Fréttablaðið - 30.08.2011, Síða 36
30. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Stórsveit Reykjavíkur hefur sent frá sér
geisladiskinn HAK. Á honum er að finna
sjö íslenskar tónsmíðar fyrir stórsveit, en
höfundar tónlistarinnar eru þeir Agnar
Már Magnússon, Hilmar Jensson og
Kjartan Valdemarsson.
„Þetta er mjög flott tónlisti, alvarleg og
metnaðarfull en alls ekki óaðgengileg,“
segir Sigurður Flosason saxófónleikari,
einn meðlima Stórsveitarinnar.
Verkin á disknum eru úrval úr stærri
efnisskrám sem stórsveitin pantaði og
frumflutti á árunum 2007-10; heilum
tónleikadagskrám með verkum hvers hinna þriggja
höfunda.
Verkin á disknum verða öll flutt á útgáfutónleikum sem haldnir verða í
Hörpu annað kvöld klukkan átta.
„Þar spilum við í salnum Kaldalóni, sem okkur fannst henta okkur
best,“ segir Sigurður. Tónleikarnir eru hluti af Djasshátíð Reykjavíkur.
Þess má geta að stjórnandi sveitarinnar á tónleikunum er hinn danski
Nikolaj Bentzon, fyrrverandi aðalstjórnandi Stórsveitar Danska
ríkisútvarpsins. - sbt
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Hefur verið iðin við tónleikahald undanfarin ár en spilar í
fyrsta sinn í Hörpu annað kvöld.
Stórsveit Reykja-
víkur með nýja plötu
Alþjóðlega leiklistarhátíðin
Lókal verður sett í fjórða
sinn á fimmtudaginn. Hátíð-
inni vex stöðugt fiskur um
hrygg og hefur fest sig í
sessi sem einn helsti vett-
vangur tilraunaleikhúss á
Íslandi.
Þrettán viðburðir eru á dagskrá
Lókal, alþjóðlegrar leiklistarhátíð-
ar í Reykjavík, sem verður hald-
in fjórða árið í röð dagana 1. til 4.
september. Ragnheiður Skúladóttir
er framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar og einn stofnenda hennar. Hún
segir undirbúning hátíðarinnar
verða smurðari
me ð hverju
árinu.“
„Maður verð-
ur vanari með
hverju ári. Engu
að síður er und-
irbúningurinn
alltaf tímafrek-
ur. Mesta vinn-
an er í því að
setja dagskrána
saman, sem kallar á mikil ferða-
lög, og hátíðin vekur sífellt meiri
athygli erlendis,“ segir Ragnheið-
ur.
Leikhópar frá Íslandi, Noregi,
Finnlandi og Kanada setja upp sýn-
ingar en sérstök áhersla verður lögð
á kanadíska leiklist í ár. Íslenskir
og vestur-íslenskir listamenn leiða
saman hesta sína í verkinu The
Island, sem er samvinnuverkefni
Lókal og listahátíðarinnar Núna/
Now í Winnipeg.
„Núna/Now hefur boðið íslensk-
um listamönnum úr öllum áttum á
hátíðina hjá sér,“ segir Ragnheið-
ur. „Fyrir tveimur árum komu
fulltrúar þaðan á Lókal-hátíðina
og það fór svo vel á með okkur að
við ákváðum að reyna að gera eitt-
hvað saman. Afraksturinn af því er
Island, sem Friðgeir Einarsson og
Ingibjörg Magnadóttir unnu ásamt
Arne MacPherson and Freya Olaf-
son.“ Frá Montréal kemur hins
vegar leikhópurinn 2boysTV, með
sýningu sem byggir á textum Jean
Cocteau.
Vegur Lókal hefur farið vaxandi
með hverju árinu og hátíðin fest sig
í sessi sem einn helsti vettvangur
tilraunaleikhúss á Íslandi. Í fyrra
sóttu um þúsund gestir hátíðina,
sem var um 70 prósentum meira
en á fyrstu hátíðinni.
„Við vonumst auðvitað til að
fá enn fleiri í ár, þótt það sé ekki
endilega markmið í sjálfu sér,“
segir Ragnheiður, sem telur aukna
aðsókn ekki síst helgast af áhuga
almennra leikhúsáhorfenda. „Til að
byrja með vorum við dálítið upp-
tekin af því að fá fólk úr „bransan-
um“ til að koma og sjá það nýjasta
og ferskasta sem er í gangi. Við
höfum hins vegar tekið eftir að það
er líka nokkuð stór hópur almennra
leikhúsgesta sem hefur áhuga á að
kynna sér öðruvísi leikhúsverk en
eru yfirleitt í boði og reynum ekki
síður að höfða til þeirra.“
Spurð hvort áhrifa þessarar til-
raunakenndu hátíðar sé farið gæta
í stóru atvinnuleikhúsunum hér
á landi segir Ragnheiður ávallt
ákveðið samspil í gangi.
