Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 60
44 1. september 2011 FIMMTUDAGUR
Tónlist ★★★★
Svik, harmur og dauði
Ham
Svik, harmur og dauði er stórkost-
leg plata á svo margan hátt að það
er erfitt að útskýra það. Ég ætla
samt að reyna. Fyrir utan að vera
stórskemmtileg í þungarokklegu
tilliti er svo margt við plötuna sem
kemur spánskt fyrir sjónir að ég get
eiginlega ekki beðið eftir að koma
því í orð.
Fyrir mér hefur HAM
alltaf verið til, þrátt
fyrir að hljómsveitin
hafi verið stofnuð fjór-
um árum eftir fæðingu
mína. HAM starfaði í sex
ár, kom svo nokkrum sinn-
um fram upp úr aldamót-
um, en hóf aftur störf árið
2006 og hefur komið fram
óreglulega síðan þá. Svik, harmur
og dauði er fyrsta hljóðversplata
HAM frá árinu 1989, þegar Buffalo
Virgin kom út.
Meðlimir HAM hafa getið sér
gott orð með öðrum hljómsveitum
og á öðrum sviðum á þessum ára-
tugum sem liðu á milli plata. Ótt-
arr Proppé hefur til dæmis farið
á kostum með fríkrokksveitinni
Dr. Spock og það þarf ekki að fjöl-
yrða um afrek Sigurjóns Kjartans-
sonar í grínheiminum. Það er því
sérstök þrekraun fyrir þá að stíga
fram með heila breiðskífu af lögum
sem eru samin eftir að þeir urðu
þekktir fyrir annað. Fyrir vikið
getur reynst erfitt að taka flutn-
ing þeirra alvarlega, enda er línan
milli hláturs og gráts hárfín. Á
þessari línu dansar HAM með stór-
skemmtilegum árangri. Lögin eru
flest grípandi hamfarasálmar, text-
arnir frábærir og flutn-
ingur Sigurjóns og Ótt-
arrs einhvers staðar á
mörkum þess fyndna
og harmræna. Þá má
ég til með að nefna trommuleik
Arnars Geirs Ómarssonar, sem er
ekkert minna en frábær.
Platan hefst af miklum krafti á
laginu Einskis son. Æðislegt. Næst
hefst stórsmellurinn Dauð hóra,
sem er besta lag plötunnar — stór-
kostlegur málmslagari um sveita-
strák sem leiðist út í vændi áður
en hann smitast af spænsku veik-
inni og deyr. Textinn er gott dæmi
um ótakmarkað hugmyndaflug og
öfundsverðan orðaforða Óttarrs
Proppé. Ég ætla að spá því að lagið
sem fylgir á eftir Dauðri hóru, Mitt
líf, verði næsta lag hljómsveitarinn-
ar sem fær að hljóma á öldum ljós-
vakans. Magnaður slagari.
Á meðal annarra frábærra laga á
plötunni eru Sviksemi, Veisla Her-
togans, Svartur hrafn og að sjálf-
sögðu lokalagið magnaða Ingimar
(sem á eflaust eftir að virka sem
dropinn sem holar geðheilsu þeirra
sem bera þetta fagra nafn í fram-
tíðinni). HAM nær ekki slíkum
hæðum í lögunum Gamlir svika-
menn á ferð og Heimamenn höfðu
aldrei séð slíkan mann.
Meðlimir HAM eru óhræddir
við að nýta klisjur úr þungarokk-
sögunni sér til framdráttar. Byrj-
unin í smellinum Dauð hóra hefur
til dæmis heyrst ótal oft áður og
kirkjuklukkan í Alcoholismus
Chronicus er jaskaðari klisja en
hækkun í Eurovision-lagi. Það er í
rauninni ekkert frumlegt við Harm,
svik og dauða, þó að söngvarapar á
borð við Sigurjón Kjartansson og
Óttarr Proppé sé vandfundið. En
HAM kemst upp með klisjurnar og
gott betur. Þær virka sem vísanir
í jarðveginn sem hljómsveitin er
sprottin úr en ekki sem örvænting-
arfull tilraun til að finna upp hjólið
á ný. Atli Fannar Bjarkason
Niðurstaða: Svik, harmur og dauði er
stórkostleg plata. Hún er ekki frumleg,
en unun er að hlusta á flutning Sigur-
jóns Kjartanssonar og Óttarrs Proppé á
hárfínni línu þess fyndna og harmræna.
