Fréttablaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 74
10. september 2011 LAUGARDAGUR38 Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang- ömmu og systur, Sigríðar Ingunnar Ólafsdóttur Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Hæðargarði 33, Reykjavík, sem andaðist á heimili sínu 23. ágúst. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 2B á Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun og hlýju. Signý Þ. Óskarsdóttir Ólafur H. Óskarsson Ingibjörg Björnsdóttir Anna H. Óskarsdóttir Þorgrímur Ólafsson Þráinn Sigurbjörnsson Skarphéðinn P. Óskarsson Valgerður G. Björnsdóttir Vigdís S. Ólafsdóttir Jónas M. Ólafsson Guðrún B. Guðlaugsdóttir Sigurrós Ólafsdóttir Aðalheiður Sigurjónsdóttir Skapti S. Ólafsson Kolbrún G. Gunnarsdóttir Ólöf J. Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Valgeir Ásbjarnarson Brekkugötu 38, Akureyri, lést mánudaginn 5. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 19. september kl. 13.30. Ásta Axelsdóttir Axel Valgeirsson Hanna Guðrún Magnúsdóttir Ásbjörn Árni Valgeirsson Harpa Hrafnsdóttir Kristjana Valgeirsdóttir Ríkarður G. Hafdal Gunnlaug Valgeirsdóttir Ríkharður Eiríksson afa- og langafabörn Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Friðriks Péturs Valdimarssonar Tunguvegi 4, Njarðvík. Ólafía Friðriksdóttir Birgir Vilhjálmsson Þórunn Friðriksdóttir Ragnar Halldórsson Oddbjörg Friðriksdóttir Erlendur Borgþórsson Anna Hulda Friðriksdóttir Árni Klemenz Eiðsson Sigrún Alda Jensdóttir Snorri Snorrason afa- og langafabörn timamot@frettabladid.is 36 „Við viljum stuðla að fræðslu um sjálfs- víg á hófstemmdan hátt því þetta eru viðkvæm mál. Þó þarf að ræða þau, ekki síst til að efla forvarnir. Það þarf að hjálpa fólki framhjá þeirri hugs- un að öll sund séu lokuð,“ segir séra Halldór Reynisson um kyrrðarstund í Dómkirkjunni í kvöld klukkan 20 á alþjóðadegi sjálfsvígsforvarna. Auk tónlistarflutnings Elvars Bragasonar og Steingríms Þórhallssonar organista mun Benedikt Guðmundsson aðstand- andi segja frá reynslu sinni og séra Sig- rún Óskarsdóttir flytja hugvekju. Að baki athöfninni stendur samstarfshóp- ur á vegum þjóðkirkjunnar, landlækn- isembættisins, geðsviðs LSH, Nýrrar dögunar, Hugarafls, Geðhjálpar og aðstandenda. Að henni lokinni verður gengið að Tjörninni þar sem kertum verður fleytt til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Sérstök vefsíða www.sjalfsvig.is verður einnig opnuð í dag að sögn séra Halldórs. „Síðan er bæði hugsuð sem forvörn fyrir þá sem eru í sjálfsvígs- hugleiðingum og aðstandendur þeirra sem hafa svipt sig lífi,“ segir hann. „Svo erum við að gefa aftur út bækling sem heitir Ástvinamissir vegna sjálfs- vígs, sem kom út fyrir tveimur árum og hefur gengið hraðar út en við áttum von á. Bæði verkefnin eru studd af minningarsjóði um ungan mann, Orra Ómarsson, sem féll fyrir eigin hendi fyrir tæpum tveimur árum.