Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2011 31
Stökktu til Tyrklands
Einstakt tækifæri
6. september - 11 nátta ferð
Frá aðeins kr.
109.900 með hálfu fæði
Frá kr. 109.900 m/hálfu fæði - kr. 119.900 m/„öllu inniföldu“
Heimsferðir bjóða ótrúlegt sértilboð á allra síðustu sætunum til
Tyrklands 6. september í 11 nætur. Þú bókar flugsæti og gistingu
og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Gríptu tækifærið og bókaðu strax frábært frí á hreint ótrúlegum
kjörum. Fjölbreytt önnur sértilboð í boði.
Kr. 109.900 - 11 nátta ferð
Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð í 11 nætur.
Aukalega m.v. „allt innifalið“ kr. 20.000 fyrir fullorðna og kr. 10.000 fyrir börn.
Ath. - verð getur hækkað án fyrirvara.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.
FÓTBOLTI Gunnleifur
Gunnleifsson, markvörður
FH og íslenska landsliðsins
meiddist í tapleiknum á móti
Stjörnunni og varð að segja sig
úr landsliðshópnum. Hann hefur
sett stefnuna á það að koma til
baka eftir landsleikjahléið.
„Við skulum vona að tímabilið
sé ekki í hættu. Þetta eru smá
meiðsli sem ég er búinn að vera
að eiga við í gegnum tíðina. Þetta
kemur bara upp á vondum tíma,“
sagði Gunnleifur en hann er að
glíma við meiðsli í baki. „Ég hef
lent í þessu áður og kann að vinna
með þetta en ég var pínu óhepp-
inn að þetta skuli hafa komið
upp,“ sagði Gunnleifur.
„Það er ömurleg tímasetn-
ing á þessu að þurfa fara út af í
stöðunni 0-1 í svona mikilvægum
leik í deildinni. Svo missir maður
landsleikina sem er hryllilegt,“
sagði Gunnleifur en FH fékk á sig
þrjú mörk á stuttum tíma eftir að
hann fór út af.
„Ég ætla að gera allt sem ég get
og verð klár í KR-leikinn. Ég
skal lofa þér því að ég verð klár í
KR-leikinn 11. september,“ sagði
Gunnleifur að lokum. - óój
Gunnleifur Gunnleifsson:
Lofar því að ná
KR-leiknum
GUNNLEIFUR Missir af landsleikjum við
Noreg og Kýpur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Við lögðum ansi mikið á
okkur og loksins náum við að upp-
skera eins og við sáðum, þetta
er ljúft. Það er fullkomið að ná
að landa titlinum á heimavelli,“
sagði sigurreif Soffía Arnþrúður
Gunnarsdóttir eftir að hafa land-
að Íslandsmeistaratitlinum með
Stjörnunni í gær.
„Við sköpuðum okkur fullt af
færum í fyrri hálfleik en náðum
ekki að klára þau. Það var smá
stress á liðinu og smá taugaveiklun.
Við töluðum saman í hálfleik, róuð-
um taugarnar og kláruðum þetta.“
„Við spiluðum með þriggja
manna vörn í fyrri hálfleik sem
mér fannst mjög gaman. Við
náðum að pressa á þær en náðum
aldrei að klára á síðasta þriðj-
ungnum. Svo kláruðum við þetta
í seinni hálfleik. Þetta er svo ein-
falt, þetta snýst bara um að koma
boltanum í netið og við gerðum
það,“ sagði Soffía og bætti við,
„við erum með besta lið á landinu
eins og staðan er núna, það er á
hreinu.“ -gmi
Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir sigurreif í leikslok:
Við erum með besta
liðið á landinu
BLÓM EN ENGINN BIKAR Stjörnustúlkur fengu ekki Íslandsbikarinn afhentan í gær en
hér taka Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir við blómvendi í
leikslok. Þær fá bikarinn í síðasta heimaleik sumarsins. FRÉTTABLAAÐIÐ/STEFÁN