Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2011
www.enskafyriralla.is
Skipuleggjum einnig námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga.
Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði
fyrir byrjendur og lengra komna. Á hverri önn sækja
um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflest
konur á aldrinum 40 ára og eldri.
Við bjóðum upp á: 10 getustig með áherslu á tal.
Styrkt af starfsmenntasjóðum.
Skráning í síma 8917576 og erlaara@gmail.com
Þú ert velkominn í heimsókn og tekur ákvörðum
eftir fyrsta tíma hvort þú viljir taka þátt.
Enskuskóli Erlu Ara
Grensásvegur 16, sími 553 7300. Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17.
VERÐSPRENGJA – ÚTSÖLULOK
5 VERÐ: 1000 – 1500 – 2000 – 2500 – 3000
1500 20001000 2000 200025001500 2500 1000
SOHO/MARKET Á FACEBOOK
Hélène Magnússon, hönnuður og
eigandi prjónaritsins prjonakerl-
ing.is, er nýkomin úr prjónaferð
yfir Fimmvörðuháls. Hún fór fyrir
tólf manna fjölþjóðlegum hópi og
afrekaði það að prjóna heila peysu
á leiðinni.
„Í gamla daga þegar fólk mátti
engan tíma missa var ekki óal-
gengt að konur jafnt sem karlar
prjónuðu á meðan gengið var á
milli bæja eða hugað að skepnum
úti á engjum. Oftast var fólk með
eitthvað lítið og létt eins og sokka
og vettlinga á prjónunum sem var
eflaust betra því eftir því sem
peysan stækkaði fór hún að síga
svolítið í,“ segir Hélène sem gekk
með hnykilinn í handarkrikanum
alla leiðina en það var einnig venj-
an á árum áður. Hún segir prjóna-
skapinn engu að síður hafa
gengið vel og hjálpað henni
að halda jöfnu tempói í ferð-
inni. „Sem leiðsögumaður
þarf maður að fara hægar
yfir en á eigin vegum og
þetta hægði aðeins á mér.
Þá var stoppað með reglu-
legu millibili og prjón-
að. Við tylltum
okkur meðal ann-
ars á nýja fjallið
Magna en stöldr-
u ð u m e k k i
lengi við enda
hefur það ekki
ennþá náð
að kólna og
okkur varð
fljótt heitt á
rassinum.“
Fyrir-
hugað er
a ð u p p -
skriftin að
peysunni,
sem hefur
fengið nafnið Fimm-
vörðuháls, birtist í banda-
rísku peysubókinni Swea-
ters From Around the
World á næsta ári. Um
er að ræða aðsniðna
peysu sem minnir
á gömlu íslensku
peysufötin en
Hélène er þekkt
fyrir óþrjót-
andi áhuga
á íslenskri
prjóna-
hefð. Hann
ásamt
áralangri
reynslu henn-
ar sem fjalla-
leiðsögumað-
ur á Íslandi
er hvatinn að
prjónaferðunum sem hún fer í
samstarfi við Íslenska fjallaleið-
sögumenn.
„Ferðirnar ganga út á að kynn-
ast landinu og ferðast um það með
prjón að leiðarljósi,“ segir Hélène.
„Þær bjóða upp á blöndu af stór-
fenglegri náttúru, íslenskri menn-
ingu, prjónasögu og prjónanám-
skeiðum.“
Þátttakendur koma frá Evrópu,
Norður-Ameríku og Skandinavíu
en ferðirnar eru einnig opnar
Íslendingum. Fram undan er
haustprjónaferð í nágrenni Sel-
foss í nóvember og vetrarprjóna-
ferð i Landmannalaugar í mars
en þá verður prjóni og göngu-
skíðaiðkun fléttað saman. Nánari
upplýsingar er að finna á www.
prjonakerling.is
vera@frettabladid.is
Gengið og prjónað
Hélène Magnússon var að koma úr prjónaferð á Fimmvörðuhálsi og afrekaði það að prjóna heila peysu á
leiðinni. Uppskriftin verður birt í bandarísku prjónabókinni Sweaters From Around the World á næsta ári.
Helene er frönsk en flutti til Íslands árið 1995. Hér er hún með peysuna sem henni tókst að mestu að klára á einum degi á leið
sinni yfir Fimmvörðuháls. Brúðan Henrietta er dæmi um frekari afrakstur úr ferðinni en uppskrift að henni má finna á prjonakerl-
ing.is.
Þátttakendur settust reglulega niður með prjónana á leiðinni. Í ferðinni
voru tveir karlar og tíu konur.