„Það getur hins vegar verið erf-
itt að festa fingur á það. Við lítum
á Lókal sem mikilvægan þátt í
grasrótarstarfi, sem er yfirleitt
undanfari þess sem síðar kemur.
Við höfum þó vissulega dæmi um
leikstjóra sem hafa leikstýrt í stóru
húsunum og hafa orðið fyrir bein-
um áhrifum af sýningum sem þeir
hafa séð á Lókal. Og eins auðvitað
með listamennina sem koma fram,
þetta hefur áhrif á þá á öllum stig-
um með einum eða öðrum hætti.“
Auk leikhópanna sýna útskrift-
arnemar í Fræðum og framkvæmd
lokaverkefni frá því í vor, auk þess
sem fulltrúar frá Núna/Now gera
ráð fyrir hátíðinni. Sýningar verða
fluttar í átta leikhúsum víðs vegar
um borgina en bækistöðvar hátíð-
arinnar eru í Tjarnarbíói. Hægt er
að kaupa sérstakan hátíðarpassa á
Lókal á fimmtán þúsund krónur,
sem gildir á sjö sýningar. Nánari
upplýsingar má finna á lokal.is.
bergsteinn@frettabladid.is
FJÓRÐI Í LÓKAL
VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU Sýning leikhópsins Ég og vinir mínir og Fjalla-Eyvindur í upp-
setningu leikhópsins Aldrei óstelandi fara aftur á fjalirnar á Lókal-hátíðinni.
MYND/HULDA SIF ÁSMUNDSDÓTTIR
HELSTU VERK Á LÓKAL:
School of Transformation: Herbergi 408 og Mobile Homes
(Ísland/Noregur).
The Island: Friðgeir Einarsson, Ingibjörg Magnadóttir, Arne MacPherson og
Freya Olafson (Ísland(/Kanada).
Verði þér að góðu: Ég og vinir mínir (Ísland).
Fjalla-Eyvindur: Aldrei óstelandi (Ísland).
Verk Produksjoner: The Eternal Smile (Noregur).
Oblivia: Entertainment Island (Finnland).
Phobophilia: 2boysTV (Kanada).
RAGNHEIÐUR
SKÚLADÓTTIR
DAVID SUZUKI Kanadíski vísinda-
maðurinn og umhverfisverndarsinn-
inn mætir á RIFF ásamt Sturlu
Gunnarssyni.
Heimildarmynd vestur-
íslenska kvikmyndagerðar-
mannsins Sturlu Gunnars-
sonar um vísindamanninn
David Suzuki verður sýnd á
Alþjóðlegri kvikmyndahá-
tíð í Reykjavík. Báðir verða
þeir viðstaddir sýningu
myndarinnar.
Kanadíski vísindamaðurinn
David Suzuki er einna þekkt-
astur fyrir sjónvarpsþætti
sína The Nature of Things,
sem sýndir hafa verið í yfir
40 löndum. Hann er virkur í
baráttunni fyrir því að þjóðir
reyni að sporna við loftslags-
breytingum af mannavöldum.
Í myndinni er farið yfir feril
hans og hugmyndafræði.
Suzuki mun sitja sérstakt
málþing sem efnt hefur verið
til í tilefni af komu hans.
Sturla Gunnarsson hefur
leikstýrt bæði heimildar-
myndum og kvikmyndum,
þar á meðal Bjólfskviðu, sem
tekin var hér á landi fyrir
nokkrum árum.
Náttúrumögn
Suzuki á RIFF
NIKOLAJ BENTZON kemur fram í Norræna húsinu í kvöld klukkan hálftíu. Nikolaj var lengi píanisti í stórsveit
Danska ríkisúvarpsins og stjórnandi hennar um sjö ára skeið. Í kvöld er hann einn við píanóið og hljóðnemann, en hann
er þekktur fyrir að hafa í frammi gamanmál og söng á tónleikum sínum. Tónleikarnir eru hluti af Djasshátíð Reykjavíkur.
Kennsla í Borgartúni 1, hefst 5. september.
Kennsla í Borgarleikhúsinu, hefst 12. september.