Fréttablaðið - 31.08.2011, Page 18
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
58
Ástkær eiginkona mín og besti vinur,
móðir, tengdamóðir, amma og systir,
Jóhanna M.
Aðalsteinsdóttir
Hjallahlíð 19b, Mosfellsbæ,
sem andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 23. ágúst
sl., verður jarðsungin föstudaginn 2. september frá
Grafarvogskirkju kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en bendum á Minningarsjóð Karitas í síma
551 5606 milli kl. 08.30 og 10.00 eða netfangið
karitas@karitas.is.
Björn Júlíusson
Unnur Björnsdóttir Ágúst Helgi Jóhannesson
Erla Björnsdóttir Guðmundur Þór Reynisson
Birna Björnsdóttir Sigursteinn Norðfjörð Kristjánsson
Anna Lilja Björnsdóttir Hallgrímur Jónas Ingvason
Sædís, Örvar, Tómas, Reynir Þór, Björn Emil,
Jóhanna Iðunn.
Anna Björk Aðalsteinsdóttir, Lárus S. Aðalsteinsson
Magnús Róbert
Ríkarðsson Owen
flugstjóri.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug við andlát og minningarathöfn
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður,
mágs og frænda.
Dorothy Butler Owen
Róbert Leó Magnússon Owen
John Magnusson Owen
Jacob Magnusson Owen
Magnus Liam Magnusson Owen
Ríkarður Owen Alda S. Björnsdóttir
Magni Ríkarðsson Owen
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir
Sylvía Rós Ríkarðsdóttir Owen
Hildur Margrét Ríkarðsdóttir Owen
Hulda Cathinca Guðmundsdóttir Stefán H. Finnbogason
Jón Sigurður Magnússon
Marteinn Helgi Þorvaldsson
Elín Guðlaug Stefánsdóttir
Hanna Guðrún Stefánsdóttir
Stefán Huldar Stefánsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, fóstursonur,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Markússon
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sléttuvegi 17, 103 Reykjavík,
f. 16. september 1929, sem lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 22. ágúst 2011,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
1. september kl. 13.00.
Ingiríður (Inga) Árnadóttir
Guðríður Guðbrandsdóttir
Guðríður St. Sigurðardóttir
Guðbrandur Sigurðsson Rannveig Pálsdóttir
Einar Sigurðsson Elfa Lilja Gísladóttir
Antoníus Þ. Svavarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og styrk
við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Gunnars Þórs Ólafssonar
Eikjuvogi 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu og
líknardeild Landspítalans í Kópavogi ásamt læknum
og starfsfólki á 11 B fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Sigríður Haraldsdóttir
Birgir Þór Gunnarsson Ásta Karen Rafnsdóttir
Gerða Gunnarsdóttir Guðmundur Arnar Jónsson
Lára Guðrún Gunnarsdóttir
Gunnar Þór, Íris Ósk, Tara Sif, Arna Rán, Jón Gunnar
og langafabörn.
OLGA GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR rithöfundur er fædd þennan dag árið 1953.
„Mér finnst ekki nægileg virðing borin fyrir börnum, viðhorfum
þeirra og þörfum.“
„Ég byrjaði á rannsókninni 1995 þann-
ig að hún er orðinn unglingur,“ segir
Linda Björk Ólafsdóttir lyfjafræðing-
ur um doktorsverkefni sitt sem hún ver
í dag við Háskóla Íslands. Það fjallar
um meltingarfærakvilla. Helstu niður-
stöður þess sýna að ristilkrampi er mun
algengari kvilli hér á landi meðal ungs
fólks en annars staðar á Vesturlöndum,
einkum meðal kvenna.
Linda Björk er lyfjafræðingur í
grunninn þótt hún starfi ekki við þá
grein heldur í eigin rekstri, óskyldum
heilbrigðisgeiranum. Hún kveðst því
hafa unnið að doktorsritgerðinni í hjá-
verkum, oftast á stofuborðinu heima og
gleðst yfir því að hún skuli komin í eina
bók. En hvað varð til þess að hún lagði
í þessa vinnu?
„Þetta byrjaði þannig að kandídats-
verkefni mitt í lyfjafræðinni var rann-
sókn á tíðni ristilkrampa meðal ungs
fólks á Íslandi. Í framhaldinu setti ég
upp stærri rannsókn, ásamt tveimur
læknum og við keyrðum hana af stað
1996. Risastór spurningalisti var send-
ur út til 2.000 manns sem valdir voru
af handahófi. Listinn fór til sama hóps
tíu árum seinna og 800 manns svöruðu
báðum listunum. Rannsóknin kemur inn
á marga þætti en kvillarnir sem ég er
að rannsaka skapa langvarandi verki og
vanlíðan þó enginn deyi af þeim. Margt
bendir til að þeir séu tengdir streitu,“
segir Linda Björk og bætir við að lítið
sé um lyf sem virki á þessa sjúkdóma.
