Fréttablaðið - 31.08.2011, Síða 46
31. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR34
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Það hefur nú heldur betur þróast
í gegnum tíðina. Fyrst voru Prúðu-
leikaranir í uppáhaldi, svo varð ég
stjörnuvitlaus í Star Trek: The Next
Generation, Arrested Development,
Sopranos og LOST. En ætli uppá-
haldssjónvarpsþátturinn minn sé
ekki Mad Men.“
Dröfn Ösp Snorradóttir, slúður-
blaðamaður og skartgripaföndrari 4949
hálsmenanna.
„Það er engin dramatík í kringum þetta, við ætluð-
um alltaf að hafa þetta samstarf svona,“ segir Pétur
Hafliði Marteinsson, einn eigenda veitinga- og gisti-
hússins KEX.
Matreiðslumaðurinn Friðrik Valur Karlsson, eða
Friðrik V, er hættur að elda í eldhúsi staðarins.
Pétur segir matreiðslumanninn munu verða þeim
innan handar við gerð matseðla. „Hann er algjör
snillingur í að tala um mat og þessi ákvörðun var
sameiginleg.“
Pétur segir að þeir ætli sér að ná enn betri tökum
á svokölluðum kráarmat og að Friðrik verði þeim
innan handar í þeirri nálgun. Matreiðslumaðurinn
Tóti, sem áður var kokkur á Hótel Rangá og Einari
Ben., hefur nú tekið við keflinu af Friðriki en Pétur
tekur fram að ekki verði mikilla breytinga að vænta
þrátt fyrir brotthvarf Friðriks. Fréttablaðið reyndi
að ná í Friðrik í gær en án árangurs.
KEX Hostel hefur farið ákaflega vel af stað, gisti-
heimilið hefur verið þétt setið og þá hefur barinn
slegið í gegn. „Þetta hefur gengið mjög vel og við
hefðum bara ekki viljað hafa þetta betra,“ segir
Pétur en athygli hefur vakið að stjörnurnar sem
sinntu barþjónahlutverkinu fyrr á þessu ári eru
flestar flognar á braut. „Rúnar Freyr var náttúrlega
bara æskuvinur minn, við bjuggum í sömu blokk-
inni í Breiðholtinu og hann er núna byrjaður að æfa
aftur fyrir eitthvert hlutverk. Björn Ingi Hilmars-
son er síðan farinn aftur til Svíþjóðar þar sem hann
býr. Við erum því bara búnir að ráða fólk í þeirra
stað.“ - fgg
Friðrik V hættur á Kexinu
Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson hefur unnið að
gerð þriggja ólíkra hljómplatna að undanförnu og hefur því
haft í nógu að snúast.
Aðspurður segir hann það ekkert trufla sig að vera með
marga bolta á lofti í einu. „Ég held að þetta sé skemmtilegra
svona. Það eru minni líkur á að maður staðni í einhverju
formi. Ég hef ekki áhuga á því,“ segir Eyþór Ingi, sem sló í
gegn í þáttunum Bandið hans Bubba.
Hann sendi nýlega frá sér lagið „Þá kem ég heim“ sem er
fáanlegt á Tónlist.is. Það verður að finna á fyrstu sólóplötu
hans sem kemur að öllum líkindum út fyrir jólin. Hinar plöt-
urnar tvær eru frumburður proggsveitarinnar Eldbergs,
sem er nýkominn út, og nýjasta plata Todmobile þar sem
Eyþór Ingi er orðinn fullgildur meðlimur. „Það er búið að
vera ótrúlega skemmtilegt ævintýri,“ segir hann um tímann
með Todmobile.
Auk vinnunnar við plöturnar þrjár hefur hann tekið þátt í
tveimur söngleikjum á árinu. Fyrst í Rocky Hor-
ror og síðan í Hárinu sem verður sýnt áfram í
Hörpunni í september. „Ég reyni að lifa á því
að gera alltaf eitthvað nýtt, alveg sama hvað
það er. Mér þykir vænt um öll verkefnin sem
ég tek að mér en þetta sameinast allt í einu
hjarta sem er þetta sólóalbúm sem er á
leiðinni,“ segir hann.
