Fréttablaðið - 01.09.2011, Side 6
1. september 2011 FIMMTUDAGUR6
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi í
löndum Evrópusambandsins mæld-
ist 9,5 prósent í júlí síðastliðnum,
en var tíu prósent í evrulöndunum.
Þetta kemur fram í nýjustu tölum
Eurostat, en þessar tölur eru eilítið
lægri en á sama tíma í fyrra.
Þetta jafngildir því að um 22,7
milljónir manna og kvenna hafi
verið án atvinnu. Fæstir voru
atvinnulausir í Austurríki, 3,7 pró-
sent, en mest var atvinnuleysið á
Spáni, rúmlega 21 prósent.
Atvinnuleysi á Íslandi var 6,6
prósent í júlí en í Bandaríkjunum
var það 9,1 prósent. - þj
Vinnumarkaðurinn í Evrópu:
Um 10% í ESB
eru atvinnulaus
VÍSINDI Ástralskir stjörnufræð-
ingar hafa uppgötvað plánetu sem
virðist vera að nær öllu leyti úr
demanti. Hún er fleygiferð á braut
um smástirni í vetrarbraut okkar.
Plánetan er mun þéttari en
nokkur sem fundist hefur og er
einkum úr kolefni. Vísindamenn
hafa því reiknað út að hún hljóti í
raun að vera einn stór demantur.
Hún er tvær klukkustundir að fara
hring um litla nifteindastjörnu, á
sporbaug sem er svo smár að hann
kæmist fyrir inni í þeirri sól sem
vermir jörðina.
Fjársjóðsleitarmenn geta hins
vegar sleppt því að búa sig undir
geimkapphlaup að sinni því plán-
etan er nokkuð langt utan seiling-
ar, eða 4.000 ljósár frá jörðu. - sh
Risavaxinn gimsteinn á flugi:
Heil pláneta úr
demanti fundin
Stal fjórum lærum
Tæplega fertugur karlmaður hefur
verið ákærður fyrir Héraðsdómi
Vesturlands fyrir að hafa farið í heim-
ildarleysi inn í bílskúr á Akranesi
og stolið þar fjórum lambalærum,
ullarfóðruðum kerrupoka, vinnusam-
festingi og reiðhjólahjálmi.
DÓMSMÁL
DANMÖRK Skattar og gjöld á óhollar
neysluvörur munu hækka töluvert,
komist Jafnaðarmenn og Sósíalíski
þjóðarflokkurinn til valda í kom-
andi kosningum í Danmörku.
Flokkarnir hafa tekið höndum
saman um mörg sameiginleg bar-
áttumál og í einni áætlun þeirra
sem ber yfirskriftina „sanngjörn
lausn“ er gert ráð fyrir því að fjár-
magna verkefni á heilbrigðissviði
með því að hækka álagningu á
sígarettur og óhollan mat.
Samkvæmt því mun jafngildi
220 íslenskra króna leggjast á
hvern sígarettupakka, 22 krónur
á hvern lítra af sykruðum gos-
drykk, og tæpar 100 krónur á 200
gramma plötu af súkkulaði.
Auk þess munu gjöld aukast
á feitt kjöt, rjóma og aðrar feit-
ar mjólkurvörur, en með þessum
aðgerðum er stefnt að því að afla
um 86 milljarða íslenskra króna.
Þar af skulu tæpir 70 milljarð-
ar renna til bættrar þjónustu á
sjúkrahúsum landsins.
Danskir reykingamenn greiða
í dag að jafngildi 750 íslenskra
króna fyrir pakkann. Í Noregi er
verðið hins vegar miklum mun
hærra, eða um 1.750 íslenskar. - þj
Vinstri flokkarnir í Danmörku vilja hækka álögur á tóbak, feitan mat og nammi:
Óhollusta fjármagni heilbrigðiskerfið
DÝR ÓSIÐUR Vinstri flokkarnir í
Danmörku vilja hækka álögur á tóbak
og aðra óhollustu til að bæta heil-
brigðiskerfið. Þessi herramaður þarf
að minnka við sig í reykingunum ef af
hækkununum verður. NORDICPHOTOS/AFP
VITA er lífið
Bodrum
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
6. - 17. september
Verð frá 101.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
m.v. 2 í herbergi á Park’im Ayaz*** í 11 nætur
Innifalið: Flug, skattar, gisting með hálfu fæði og íslensk fararstjórn
* Verð án Vildarpunkta 111.900 kr.
Hálft fæði
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
V
IT
5
59
14
0
8/
11
AKUREYRI Bæjarráð Akureyrar
hefur heimilað færslu 22 milljóna
af fjárhagsáætlun síðasta árs yfir
á yfirstandandi ár í málaflokkum
félagsþjónustu og fræðslu– og upp-
eldismála.
Í tilkynningu kemur fram að
góður rekstur síðasta árs hafi
skilað sér í rekstrarafgangi sem
var færður yfir á þetta ár. Þá er
haft eftir Eiríki Birni Björgvins-
syni bæjarstjóra að þessi færsla sé
hvatning til starfsfólks um að gera
enn betur og þakklætisvottur fyrir
vel unnin störf. - þj
Fjármál Akureyrar:
Færa 22 millj-
ónir milli ára
EFNAHAGSMÁL Lán til heimila höfðu
verið færð niður um samtals 143,9
milljarða króna frá hruni hjá
íslenskum fjármálafyrirtækjum í
lok júlí 2011. Þetta kemur fram í
tölum sem Samtök fjármálafyrir-
tækja hafa safnað saman og birtu
í gær.
