Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 2
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Gunnar, tollið þið ekki í
matartískunni?
„Við gerum það ekki meðan við
getum ekki flutt inn það sem ekki er
hægt að framleiða á Íslandi.“
Gunnar Skúli Guðjónsson er fram-
kvæmdastjóri Subway á Íslandi. Subway
getur ekki lengur haft staðlaðar kjúklinga-
bringur á matseðli sínum vegna kjötskorts
á Íslandi og hárra tolla á innfluttu kjöti.
FERÐAÞJÓNUSTA Meira en sextán þús-
und ferðamenn hafa skoðað gesta-
stofu með minjum og myndum
frá eldgosinu í Eyjafjallajökli sem
starfrækt hefur verið við bæinn
Þorvaldseyri í sumar. Stofan var
opnuð 14. apríl, ári eftir að gosið
hófst.
Áhuginn á gosstofunni kemur
Ólafi Eggertssyni, bónda á Þor-
valdseyri, ekki
á óvart. „Við
vorum farin
að skynja mik-
inn áhuga á því
að fræðast um
gosið og afleið-
ingar þess, sér-
staklega hér þar
sem gosið hafði
mikil áhrif,“
segir Ólafur. „En
þetta hefur gengið framar vonum og
við erum mjög þakklát fyrir það.“
Hann segir ferðamennina ánægða
með að heimamenn sem upplifðu
áhrif gossins á eigin skinni segi frá
þeirra upplifun. Guðný A. Valberg,
eiginkona Ólafs, hefur ásamt dætr-
um þeirra borið hitann og þungann
af rekstri gestastofunnar, en Ólaf-
ur hefur einnig lýst upplifun sinni
af gosinu fyrir ferðamönnum þegar
vel stendur á.
Í gestastofunni má finna myndir
og aðrar minjar úr gosinu, auk þess
sem 20 mínútna heimildarmynd
Sveins M. Sveinssonar um gosið er
sýnd í bíósal með 60 sætum.
„Myndin er mjög vinsæl, margir
kaupa hana og taka með sér heim,“
segir Ólafur. „Við skynjum það oft
að fólk verður fyrir miklum áhrif-
um við að sjá hana, sumir taka þetta
mjög inn á sig og skilja ekki hvernig
við komumst í gegnum þetta.“
Útlendingar eru í miklum meiri-
hluta þeirra sem sækja gestastof-
una heim, en Íslendingar sýna henni
einnig talsverðan áhuga, segir Ólaf-
ur.
Stofan verður opin út septem-
ber, og jafnvel eitthvað í október ef
aðsókn verður nægilega mikil. Þá
verður hægt að opna sérstaklega
fyrir hópa. Gestastofan verður svo
opnuð aftur næsta sumar.
Ólafur segir gestastofuna ágæta
aukabúgrein. „Þetta er töluverð
búbót, en við leggjum líka mikið á
okkur til að halda þessu gangandi.
En þetta var augljóslega gott tæki-
færi og engin ástæða til að láta það
fram hjá sér fara. Auðvitað kost-
aði talsvert mikið að koma þessu í
gang, en það hefur verið þess virði.“
brjann@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
6
7
4
... og rjómi
VERSLUN Þýska byggingavöru-
verslanakeðjan Bauhaus skoðar
nú alvarlega að opna verslun á
Íslandi. Fyrirtækið hugðist opna
verslun hér á landi í lok árs 2008
en frestaði þeim áætlunum um
ótiltekinn tíma þegar bankahrun-
ið skall á.
„Við teljum að það sé að nást
stöðugleiki aftur á Íslandi en
það var forsenda þess að við
skoðuðum opnun,“ segir Mads
Jörgensen, forstjóri Bauhaus á
Norðurlöndunum, og bætir við:
„Þar sem við eigum byggingu
sem er til reiðu fyrir starfsemi
væri eðlilegt fyrir okkur að meta
núna hvenær rétti tíminn sé til
að opna.“
Jörgensen heimsótti Ísland
nýverið ásamt Kenn Pedersen,
sölu- og markaðsstjóra Bauhaus
á Norðurlöndunum. Komu þeir
hingað í þeim erindagjörðum
að meta stöðuna í hagkerfinu
og hafa haft opnun til skoðunar
síðan.
