baki eða fótleggj-
um á æfingum skaltu staldra við
og jafnvel leita læknis.
6. Hlauptu hægt
Ef þú getur sagt „ég hefði nú kom-
ist lengra“ í lok æfingarinnar
hefurðu hlaupið á réttum hraða.
7. Æfðu reglulega og borðaðu
hollt
Hlauptu þrisvar til fjórum sinnum
í viku í hálftíma, frekar en einu
sinni í viku í klukkutíma. Lélegt
mataræði eyðileggur árangurinn.
8. Hitaðu upp
Hitaðu upp vöðvana með göngu
og léttu skokki í nokkrar mínútur.
Teygðu áður en þú leggur af stað.
Undir lok æfingar skaltu hægja á
þér og enda á gönguhraða áður en
þú teygir aftur.
9. Fáðu hlaup á heilann
Gerðu hlaupin að daglegum hluta
lífs þíns. Vertu áskrifandi að
hlaupatímariti og kíktu í búðir sem
selja hlaupaföt og búnað. Taktu
þátt í hlaupakeppnum.
10. Settu þér markmið og
fagnaðu þegar þú nærð þeim
Settu þér raunhæf markmið og
mælanleg.
Út að hlaupa
Útihlaup eru ódýr leið til betri heilsu. Áður en farið er af
stað er gott að undirbúa sig vel. Eftirfarandi tíu ráð er að
finna á www.runaddicts.net
Farðu hægt af stað og settu þér raunhæf
markmið. NORDICPHOTOS/GETTY
www.runaddicts.net
„Cross Bells er ein af þeim nýj-
ungum sem við bjóðum upp á
núna en það er blanda af Cross-
Fit og ketilbjöllum,“ segir Haf-
steinn Daníelsson, annar eigenda
Veggsports. Cross Bells-tímarn-
ir verða kenndir í hádeginu og
aftur seinnipartinn þriðjudaga
og fimmtudaga og klukkan 10 á
laugardögum.
„Ketilbjöllur eru uppruna-
lega rússneskt æfingaform þar
sem notaðar eru þungar bjöllur
og allir stærstu vöðvar líkamans
þjálfaðir samtímis, en CrossFit er
alhliða hreyfing. Það er skemmti-
leg tilbreyting að blanda þessu
saman,“ segir Hafsteinn, sem
einnig hefur blandað styrktaræf-
ingum inn í spinning-tímana í
Veggsport til að auka fjölbreytni.
„Þetta eru mjög vinsælir
tímar því þótt það sé gaman að
hjóla er tilbreyting að hafa æf-
ingar með. Hjólað er í fjörutíu
mínútur áður en hópurinn færir
sig inn í sal og gerir styrktaræf-
ingar fyrir maga, rass, læri og
bak og armbeygjur. Við blöndum
þannig saman styrk og brennslu.
Skvassið er þó alltaf vinsælast
hjá okkur, en við erum stærstir
í því.
Fólk kemur beint inn og spilar
en við lánum fólki spaða og bolta.
Skvass geta allir spilað, konur og
karlar, unglingar og hjón,“ segir
Hafsteinn og vill að lokum benda
á heimasíðu stöðvarinnar, www.
veggsport.is, þar sem nánari upp-
lýsingar er að finna um tíma og
æfingakerfi.
Bjóða fjölbreyttari tíma
Hafsteinn Daníelsson og Hilmar Gunnarsson blanda saman æfingum og búa til fjölbreyttari tíma í Veggsporti. MYND/GVA
FÆST Í APÓTEKUM
Mest seldu vítamín í Bretlandi sem hafa hlotið hin virtu verðlaun
„The Queen´s award for enterprise“
Kynntu þér vítamínin nánar á Facebook síðunni okkar.
VITABIOTICS VÍTAMÍNLÍNAN
Vítamín og bætiefni fyrir mismunandi þarfir einstaklinga