„Besta ráðið er að auka þekkingu meðal
fólks þannig að það læri inn á einkennin
og breyti lífsstílnum,“ segir hún.
Þegar hafa birst greinar um niður-
stöður rannsóknar Lindu Bjarkar og
hún segir þær hafa vakið eftirtekt í
alþjóðasamfélaginu. „Það eru í raun
bara þrjár aðrar rannsóknir sem hafa
verið birtar um svipað efni í heimin-
um á síðustu árum. Þetta er sú fjórða
sem er svona víðtæk og hægt er að bera
saman við þær.“
Andmælendur við vörnina í dag
verða Lars Agréus, prófessor við Kar-
olinska Institutet í Stokkhólmi, og dr.
Guðjón Kristjánsson, sérfræðingur í
meltingarlækningum og yfirlæknir
við Speglunardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Linda Björk segir
Agréus þekktan á sínu sviði og hafa
birt eina af þeim þremur rannsóknum
sem hún getur borið sína saman við.
Að sjálfsögðu ætlar Linda Björk svo
að gera sér dagamun þegar doktors-
gráðan er í höfn. „Það verður veisla
fyrir fjölskyldu og vini, alla sem hafa
komið að þessu verki og fagna með
mér þessum áfanga,“ segir hún og
bætir við: „Þetta verður skemmtileg-
ur dagur.“ gun@frettabladid.is
LINDA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR: VER DOKTORSRITGERÐ Í LÍF- OG LÆKNAVÍSINDUM
Rannsóknin er orðin unglingur
VERÐANDI DOKTOR Linda Björk hefur unnið mikið að verkefninu við stofuborðið heima og gleðst yfir að það skuli nú vera komið í eina bók.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Málverkin Ópið og Madonna eftir norska
snillinginn Edvard Munch komu í leitirnar
þennan dag árið 2006 eftir að hafa verið
týnd í tvö ár. Þau voru í sæmilegu ástandi,
að sögn sérfræðinga.
Grímuklæddir byssumenn réðust inn
í Munch-safnið í Ósló um hábjartan dag
tveimur árum fyrr og rændu málverkunum.
Síðan hafði ekkert til þeirra spurst, þrátt
fyrir að þrír menn hafi verið dæmdir í
tengslum við ránið. Höfuðpaurarnir gengu
þó enn lausir. Óslóarborg hafði lofað sem
samsvarar 22 milljónum íslenskra króna í
fundarlaun.
Sérfræðingar Munch-safnsins gengu
úr skugga um að málverkin væru ófölsuð
og reyndist svo vera. Örlítil rifa var á öðru
þeirra og jaðar á hinu hafði skemmst
lítillega. Lögregla taldi meistaraverkin hafa
verið í Noregi síðan þeim var rænt.
ÞETTA GERÐIST: 31. ÁGÚST 2006
Ópið finnst eftir mikla leit
Merkisatburðir
1919 Fyrsta listsýning á Íslandi er opnuð almenningi í barna-
skólanum í Reykjavík. 90 verk eftir 15 listamenn eru sýnd.
1919 Leikrita- og ljóðskáldið Jóhann Sigurjónsson deyr í Dan-
mörku, 39 ára að aldri.
1955 Langt suðvestur í hafi, um 100 mílur úti af Reykjanesi,
sjást borgarísjakar á reki.
1980 Á Fljótsdalshéraði finnst silfursjóður mikill, talinn frá land-
námsöld.
1992 Stærsta og íburðarmesta skemmtiferðaskip, sem lagst
hefur við bryggju í Reykjavík er bundið í Sundahöfn.
1994 Lengsta skák í sögu Íslands endar með jafntefli eftir 183
leiki. Hún er milli Jóhanns Hjartarsonar og Jóns Garðars
Viðarssonar.
1997 Díana prinsessa af Wales og Dodi Al-Fayed deyja í bílslysi í
París.
AFMÆLI
JÓHANNES
JÓNSSON,
kaupmaður
og athafna-
maður, er 71
árs.
VERN-
HARÐUR
LINNET fjöl-
miðlamaður
er 67 ára.
INGIBJÖRG
STEFÁNS-
DÓTTIR
jógakennari er
39 ára.
ÖRN
ARNARSON
sundmaður er
þrítugur.