Hamfarasálmar
STÓRKOSTLEG PLATA Fyrsta hljóðversplata Ham síðan 1989 er afar vel
heppnuð að mati gagnrýnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ný námskeið
að hefjast!
JÓGA
Stúdíó
Core Strength Vinyasa - 6. september
Byrjendanámskeið - 12. september
Chakradansnámskeið - 7. september
Nánari upplýsingar á www.jogastudio.is
og í síma: 772-1025 - Ágústa
FIMMTUDAGUR: ANDLIT NORÐURSINS 18:00, 20:00, 22:00 ANI-
MAL KINGDOM 17:50, 20:00, 22:10 MARY & MAX 18:00 HOWL 20:00
MONSTERS 22:00 ENGLAR ALHEIMSINS (ANGELS OF THE UNIVERSE)
18:00 MAÐUR EINS OG ÉG (A MAN LIKE ME) 20:00 SÓDÓMA REYKJAVÍK
(REMOTE CONTROL) 22:00 ÍSLENSKUR TEXTI / ENGLISH SUBTITLES
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDA-
MIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS / www.bioparadis.is / midi.is
CHANGE UP 5.45, 8 og 10.20
SPY KIDS - 4D 6
CONAN THE BARBERIAN 8 og 10.20
STRUMPARNIR - 3D 6 - ISL TAL
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
ÁLFABAKKA
V I P
V I P
12
12
12
L
L
EGILSHÖLL
12
1414
12
16
16
16
12
12
12
12
L
L
AKUREYRI
12
12
L
L
L
KRINGLUNNI
FINAL DESTINATION 5 kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
LARRY CROWNE LUXUS VIP kl. 8 - 10.20 2D
COWBOYS & ALIENS kl. 10:30 2D
GREEN LANTERN kl. 5:40 - 8 - 10.20 2D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D
HORRIBLE BOSSES LUXUS VIP kl. 5.30 2D
BÍLAR 2 M/ ísl. Tali kl. 5.30 3D
BÍLAR 2 M/ ísl. Tali kl. 5:30 2D
HARRY POTTER kl. 8 2D
THE SMURFS m/ísl tali kl. 5:20 3D
FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:20 3D
BÍLAR 2 m/ísl tali kl. 5:20 2D
COWBOYS & ALIENS kl. 8 - 10:40 2D
HARRY POTTER kl. 5:20 3D
RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:30 3D
GREEN LANTERN kl. 5:20 3D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D
CAPTAIN AMERICA kl. 10:20 3D
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 2D
SMURFS M/ ísl. Tali kl. 5:50 3D
HORRIBLE BOSSES kl. 10:10 2D
HARRY POTTER kl. 8 3D
Kvikmyndadagar í Kringlunni 26.Ágúst til 22.September
THE BEAVER kl. 8 2D
THE TREE OF LIFE kl. 5:20 ótextuð 2D
RED CLIFF kl. 10:40 enskur texti 2D
BAARÍA kl. 10:30 ísl texti 2D
10
14
7
7
7
7
12
14
16
KEFLAVÍK
SELFOSS
12
14THE CHANGE UP kl. 8 - 10.20
BAD TEACHER kl. 8 - 10:20
LARRY CROWNE kl. 6 2D
FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:103D
BÍLAR 2 ÍSLENSKT TAL kl. 6 2D
GREEN LANTERN kl. 8 3D
HORRIBLE BOSSES kl. 10:10 2D
Ein flottasta spennuhrollvekja þessa árs.
Mögnuð þrívídd
BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI TIL ÞESSA.
75/100 San Francisco Chronicle
75/100 Entertainment Weekly
70/100 Variety
YGGÐU RT
ÁÉR M ÐAÞ I
THE CHANGE-UP kl. 8
FINAL DESTINATION 5 kl. 10:30
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 - 10:20
12
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD – 4-D!
FRÁ LEIKSTJÓRA
SUPER SIZE ME
5%
THE CHANGE-UP KL. 6 - 8 - 10 14
SPY KIDS 4 4D KL. 6 - 8 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 10 16
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.40 - 5.50 - 8 L
THE CHANGE-UP Í LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
ONE DAY KL. 8 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 10.20 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 10.20 12
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12
THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14
GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 5.50 – 10.10 L
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 8 - 10.20 16
ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L