Fréttablaðið - 10.09.2011, Page 4

Fréttablaðið - 10.09.2011, Page 4
10. september 2011 LAUGARDAGUR4 þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni styðja ríkis- stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. 26,5% KÖNNUN Innan við helmingur þeirra sem tóku þátt í skoðana- könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 á fimmtudag, 48,8 prósent, sagð- ist myndu kjósa einhvern þeirra flokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Þetta bendir til þess að óánægja með hefðbundna þingflokka sé síður en svo á undanhaldi, enda hlutfallið talsvert lægra en í síð- ustu skoðanakönnunum. Svo lágt svarhlutfall þýðir að skekkjumörk í könnuninni eru hærri en ella, og taka verður niður stöðum hennar með fyrir- vara. Þó vekur athygli að um 80 prósent svara könnuninni, svo um 30 prósent þeirra 800 sem hringt var í eru ýmist óákveðnir, ætla að kjósa aðra flokka, myndu sleppa því að kjósa eða skila auðu. Af þeim sem tóku afstöðu til flokka sögðust 50,3 prósent styðja Sjálfstæðisflokkinn. Stuðningur við flokkinn eykst úr 44 prósent- um í síðustu könnun Fréttablaðs- ins, sem gerð var snemma í apríl. Fengi Sjálfstæðisflokkurinn svo mikið fylgi í kosningum fengi hann hreinan meirihluta á þingi með 33 þingmenn. Flokkurinn er með 16 þingmenn í dag. Fylgi Vinstri grænna virðist samkvæmt könnuninni í frjálsu falli. Flokkurinn nýtur samkvæmt henni stuðnings 12,4 prósenta kjós- enda. Stuðningurinn mældist 17,7 prósent í apríl, en flokkurinn fékk stuðning 21,7 prósenta í síðustu kosningum. Vinstri græn fengju miðað við þetta sjö þingmenn, en er með tólf í dag eftir afföll á yfir- standandi þingi. Stuðningur við Samfylkinguna virðist minnka lítillega milli kannana. Um 22,6 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú, en hann naut stuðnings 24,8 prósenta í síð- ustu könnun. Samfylkingin fengi Fáir taka afstöðu til flokka Tæplega helmingur þeirra sem tóku þátt í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 styður einhvern af flokkun- um fimm sem eiga fulltrúa á Alþingi. Ríflega helmingur þeirra sem taka afstöðu styður Sjálfstæðisflokkinn. Aðeins rúmur fjórðungur þeirra sem afstöðu taka í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 segist styðja ríkisstjórn Samfylkingar- innar og Vinstri grænna. Þrír af hverjum fjórum styðja ekki stjórnina. Alls segjast 26,5 prósent styðja stjórnina, sem er lægra en hlutfall þeirra sem segjast ætla að kjósa annan hvorn stjórnarflokkanna. Um 73,5 prósent sögðust ekki styðja stjórnina. Stuðningur við stjórnina hefur dalað mikið frá því í mars í fyrra. Þá sögðust 38,9 prósent styðja stjórnina en 61,1 prósent studdi hana ekki. Um 83,8 prósent stuðningsmanna Sam- fylkingarinnar styðja stjórnina, og 88,2 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna. Staðan er önnur meðal stuðningsmanna annarra flokka. Aðeins 7 prósent stuðningsfólks Framsóknar- flokksins styðja stjórnina, og 4,4 prósent þeirra sem kjósa myndu Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði nú. Spurt var: Styður þú núverandi ríkisstjórn? Alls tóku 84,8 prósent afstöðu. Þrír af fjórum styðja ekki ríkisstjórnina Fylgi stjórnmálaflokkanna Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 50 40 30 20 10 % 29,8 44,0 50,3 22,6 13,8 1,3 12,1 24,8 17,7 9,4 4,1 25 . a pr íl 20 09 28 . j úl í 2 00 9 15 . o kt . 2 00 9 7. ja nú ar 2 01 0 18 . m ar s 20 10 23 . s ep t. 20 10 19 . j an . 2 01 1 24 . f eb . 2 01 1 6. a pr íl 20 11 8. s ep t. 20 11 Ko sn in ga r 23,7 21,7 14,8 7,2 miðað við þetta 14 þingmenn, en er með 20 í dag. Hreyfingin mælist nú með 1,3 prósenta fylgi, samanborið við 4,1 prósent í apríl. Það myndi ekki skila flokknum neinum þing- manni, en hann hefur þrjá þing- menn í dag. Stuðningur við Framsóknar- flokkinn eykst á milli kannana, og mælist nú 13,8 prósent. Í könnun í apríl mældist fylgi flokksins 9,4 prósent. Miðað við þessa niður- stöðu fengi Framsóknarflokkurinn 9 þingmenn, sama fjölda og hann er með í dag, eftir að Guðmund- ur Steingrímsson alþingismaður sagði sig úr flokknum. Umræður um nýtt framboð Guð- mundar og skoðanasystkina hans virðast lítil áhrif hafa haft enn sem komið er, og segist lítið brot þeirra sem afstöðu tóku ætla að kjósa aðra flokka. Hringt var í 800 manns fimmtu- daginn 8. september. Þátttakend- ur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosn- inga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líkleg- ast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 48,8 pró- sent afstöðu. brjann@frettabladid.is Styður þú ríkisstjórn- ina? Já 26,5% Nei 73,5% Kannastu við óöryggi, að hafa áhyggjur af áliti annarra, að forðast félagslegar aðstæður eða að draga þig í hlé? Þá er þetta námskeið fyrir þig! Kvíðameðferðarstöðin, í samstarfi við Stofuna - sálfræðiþjónustu, stendur fyrir 12 vikna námskeiði við félagskvíða unglinga. Unnið er markvisst að því að draga úr kvíða og óöryggi um leið og áhersla er lögð á þjálfun í félagsfærni, ákveðni, lausn vandamála og auknu sjálfstrausti. