Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 24
KYNNING − AUGLÝSINGfyrirtækjaþjónusta MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 20114
Stórum hluta lífs okkar
eyðum við í vinnunni og
því skiptir máli að hafa
gaman af starfinu. Til að
líða vel í vinnunni er gott
að hafa eftirfarandi atriði í
huga.
1. Vertu viss um
að starfið henti þér.
Fyrsta skrefið til að bæði þér og
fólkinu í kringum þig líði vel í
vinnunni er að þér líki við starfið.
Vertu viss um að þig langi í stöð-
una áður en þú sækir um og þú
getir hugsað þér að sinna starfinu
um lengri tíma.
2. Vertu jákvæð(ur).
Vingjarnlegt viðmót skapar gott
andrúmsloft. Brostu og náðu
augnsambandi við vinnufélaga
þína á göngunum og sýndu áhuga
á þeirra málum. Vertu skemmti-
leg(ur), kvartaðu ekki og forðastu
að slúðra.
3. Axlaðu ábyrgð.
Það er undir sjálfri/sjálfum þér
komið hver frami þinn í starfi
verður. Ekki dvelja í starfi þar
sem þú nærð ekki að þroska hæfi-
leika þína – það er ávísun á leiða
og óyndi. Talaðu við yfirmanninn
um hverju þú gætir bætt við þig
og hvar kraftar þínir nýtast best.
Ef það skilar ekki árangri ættirðu
að íhuga að leita að annarri vinnu
sem á betur við þig.
4. Eigðu samskipti
við yfirmanninn
Talaðu reglulega við yfirmann
þinn um væntingar hans til þín
og láttu hann vita af markmiðum
þínum og hvernig verkefnin þín
standa. Þannig sýnirðu að þér er
treystandi fyrir mikilvægum verk-
efnum.
5. Blandaðu geði
Eyddu tíma með vinnufélög-
unum utan vinnutíma. Skráðu
þig í vinnustaðaliðið í fótbolta
eða stingdu upp á leikjum til að
leika í hádegishléinu. Haltu upp
á afmæli og skipuleggðu íþrótta-
keppnir eða matarboð þar sem
allir leggja í púkkið.
Fylgirðu þessum ráðlegging-
um ætti þér að þykja skemmti-
legt að mæta í vinnuna á hverjum
morgni. Sjá www.lifeoptimizer.org
Brostu til vinnufélaganna
Markmið bankans er að veita sem besta þjónustu og hafa allar boðleið-
ir sem stystar,“ segir Lárus Sig-
urðsson, útibússtjóri MP banka í
Borgartúni, og bætir við að í mark-
hópi bankans séu bæði fólk og
fyrirtæki. Á fyrirtækjamarkaði er
aðaláhersla lögð á lítil og meðal-
stór fyrirtæki ásamt því að vera
viðskiptabanki númer tvö fyrir
stærri fyrirtæki.
„Undanfarin tvö ár hefur MP
banki byggt upp viðskiptabanka-
starfsemi sína með mjög góðum
árangri og rekur bankinn nú tvö
útibú, annað í Ármúla 13a, þar
sem jafnframt eru höfuðstöðvar
bankans, og hitt í Borgartúni 26,
auk öflugs þjónustuvers og net-
banka. Við leggjum okkur fram
um að þekkja fyrirtækin sem eru
hjá okkur. Starfsemi og stærð
þeirra er eins misjöfn og þau eru
mörg. Allt frá einstaklingsrekstri
upp í fyrirtæki með hundruð
starfsmanna í mörgum löndum.“
MP banki býður upp á fjöl-
breytta þjónustu, m.a. ávöxtun
innlána, gjaldeyrisviðskipti, kred-
it- og debetkort, innheimtuþjón-
ustu og fjármögnun fyrirtækja.
Fjármögnun getur m.a. tekið til
endurfjármögnunar eldri skulda,
endurskipulagningar eða fjár-
mögnunar fyrir fyrirtæki sem eru
að koma ný inn á markaðinn.
