Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 36
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR24
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars -
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. steintegund, 6. eftir hádegi, 8.
púka, 9. lyftiduft, 11. tveir eins, 12.
bit, 14. fet, 16. tveir eins, 17. keraldi,
18. eyrir, 20. 999, 21. málmur.
LÓÐRÉTT
1. bein, 3. aðgæta, 4. hagnaður, 5.
skítur, 7. merkastur, 10. skamm-
stöfun, 13. af, 15. fálma, 16. hald, 19.
kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. agat, 6. eh, 8. ára, 9. ger,
11. ðð, 12. glefs, 14. skref, 16. tt, 17.
ámu, 18. aur, 20. im, 21. króm.
LÓÐRÉTT: 1. legg, 3. gá, 4. arðsemi,
5. tað, 7. helstur, 10. rek, 13. frá, 15.
fuma, 16. tak, 19. ró.
Það var af ákafri vandlætingu sem ég hristi höfuðið er kunningi minn frá Íran
sagði mér sögu frá heimalandi sínu. Sem
nemandi í eðlisfræði við Háskólann í Teher-
an á níunda áratugnum varð hann var við
að framgangur stúdenta við útskrift hélst
ekki í hendur við frammistöðu í námi held-
ur hversu mikinn þátt menn tóku í starfi
íslamista. Af gremju fylgdust þeir sem
ekki voru í klíkunni með embættismanna-
kerfi borgarinnar fyllast af misvanhæfum
flokksgæðingum. Afleiðingar ráðningar-
stefnunnar virtust kunningja mínum þó í
fyrstu ekki tiltakanlegar. En svo var það
einn daginn að verkfræðingar borgarinnar
mættu í hverfið hans með fylgispektina
og skurðgröfur að vopni og hófu að grafa
holu. Verkið sóttist þeim vel og þegar holan
hafði náð nokkurri dýpt var dælt í hana
vatni. Íbúar hverfisins sem fylgst höfðu
efablandnir með framkvæmdunum vörpuðu
öndinni léttar. Þeir höfðu eignast þessa fal-
legu tjörn. Svo fór að rigna.
HÚN draup af mér drýgindaleg sann-
færingin um yfirburði eigin samfé-
lags þegar kunningi minn lýsti því
hvernig sakleysislegur puntpollurinn
breyttist skyndilega í voveiflegt fljót
sem streymdi hvítfyssandi um götur
og stræti. Hefðu flokksgæðingarnir
fylgst betur með í verkfræðitímum
hefðu þeir vitað að gera þarf fleira en
að moka holu og fylla hana af vatni
þegar útbúa á tjörn. Ég hafði hins vegar
ekki fyrr kvatt kunningjann en mér var
kippt niður úr ylhýrri skýjaborg sjálfum-
gleðinnar og aftur á jörðina.
ÞAÐ fyrsta sem mér kom til hugar þegar ég
heyrði af nýlegri ályktun þingflokks Vinstri
grænna til höfuðs iðnaðarráðherra var
að þarna hefðu þingmennirnir stolið einu
helsta stefnumáli Besta flokksins: „Spilling
fyrir opnum tjöldum“. Í ályktuninni gagn-
rýndi þingflokkurinn harðlega þá ákvörð-
un Katrínar Júlíusdóttur að manna stjórn
Byggðastofnunar fólki úr atvinnulífinu og
háskólasamfélaginu fremur en pólitískt
skipuðum fulltrúum. Í ljósi þess að ein af
niðurstöðum hrunskýrslunnar svokölluðu
var að pólitískar ráðningar og skipanir
hefðu valdið íslensku samfélagi stórskaða
vekur uppátækið furðu. Ef til vill er til
of mikils mælst að lært sé af reynslunni.
Maður hefði hins vegar haldið að „ærukær-
ir“ alþingismenn sæju sóma sinn í að loka
að minnsta kosti að sér í reykmettuðu bak-
herberginu áður en þeir stæðu svo blákalt
vörð um bitlinga flokksgæðingum til handa.
HVORT breytingar hafi verið gerðar á ráðn-
ingarstefnu í Teheran kemur vafalítið í ljós
innan skamms en þar er nú unnið að því að
grafa fyrir stærsta gervistöðuvatni í öllum
Mið-Austurlöndum. Við Íslendingar virð-
umst hins vegar einfaldlega ætla að halda
okkur við gamla siði og hætta á Nóaflóð.
Spilling fyrir opnum tjöldum
Svona nokkuð
getur orðið að
alvöru vandamáli
ef það fær ekki
rétta meðhöndlun
strax.
3778.
3778 lög?
Inni á
þessu?
Og
nóg
pláss
fyrir
fleiri!
Veistu, þegar ég
var á þínum aldri
hlustuðum við á LP-
plötur! Við þurftum
að snúa plötunni við
eftir svona
fimm lög!
Vá!
Heldur
betur.
Þetta
hafa
verið
þungir
og erfiðir
tímar!
Algjörlega maður!
Lizzy, Priest,
Halen... þetta
var harður
skóli!
Haha-
hah
Koma svo
strákar!
Það er snjódagur!
Gerum eitthvað
skemmtilegt!
ÞETTAERSNILLD!
Hefur mamma
alltaf verið svona
brjáluð þegar
hún slappar af?
Einu sinni
rifbeinsbrotnaði
hún þegar við
fórum í berjamó.
Þannig að við
tökum ekki vítamín
af því okkur finnst
þau góð.
Aha.
Og af því að þau
eru góð fyrir okkur.
Éttu bara
fjandans
pilluna!
Vítamínin
eru refsing.
Við tökum þau af því við
verðum.
Rétt.
Rétt hjá þér.
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfimina
no3 - st. 36-41 verð kr. 2500.-
Opið virka daga 11-18
laugardag 11-16
SKÓMARKAÐUR
no2 - st. 41-46 verð kr. 6795.-
no1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
OÐTILB
Bústaðakirkja
Englakór, Barnakór og Kammerkór unglinga
Innritun fer fram í Bústaðakirkju dagana 31. ágúst og
1. september frá kl. 16 - 18, á netfangi svava@kirkja.is eða
í síma 867 7882. Kórstjóri er Svava Kristín Ingólfsdóttir.