Þegar bankahrunið varð haust-
ið 2008 hafði Bauhaus reist um
20 þúsund fermetra húsnæði
undir Úlfarsfelli við Vesturlands-
veg. Þá höfðu tugir starfsmanna
verið ráðnir til fyrirtækisins en
þeim var öllum sagt upp í kjölfar
hrunsins. - mþl
Forstjóri Bauhaus á Norðurlöndunum segir stöðugleika hafa náðst á Íslandi:
Bauhaus íhugar að opna verslun
BAUHAUS Stórhýsi Bauhaus við Vestur-
landsveg hefur að mestu staðið autt frá
því að framkvæmdum við það lauk um
mitt ár 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur-
lands hefur frestað ákvörðun um
refsingu ungrar konu sem dæmd
var fyrir manndráp af gáleysi.
Konan var ákærð fyrir að
hafa laugardaginn 27. nóvem-
ber 2010 ekið bifreið yfir gang-
braut í Borgarnesi án nægjanleg-
ar aðgæslu og of hratt miðað við
aðstæður þar sem útsýni var tak-
markað vegna sólar sem var lágt
á lofti og skein beint í augu henn-
ar. Afleiðingarnar urðu þær að
önnur kona sem gekk yfir gang-
brautina varð fyrir bifreiðinni og
hlaut við það mikla áverka, þar á
meðal hryggbrot er leiddi til rofs á
mænu. Konan lést nær samstund-
is.
Unga konan játaði brot sitt
afdráttarlaust. Við mat á sök
hennar hafði dómurinn í huga að
við aksturinn þar sem slysið varð
blindaðist hún vegna sólar sem
skein beint í augu hennar. Þessar
aðstæður hafi verið erfiðar fyrir
ungu konuna, sem er óreyndur
ökumaður. Auk þess er litið til
þess að ákærða er ung að árum
og með hreint sakavottorð. Unga
konan var svipt ökurétti í sex mán-
uði frá birtingu dómsins. - jss
Ung kona blindaðist af sól og ók á aðra konu á gangbraut í Borgarnesi:
Dæmd fyrir manndráp af gáleysi
BORGARNES Í nóvember í fyrra lést kona eftir að hafa orðið fyrir bíl þegar hún var að
ganga yfir gangbraut.
FÓLK Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra og eiginmaður hennar,
Bjarni Bjarnason, eiga von á
tvíburum. Katrín mun eiga um
mánaðamótin
febrúar/mars.
Katrín og
Bjarni gengu
í hjónaband í
apríl. Fyrir eru
aðrir tvíburar í
fjölskyldu ráð-
herrans, því
Katrín á sjálf
tvíburabræður,
Stefán og Lúð-
vík Júlíussyni.
Ætla má að Katrín muni taka
sér frí frá ráðherrastörfum á
fyrri hluta næsta árs. Nafna
hennar, Katrín Jakobsdóttir, er
nú í barneignarleyfi frá störfum
menntamálaráðherra, en hún var
fyrsti ráðherra Íslandssögunnar
sem varð barnshafandi í emb-
ætti. Svandís Svavarsdóttir gegn-
ir starfi hennar á meðan. - sh
Iðnaðarráðherra með barni:
Katrín gengur
með tvíbura
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
Mikill áhugi á að
fræðast um eldgosið
Yfir sextán þúsund gestir hafa heimsótt gestastofu við bæinn Þorvaldseyri með
myndum og minjum frá gosinu í Eyjafjallajökli í sumar. Mikill áhugi hjá ferða-
mönnum sem vilja vita sem mest um eldgosið og áhrif þess á bændur og búalið.
VEL SÓTT Ferðamenn geta horft á heim-
ildarmynd um gosið í Eyjafjallajökli
í gestastofunni, og sumir verða fyrir
miklum áhrifum af henni segir Ólafur
Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri.