Nýjustu fregnir af Eyþóri Inga og
verkefnum hans má sjá á síðunni
Facebook.com/eythoringimusic. -fb
NÓG AÐ GERA Eyþór Ingi hefur unnið
við þrjár nýjar plötur að undanförnu.
ENGIN LEIÐINDI Pétur Hafliði Marteinsson segir engin leiðindi
vera á bak við brotthvarf Friðriks V af Kexinu en hann er
hættur að kokka á veitingastað gistiheimilisins. Hér eru þeir
Pétur og Kristinn Vilbergsson ásamt Friðriki V þegar Kexið
opnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég er nú vön þessu, er yfirleitt
fengin til að leika ráðríku, leiðin-
legu og freku eiginkonuna,“ segir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
leikkona.
Búið er að skipa í helstu radd-
hlutverk teiknimyndarinnar Þórs
sem frumsýnd verður seinna á
þessu ári. Eins og Fréttablað-
ið hefur þegar greint frá mun
Atli Rafn Sigurðarson tala fyrir
þrumuguðinn en Laddi fyrir ham-
arinn hans, Mjölni. Katla Margrét
verður hins vegar helsti óvinur
Þórs, sjálf Hel sem reynir að gera
Þór lífið leitt.
Árið hjá Kötlu virðist ætla að
verða tileinkað vondum konum
því hún leikur einnig illa innrættu
nornina í uppfærslu Borgarleik-
hússins á Galdrakarlinum í Oz
sem frumsýnd verður um miðjan
september. „Þetta helgast af því
að ég er svo góð. Ekki leikkona,
heldur manneskja. Leikstjór-
ar virðast álíta að þetta sé mikil
áskorun fyrir mig að leika svona
vondar konur,“ segir Katla Mar-
grét og hlær. Hún segist ekki hafa
sett sig í neinar stellingar í pruf-
unum heldur hafi hún reynt að
elta einhvern útlending sem hafði
þegar talað inn á hlutverkið. „En
ég var látin prófa nokkrar rullur.“
Það verður valinn maður í
hverju rúmi í öðrum hlutverk-
um. Egill Ólafsson talar fyrir
Óðin sem er æðstur allra ása og
Örn Árnason mun tala fyrir hinn
góðglaða Heimdall. Esther Talía
Casey verður síðan í hlutverki
Freyju, Þröstur Leó Gunnarsson
verður stórvinur Þórs og Ágústa
Eva Erlendsdóttir talar fyrir
Eddu, aðra vinkonu Þórs.
Teiknimyndin Hetjur Valhall-
ar: Þór er dýrasta kvikmynd
sem Íslendingar hafa ráðist í að
gera en hún er jafnframt fyrsta
íslenska teiknimyndin í fullri
lengd. Leikstjóri myndarinnar er
Óskar Jónasson, handritshöfund-
ur er Friðrik Erlingsson, útlits-
hönnuður er Gunnar Karlsson
en það er teiknimyndafyrirtæk-
ið Caoz sem sér um framleiðslu
hennar.
freyrgigja@frettabladid.is
KATLA MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR: LEIKUR HEL Í TEIKNIMYNDINNI ÞÓR
Látin leika vondar konur af
því ég er svo góð manneskja
VOND Í ÁR Katla Margrét Þorgeirsdóttir verður vond í ár en hún talar fyrir Hel í
teiknimyndinni Þór og leikur vondu nornina í Galdrakarlinum í Oz.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
lifestream™
lífræn næring. - engin málamiðlun í gæðum
Útsölustaðir: Apótek, heilsubúðir, Krónan og Fríhöfnin.
www.celsus.is
- gefur mér aukið þol, laus við krampa
og harðsperrur, flýtir endurheimt.
NOTA LIFESTREAM
TIL AÐ BÆTA
ÁRANGUR MINN
Stefán Guðmundsson læknanemi:
Margfaldur Bikar- og Íslandsmeistari í
3000 m hindrunarhlaupi.
Sigraði Powerade mótaröðina 2010 -11
Þrjár plötur og tveir söngleikir á árinu