„Þarna eru tekin saman öll fjár-
málafyrirtækin á lánamarkaði
auk Íbúðalánasjóðs og lífeyris-
sjóðanna. Það er því búið að safna
saman þarna öllum þeim niður-
færslum lána sem búið er að fram-
kvæma en þeirri vinnu er þó ekki
lokið,“ segir Guðjón Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka fjár-
málafyrirtækja.
Guðjón segir blasa við að um
verulegar niðurfærslur sé að
ræða og við þær bætist miklar
niðurfærslur á fyrirtækjahlið-
inni. Það sé hins vegar mjög mis-
jafnt hvernig þær hafa komið við
fjármálafyrirtækin.
Í tölunum kemur fram að alls
hafi borist umsóknir um niður-
færslu á 13.437 lánum á grundvelli
110 prósent leiðar stjórnvalda sem
gildir fyrir lán vegna fasteigna-
kaupa. Þar af hefur 7.551 umsókn
verið samþykkt en 1.097 verið
hafnað. Enn á eftir að fara yfir
4.789 umsóknir sem eru flestar á
forræði Íbúðalánasjóðs
Um sértæka skuldaaðlögun
sóttu 1.640 heimili og hafa 826
hlotið samþykkt en 179 verið hafn-
að. Enn á eftir að fara yfir 635
umsóknir.
Megnið af þeim niðurfærslum
sem orðið hafa er vegna endur-
útreikninga á gengistryggðum
lánum sem dæmd hafa verið ólög-
mæt. Hefur verið lokið við endur-
útreikning 98,7 prósenta gengis-
lána, að fjárhæð 119,65 milljarða.
Lán einstaklinga verið af-
skrifuð um 143,9 milljarða
Niðurfærsla á lánum einstaklinga hefur numið 143,9 milljörðum króna í alls 80 þúsund málum. Um 120
milljarðar eru til komnir vegna endurútreikninga gengistryggðra lána. 13.437 sóttu um 110% leiðina.
Niðurfærslur lána frá bankahruni
Umsóknir Samþykktar Hafnað Í vinnslu Fjárhæð í milljónum króna
Fjármálafyrirtæki - 110% leið 7.887 6.844 344 699 16.790
Íbúðalánasjóður - 110% leið 5.082 632 543 3.907 1.650
Lífeyrissjóðir - 110% leið 468 75 210 183 211
110% leiðin samtals 13.437 7.551 1.097 4.789 18.651
Sértæk skuldaaðlögun 1.640 826 179 635 5.573
Fjöldi lána Útreikningum lokið Útreikingar í vinnslu Fjárhæð í milljónum króna
Gengistryggð íbúðalán 12.659 11.800 859 78.998
Gengistryggð bifreiðalán 59.471 59.410 61 40.648
Samtals endurútreikningar 72.130 71.210 920 119.646
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Alls var sótt um niðurfærslu rúmlega 13.400 lána á grundvelli 110% leiðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Andrea J. Ólafsdóttir, formað-
ur Hagsmunasamtaka heimil-
anna, segir skrýtið að telja endur-
útreikninga gengistryggðra lána
til niðurfærslna.
„Þarna er verið að tala um 144
milljarða í niðurfærslu en þar af
eru ekki nema 25 milljarðar sem
eru raunveruleg niðurfærsla. Hve-
nær ætla fjármálafyrirtækin að
læra það að þau brutu af sér? Þau
lánuðu ólöglega. Þetta eru því ekki
niðurfærslur eða afskriftir heldur
leiðrétting,“ segir Andrea og bætir
því við að ekki hafi verið nægilega
mikið gert til að koma til móts við
skuldara.
Sérfræðingahópur á vegum
stjórnvalda skilaði í nóvember á
síðasta ári mati á kostnaði við þær
leiðir sem stungið hafði verið upp
á til lausnar á skuldavanda heim-
ilanna.
Komst hópurinn að þeirri
niðurstöðu að flöt niðurfærsla
fasteignaskulda um 15,5 prósent
myndi kosta 185 milljarða króna.
Niðurfærsla skulda miðað við upp-
haflega lánsfjárhæð myndi kosta
155 milljarða króna og niðurfærsla
skulda að 110 prósent af verðmæti
fasteigna myndi kosta 89 millj-
arða. Þá myndi lækkun vaxta
kosta 24 milljarða á ári og hækkun
vaxtabóta 2 milljarða á ári.
Í tölum sérfræðingahópsins var
hins vegar ekki gerður greinar-
munur á gengistryggðum íbúða-
lánum og öðrum íbúðalánum.
Gengistryggð íbúðalán voru síðar
dæmd ólögmæt og því birtist
kostnaðurinn sem metinn var við
110 prósent leiðina að þó nokkrum
hluta í endurútreikningum á geng-
islánum. magnusl@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Á að rannsaka aðdraganda
þess að íslensk stjórnvöld
studdu árásir NATO í Líbíu?
JÁ 31,6%
NEI 68,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telurðu rétt að lækka tolla á
innflutt kjöt?
Segðu þína skoðun á visir.is