Fréttablaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 91
LAUGARDAGUR 10. september 2011 55
Kl
ap
pa
rs
tíg
ur
Laugavegur
Hverfisgata
29
Rakarastofan
Klapparstíg
Klapparstíg 29 • Sími 551 3010
Opið lau kl. 10-14
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Elisabetta Canalis, fyrrverandi
kærasta George Clooney, sagði
í viðtali við ítalska tímaritið Chi
að sambandsslit fengju mikið á
hana.
„Mér finnst alltaf að mér hafi
mistekist þegar sambönd mín
ganga ekki upp. Það er ekkert
fallegt við það að kveðja ástina
sína,“ sagði Canalis, en hún var í
sambandi með Clooney í tæp tvö
ár. „Ég er svolítil strákastelpa
í mér en þegar ástin er annars
vegar læt ég vaða yfir mig. Ég er
að leita að manni sem getur fært
mér öryggi.“
Erfitt að
kveðja Georg
SÁR Elisabetta Canalis segir erfitt að
hætta í sambandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Tímaritið Star Magazine greindi
frá því fyrir helgi að Vilhjálmur
Bretaprins og eiginkona hans,
Kate, ættu von á tvíburum innan
skamms. Talsmaður konungs-
hallarinnar vísar þó þessum
fréttum á bug.
„Væri fréttin rétt hefði
konungs höllin sjálf sent frá sér
tilkynningu þess efnis, ekki
slúður rit,“ sagði talsmaðurinn.
Vilhjálmur hefur áður tjáð sig
um barneignir og sagði hjónin
ekki ætla að flýta sér. „Við tökum
eitt skref í einu. Fyrst viljum við
njóta hveitibrauðsdaganna og svo
munum við íhuga barneignir. En
vissulega viljum við bæði eignast
börn í framtíðinni.“
Barneignir
fá að bíða
EKKI ÓLÉTT Vilhjálmur Bretaprins og
Kate eiga ekki von á tvíburum.
NORDICPHOTOS/GETTY
David Walliams, sem er þekktastur fyrir
að vera annar af Little Britain-tvíeykinu,
hefur vakið mikla athygli í breskum fjöl-
miðlum fyrir nýjasta athæfið sitt, að synda
niður eftir allri Thames-ánni. Sundið er
allt í allt 140 mílur, eða 225 kílómetrar, en
Walliams syndir það til styrktar góðgerða-
samtökunum Sport Relief. Hann hefur nú
þegar safnað rúmlega 330 þúsund pundum.
En sundið hefur reynt mikið á líkamlegt
og andlegt þrek leikarans því áin Thames
þykir ákaflega skítug og strax á öðrum degi
varð grínistinn fyrir barðinu á svokallaðri
Thames-veiru sem veldur því að hann
kastar upp og á erfitt með að matast. Hann
hefur haft háan hita en þrátt fyrir viðvar-
anir lækna ætlar Walliams sér að klára
sundið. Samkvæmt Daily Mail hefur honum
því verið ráðlagt að notast við saltlausnir
til að halda orku en hann hefur ekki haldið
neinu niðri í næstum tvo daga. Sundið mun
standa yfir í átta daga.
Allir helstu fjölmiðlar Bretlands hafa
fylgst með leikaranum synda í skítugri
Thames-ánni. Fjölda áhorfenda hefur einn-
ig drifið að og er Little Britain-stjarnan
hvött áfram með hrópum og köllum. „Ég
hélt á einum tímapunkti að Take That væri
á báti á eftir mér, slíkur var hávaðinn,“ lét
Walliams hafa eftir sér. Þetta er reyndar
ekki í fyrsta skipti sem hann syndir til
styrktar Sport Relief því leikarinn synti
yfir Ermarsundið árið 2006 og safnaði þá
einni milljón.
Little Britain-stjarna á sundi
SUNDGARPUR David Walliams ætlar að synda niður eftir
öllu Thames-fljótinu á átta dögum. Hann er þegar orðinn
veikur vegna Thames-veiru sem veldur því að hann getur
næstum ekkert nærst. NORDICPHOTOS/GETTY