„Frá því við komum inn á mark-
aðinn höfum við lagt mikið upp úr
því að halda því góða orðspori sem
bankinn hefur áunnið sér. Fyrir-
tæki í dag þurfa á því að halda að
ákvarðanataka innan bankanna
sé skjót og að svör fáist skjótt og
vel. Við höfum starfsfólk sem
er mjög reynt á þessu sviði og er
meðalstarfsaldur starfsmanna á
viðskiptabankasviði í kringum
tuttugu ár og því býr það að mik-
illi reynslu og þekkingu.“
Lárus leggur áherslu á að það sé
auðvelt að skipta um banka og að
það eigi ekki að vera hindrun fyrir
neinn. „Þegar fyrirtæki hefur tekið
ákvörðun um að færa viðskipti sín
til MP banka aðstoða viðskipta-
stjórar okkar við viðskiptaflutn-
inginn og gera hann eins auðveld-
an og mögulegt er,“ segir Lárus að
lokum.
Stuttar boðleiðir og persónuleg
ÞJÓNUSTA Í MP BANKA
MP banki hefur frá stofnun lagt áherslu á persónulega þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Stuttar boðleiðir, skjót ákvarðanataka og góð
þjónusta hefur að sögn Lárusar Sigurðssonar, útibússtjóra MP banka í Borgartúni, aukið markaðshlutdeild MP banka jafnt og þétt frá stofnun.
„Þegar fyrirtæki hefur tekið ákvörðun um
að færa viðskipti sín til MP banka aðstoða
viðskiptastjórar okkar við viðskipta-
flutninginn og gera hann eins auðveldan
og mögulegt er,“ segir Lárus Sigurðsson,
útibússtjóri MP banka í Borgartúni.
MYND/GVA
Brostu til samstarfsfólks þíns, það skilar
sér í betri líðan á vinnustað.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ef þér finnst þú ekki geta þroskað hæfileika þína í vinnunni skaltu íhuga annað starf.
NORDICPHOTOS/GETTY
Vaktavinna hefur truflandi
áhrif á líkamsklukkuna og
margir hafa velt því fyrir
sér hvernig haga megi vökt-
um þannig að þær valdi sem
minnstum óþægindum hjá
vaktavinnufólki. Á vef Vinnu-
eftirlitsins, www.vinnueftirlit.
is, er hægt að fá svör við ýmsum
spurningum. Þangað er hægt
að senda spurningar, en ein slík
undir flipanum „spurt og svar-
að“ hljómar svona: „Dregur
bjart ljós úr slæmum áhrifum
vaktavinnu?“
Í stuttu máli er svarið já. Er
vísað þar til greinar sem birt-
ist í Scandinavian Journal of
Work Environment & Health
um áhrif bjarts ljóss á óþægindi
sem tengjast vaktavinnu. Niður-
stöður rannsakenda voru þær
að skammvinn, regluleg birtu-
meðferð bætti líðan kvenna sem
ynnu vaktavinnu.
Þátttakendur í rannsókninni
voru sjálfboðaliðar, hjúkrun-
arfræðingar á fjórum sjúkra-
húsum í suðurhluta Finnlands.
Þeir voru látnir taka sér tuttugu
mínútna hvíld reglulega fjórum
sinnum á hverri vakt og voru þá
baðaðir afar sterku ljósi; lamp-
arnir voru staðsettir í augnhæð
og gáfu frá sér 5.000 luxa birtu.
Meginniðurstöður rannsókn-
arinnar voru að birtumeðferð af
þessu tagi drægi úr óþægindum
og yki vellíðan meðal kvenna,
einkum meðal þeirra sem fyndu
til árstíðabundinna skapsveiflna
og vanlíðunar. Niðurstöðurnar
voru í samræmi við það sem
aðrir höfðu áður séð, en ýmsir
höfðu þá beitt lengri birtumeð-
ferð hverju sinni. Stutt birtu-
meðferð hefði þann kost að unnt
væri að koma henni að innan
venjulegra vakta, en fæstir
hefðu aðstæður til að sitja tím-
unum saman í meðferð á meðan
á vinnutíma stæði.
Áhrif birtu á vaktavinnu
Vaktavinna hefur truflandi áhrif á líkamsklukkuna.