MYND/ÓLAFUR EGGERTSSON
ÓLAFUR
EGGERTSSON
Sumir taka þetta
mjög inn á sig og
skilja ekki hvernig við kom-
umst í gegnum þetta.
ÓLAFUR EGGERTSSON
BÓNDI Á ÞORVALDSEYRI
STJÓRNMÁL Kvótafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar, verði það að
lögum, mun hafa meiri áhrif
á samfélag Vestmannaeyja en
nokkur annar atburðir í sögunni,
nema ef vera skyldu Tyrkjaránið
1627 og eldgosið 1973. Þetta segir
í umsögn bæjarráðs Vestmanna-
eyja um frumvarpið.
Að mati ráðsins munu um
hundrað manns, sem starfa við
veiðar og vinnslu í Eyjum, missa
vinnuna og með afleiddum störf-
um megi gera ráð fyrir að um tvö
hundruð störf glatist. Forsendur
á annað hundruð fjölskyldna
fyrir búsetu þar muni bresta og
því væri mikil fólksfækkun fyrir-
séð. - sh
Kvótafrumvarpið skekur Eyjar:
Jafnast á við
Tyrkjaránið og
eldgosið 1973
ASKA Jörðin á bænum Þorvaldseyri var þakin ösku eftir eldgosið í Eyjafjallajökli.
Ferðamenn sem skoða gestastofu við bæinn geta tekið með sér ösku til minningar
um heimsóknina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Væntingavísitala
Gallup lækkaði í ágúst, þriðja mán-
uðinn í röð. Vísitalan lækkaði um
12 stig í mánuðinum og mælist nú
50,1 stig.
Vísitalan hefur ekki mælst lægri
á þessu ári og er nú heilum 20 stig-
um lægri en hún var í ágúst í fyrra
sem var hæsta gildi frá hruni.
Væntingavísitalan mælir vænt-
ingar neytenda um þróun efna-
hags- og atvinnumála. Gildi yfir
100 merkir að fleiri séu bjartsýnir
en svartsýnir en gildi undir 100
merkir að fleiri séu svartsýnir. - mþl
Væntingavísitala Gallup:
Væntingavísi-
talan lækkar
SAMGÖNGUR Samgönguráðherrar
Norðurlandanna og Eystrasalts-
ríkjanna ræddu hvernig bregð-
ast megi við öskuskýjum frá eld-
gosum og stjórn flugumferðar í
kringum þau á fundi í Reykjavík
í gær.
Fundinn sátu samgönguráð-
herrar Íslands, Finnlands, Sví-
þjóðar, Eistlands, Litháen og
Álandseyja, auk fulltrúa frá
Danmörku, Noregi og Lettlandi,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu.
Á fundinum var einnig rætt
um aukna samvinnu um rann-
sóknir á umhverfisvænum sam-
göngum, og aukna áherslu á
flutninga á sjó og með járnbraut-
um. - bj
Norrænir ráðherrar funda:
Ræddu eldgos
og flugumferð
EFNAHAGSMÁL Tæplega tuttugu
og sexþúsund einstaklingar eru í
alvarlegum vanskilum hér á landi
en þeim hefur fjölgað um tæp
tíu prósent frá áramótum, sam-
kvæmt tölum frá Creditinfo
25.518 einstaklingar voru í
alvarlegum vanskilum um síð-
ustu mánaðarmót, en það merkir
að kröfur hafa verið í vanskilum í
90 til 180 daga, og oft hafa málin
farið fyrir dóm.
Einstaklingum í slíkum skulda-
vandræðum hefur fjölgað jafnt
og þétt frá árinu 2008, eða um
tíuþúsund. Hlutfall einstaklinga í
alvarlegum vanskilum er hæst á
Reykjanesi en lægst á Norðvest-
urlandi. Fjölmargt ungt fólk er í
alvarlegum vanskilum, níu pró-
sent fólks á aldrinum 18 til 29 ára
og fimmtán prósent fólks á aldr-
inum 30 til 39 ára. - hh
Fólki í vandræðum fjölgar:
Tæplega 26.000
eru í alvarleg-
um vanskilum