Fréttablaðið - 31.08.2011, Page 12
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR12
Múslimar á Íslandi fagna Eid al-Fitr
Fögnuðu
föstulokum
Hátíðin Eid al-Fitr var haldin í Menningarsetri mús-
lima á Íslandi í gær, þar sem lokum föstumánaðar-
ins helga, Ramadan, var fagnað. Á annað hundrað
karla, kvenna og barna komu þar saman í gleði og
þakklæti. Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Frétta-
blaðsins, tók meðfylgjandi myndir af hátíðarhöld-
unum.
GJAFIR Hefð er fyrir því að börn fái litlar gjafir á þess-
ari merku hátíð.
GEFA GJAFIR Hér fær eitt barnanna gjöf úr hendi bænaprestsins Ahmads Taha
Seddeeq.
BÍÐA AF SÉR BÆNIRNAR Kvenþjóðin beið ásamt börnum í hliðarherbergi á maðan karlarnir lögðust á bæn.
HÁTÍÐARSTUND Gleði barnanna var fölskvalaus þegar þau tóku á móti gjöfunum.
VEISLA Eftir hátíðina var boðið upp á veitingar. Konurnar, sem áður höfðu þurft að bíða eftir mönnum sínum, voru fyrstar að
kræsingunum.
KOMIÐ AÐ SNÆÐINGI Þegar bænastund var lokið og búið að deila gjöfum til barnanna féllust menn í faðma. Nú var föstunni formlega lokið og komið að því að
matast duglega.