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku foreldra, m.a. er foreldrum boðin fræðsla og handleiðsla þeim að kostnaðarlausu samhliða námskeiðinu. Skráningar og fyrirspurnir: símar 5340110, 8487619 og 8625572, kms@kms.is Nánari upplýsingar: www.kms.is LÁTTU Í ÞÉR HEYRA! Námskeið fyrir unglinga með félagskvíða hefst 28. september Umsjón: Hrund Þrándardóttir og Margrét Birna Þórarinsdóttir, sálfræðingar VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 29° 23° 20° 27° 29° 20° 20° 28° 24° 31° 27° 31° 17° 28° 21° 16° Á MORGUN 10-18 m/s. MÁNUDAGUR 10-18 m/s. 6 6 5 5 6 3 10 10 10 9 7 4 7 5 8 7 5 3 5 6 10 5 17 6 6 7 13 11 7 6 8 11 14 BJART OG FALLEGT Bjart víðast hvar á landinu í dag og skaplegt veður fyrri partinn. Hvasst við suðausturströndina í fyrstu en vaxandi norðaustanátt ann- ars staðar er líður á daginn. Ákveðin norðaustan átt næstu daga með vætu einkum austan til en þurrt vestra. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður DÝRALÍF Brandugla leit við um borð hjá Valbirni ÍS í vikunni þegar hann var á rækjuveiðum við Öxarfjörð. Uglan flakkaði á milli skipa á svæðinu og staldr- aði stutt. Frá þessu var greint á fréttavef Bæjarins besta. Finnbjörn Elíasson skipstjóri segir uglur um borð sjaldgæfa sjón. „Fálkar koma stundum, en það er sjaldan að við fáum uglur. En hún var falleg, greyið,“ segir hann. „Hún kom og settist fyrst á annað skip og var þar mynduð í bak og fyrir. Svo kom hún til okkar og leyfði okkur að mynda sig áður en hún flaug burt.“ - sv Sjaldgæf sjón á skipi: Brandugla um borð í Valbirni BRANDUGLAN Í VALBIRNI Uglan sveim- aði á milli skipa og leyfði áhöfnunum að mynda sig í bak og fyrir. MYND/FINNBJÖRN ELÍASSON DÓMSMÁL Réttarhöldin í hand- rukkunarmálinu gegn tveimur liðsmönnum vélhjólagengisins Black Pistons tóku óvænta stefnu í gær þegar halda átti áfram aðal meðferð þess í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ljós kom að fórnar- lambið hafði bendlað þriðja mann- inn við hrottafengna árás á sig og hefur ákæra verið gefið út á hend- ur honum vegna málsins. Þriðji maðurinn er rétt tæplega sautján ára, og var áður á lista yfir vitni í málinu. Vitað var að hann hefði verið viðstaddur árás- ina á heimili eins hinna ákærðu, Ríkharðs Júlíusar Ríkharðssonar, forsprakka Black Pistons. Í vikunni tók lögregla enn eina skýrsluna af fórnarlambinu, og bar það þá til tíðinda í framburði þess að árásarmönnunum hafði fjölgað úr tveimur í þrjá; sá ungi sem áður hafði bara fylgst með árásinni var skyndilega orðinn þátttakandi. Hann var í kjölfarið hand tekinn og yfirheyrður og hefur, sam- kvæmt heimildum Frétta blaðsins, gengist við að hafa tekið einhvern þátt í árásinni. Ekki hefur náðst í piltinn til að birta honum ákæruna. Fyrirhugað er að aðalmeðferðin haldi áfram að viðbættum hinum nýja sakborningi 12. október. - sh Réttarhöld í handrukkunarmáli Black Pistons-manna taka óvænta stefnu: Unglingur bætist í hóp ákærðu MÆTA Í DÓM Ríkharð Júlíus Ríkharðs- son og Davíð Freyr Rúnarsson eru ekki lengur einu sakborningarnir í málinu. Ranghermt var í blaðinu í gær að Magnús Scheving hefði selt hlut sinn í Latabæ. Hið rétta er að Magnús hefur ásamt eiginkonu sinni, Ragnheiði Melsteð, lagt hlut sinn að fullu inn í nýtt félag sem þau eiga ásamt Turner Broadcasting System. Engin peninga- greiðsla kemur fyrir en þau geta selt hlut sinn að þrem til fjórum árum liðnum, að uppfylltum skilyrðum. ÁRÉTTING VIÐSKIPTI HF Verðbréf hafa auglýst allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar til sölu. Söluferlið er opið fjár- festum sem uppfylla hæfniskilyrði laga um verðbréfaviðskipti. Stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar var 625,8 milljónir í lok árs 2010 og er fjöldi stofnfjáraðila 86. Bankasýsla ríkisins fer með hlut ríkissjóðs í sparisjóðnum en hann nemur 49,5 prósentum af stofnfé. Heildareignir sparisjóðsins voru metnar á um 5,223 milljarða króna í lok árs 2010. Var eiginfjárhlutfall hans 20,3 prósent. - mþl HF Verðbréf annast söluferlið: Selja Sparisjóð Norðfjarðar GENGIÐ 09.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 217,9881 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,51 117,07 185,63 186,53 160,72 161,62 21,579 21,705 21,393 21,519 18,116 18,222 1,4983 1,5071 183,55 184,65 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.