Fréttablaðið - 30.08.2011, Qupperneq 38
30. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Norska rokkhljómsveitin Jitney er
á leiðinni til Íslands í stutta tón-
leikaferð. Þetta verður í annað
sinn sveitin kemur hingað til lands
en síðast spilaði hún á hátíðinni
Aldrei fór ég suður í fyrra.
„Þeir tónleikar gengu mjög vel
og það var flott að spila á Íslandi,“
segir gítarleikarinn og söngvar-
inn Ari Þorsteinsson. Hann fædd-
ist á Ísland en hefur búið í Nor-
egi frá tveggja ára aldri. Jitney,
sem hefur spilað víða í Noregi að
undanförnu, er að undirbúa sína
fyrstu plötu, sem er væntanleg á
næsta ári.
Tónleikarnir á Íslandi verða
fernir. Fyrst spilar sveitin í
Paddy‘s í Keflavík á föstudaginn,
daginn eftir verður hún á Bakkusi
í Reykjavík og því næst í Hinu hús-
inu og á Faktorý 6. og 7. september.
Þar spila einnig Swords of Chaos
og Ofvitarnir. - fb
Jitney til Íslands
JITNEY Frá vinstri: Bassaleikarinn Ruben
Aksnes, Ari Þorsteinsson og trommarinn
Kim Christer Hylland.
Fjölmargir lögðu leið sína á skemmtistaðinn Nasa
um helgina þegar danssveitin GusGus hélt tvenna
tónleika.
Sveitin hefur átt miklum vinsældum að fagna
í sumar og nýjasta breiðskífa hennar, Arabian
Horse, hefur setið ofarlega á vinsældalistum.
Hljómsveitarmeðlimirnir Högni, Stebbi Steph,
Urður, Daníel Ágúst og Biggi veira stóðu sig vel
og tónleikagestir voru með bros á vör allt kvöldið.
Fjör á GusGus
SKEMMTU SÉR Þær Oddný, Anna Kristín, Viktoría og Elísabet Alma
skemmtu sér mjög vel á tónleikunum.
BROSMILDAR Þessar ungu dömur brostu framan í
myndavélina.
AÐDÁENDUR Mundi fatahönnuður og vinur hans voru í
góðu stuði.
HLJÓMSVEITARMEÐLIMIRNIR Þeir Biggi veira og Högni gáfu sér tíma
til að svala þorstanum á tónleikunum. MYNDIR/ELÍS PÉTURSSON
Rokkarinn Ozzy Osbourne á oft í erfiðleikum með að kom-
ast á milli landa vegna eiturlyfjanotkunar á sínum yngri
árum. Osbourne var á kafi í vímuefnum í fjörutíu ár
en hefur verið laus við þau í töluverðan tíma. „Að gera
heimskulega hluti leiðir af sér að eitthvað heimskulegt
kemur fyrir mann. Ég var tekinn fyrir að reykja jónu
fyrir löngu og á enn erfitt með að komast til og frá
sumum löndum,“ skrifaði hann í pistli sínum í
The Sunday Times Magazine. „Mörg okkar gera
heimskulega hluti þegar við erum ung en við sem
höfum lært af þeim þurfum að kenna börnunum
okkar að þeir hafa afleiðingar.“
LÆRIR AF MISTÖKUM Osbourne hefur
lært af mistökunum sem hann gerði á
sínum yngri árum.
Eiturlyfin tefja Ozzy
2
Ljósanæturball Óla Geirs
verður hans stærsta til
þessa. Í boði verða reykvél-
ar, blöðrur, svaka hljóðkerfi
og sjálfur Páll Óskar.
„Ég hef haldið mörg stór böll en
ég held að það sé óhætt að segja að
þetta verði það stærsta,“ segir tón-
leikahaldarinn Ólafur Geir Jóns-
son, betur þekktur sem Óli Geir.
Hann ætlar að halda risastórt
ball á Ljósanótt í Reykjanesbæ
á laugardagskvöld. Það verður í
Stapanum og heitir einfaldlega
Ljósanæturballið. Páll Óskar,
Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, Haffi
Haff og fleiri koma fram, auk þess
sem Óli sjálfur þeytir skífum í
hliðarsal ásamt Sindra BM.
„Þetta verður alvöru. Það er
rosa mikill spenningur í Kefla-
vík og það eru allir að tala um að
loksins sé eitthvað almennilegt að
gerast á Ljósanótt,“ segir Óli Geir.
„Það verður „sikk“ hljóðkerfi, eitt
það besta á landinu, og nóg af ljós-
um og reykvélum og blöðrum.“
Forsala miða fer fram í Gallerí
Keflavík og í Skór.is í Kringlunni
og Smáralind.
Spurður hvort uppákoman
verði eitthvað í líkingu við Dirty
Night-böllin hans með tilheyrandi
undirfatasýningu ungra meyja
og annarra djarfra atriða neitar
hann því. „Fólk áttar sig ekki á
hvað maður hefur haldið mikið
af kvöldum fyrir alla aldurshópa.
Menn gleypa alltaf það neikvæða.
Þetta Dirty Night er bara eitt af
tuttugu „konseptum“ sem ég er
með,“ segir hann.
Óli lofar flottri stemningu,
þar sem eldri ballgestir í bland
við yngri geti lyft sér upp eftir
Ljósanóttina. Skortur hafi verið á
stóru balli sem þessu því hingað
til hafi fólk eftir miðnætti farið
annað hvort í heimapartí eða á
skemmtistaði í miðbæ Keflavík-
ur sem eru smærri í sniðum. „Ég
og Palli [Páll Óskar] höfum hald-
ið ball á Ljósanótt síðustu fjög-
ur ár. Við höfum alltaf verið á
skemmistöðum niðri í bæ og það
hefur alltaf verið alveg grillað.
Þannig að okkur langaði að fara
með þetta nokkrum skrefum ofar
og taka alvöru Nasa-ball eins
og hann hefur verið með. Hann
hefur aldrei verið með svoleiðis
ball í Stapanum og ef það er ein-
hver dagur á árinu til að gera
þetta í Keflavík er þetta klárlega
dagurinn.“
Óli Geir hefur haft nóg að gera
í sumar í skemmtanahaldinu og
ferðast út um allt land með partíin
sín. Hann ætlar hvergi að slaka
á í haust. „Ég er að fara af stað
með Smirnoff-túr í kringum land-
ið. Haffi Haff er með mér í því,“
segir hann, en þeir félagar ætla
að ferðast á tíu staði á landinu og
gera allt vitlaust. freyr@frettabladid.is
Grillað partí hjá Óla Geir
STÆRSTA BALLIÐ Óli Geir lofar rosalegu stuði á Ljósanæturballinu sem verður haldið í Stapanum á laugardagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MÁNUÐIR eru liðnir síðan fingurinn á Morrissey brotnaði eftir að hundur beit hann. Fingurinn hefur
ekki gróið nógu vel og því þarf söngvarinn að gangast undir frekari læknismeðferð á næstunni.