“ Sú napra staðreynd að hér á landi verða 33 til 37 sjálfsvíg á ári er meðal þess sem samstarfshópurinn vill vekja athygli á, að sögn séra Halldórs. „Hvert sjálfsvíg er harmleikur. Oft er um að ræða einstaklinga í blóma lífsins sem af einhverjum ástæðum hafa ákveð- ið að snúa baki við lífinu,“ segir hann og bendir líka á að í kringum hvert til- felli verði fimm til fimmtán einstak- lingar fyrir mjög alvarlegum áföllum. „Það tekur tvö til fjögur ár fyrir fólk að ná einhverju jafnvægi á nýjan leik og það getur bara verið hálf óvinnufært á meðan,“ segir séra Halldór, sem kynn- ist þessum erfiðu málum meðal annars í starfi sínu hjá Nýrri dögun. En hver eru helstu vopnin í barátt- unni gegn sjálfsvígum? „Við erum að reyna að kasta björgunarhringjum sem víðast,“ segir séra Halldór. „Eitt verk- efnið er að ræða þessa hættu við ungt fólk. Hjá því er stundum einhver rör- hugsun í gangi og það einblínir á eitt atriði sem vex því í augum en sér ekki öll hin. Við verðum að opna augu þess fyrir því að vandamálin eru ekki jafn alvarleg og þau virðast. Við getum fundið lausnir og það er alltaf von.“ gun@frettabladid.is ALÞJÓÐADAGUR SJÁLFSVÍGSFORVARNA: KYRRÐARSTUND Í DÓMKIRKJUNNI KL. 20 Verðum að kasta björgunar- hringjum sem allra víðast SÉRA HALLDÓR REYNISSON „Það þarf að hjálpa fólki framhjá þeirri hugsun að öll sund séu lokuð,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þýsk orrustuflugvél flaug yfir Austurland og gerði árás á tvö hús á Breiðdalsvík og tvo fiskibáta úti fyrir Austfjörðum þennan mánaðardag árið 1942. Skotin komu úr vélbyssu. Skemmdir urðu á húsunum en fólk slapp án meiðsla. Þetta var ein af sjö loftárásum sem gerðar voru hér á landi á þriggja mánaða tímabili þetta sama ár. Í þeim var ýmist varpað sprengjum eða skotið af vél- byssum og stundum var hvort tveggja gert í senn. Í þessum sjö árásum lét einn skipverji á togaranum Verði lífið og tveir leikbræður á Seyðisfirði slösuðust mikið þegar sprengja lenti rétt hjá þeim. Annar þeirra missti fót. Litlu mátti muna að fleiri stórslys yrðu. Sjómönnum tókst stundum að bjarga sér með því að stýra bátum sínum í krákustígu og verjast þannig skotum og sleppa við sprengjur sem féllu allt í kringum þá. ÞETTA GERÐIST: 10. SEPTEMBER 1942 Skotið var á íslenska bæi og báta BARÐI JÓHANNSSON, tónlistarmaður, á afmæli í dag. „Munurinn á góðum og slæmum listamanni er að sá góði kann að hætta.“ Merkisatburðir 1908 Fyrstu almennu leynilegar kosningar til Alþingis eru haldnar, en áður hafði verið kosið í heyranda hljóði. 1908 Bann við innflutningi áfengis er samþykkt í þjóðar- atkvæðagreiðslu. 1911 Minnisvarði eftir Einar Jónsson um Jón Sigurðsson er afhjúpaður framan við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík. 1950 Í Hellisgerði í Hafnarfirði er afhjúpaður minnisvarði um Bjarna Sívertsen riddara, sem hóf verslun í Hafnarfirði. 1960 Samtök hernámsandstæðinga eru stofnuð. 1977 Síðasta aftaka með fallöxi fer fram í Frakklandi. 2006 Michael Schumacher tilkynnir að hann muni hætta keppni í Formúlu 1 í lok ársins. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, sonar, bróður, mágs, afa og langafa, Halldórs Sigurðar Guðmundssonar plötu- og ketilsmiðs, Bakkastöðum 73, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Bergljót Harðardóttir Hulda Björk Halldórsdóttir Sigfús Jónas Guðnason Guðmundur Halldórsson Þröstur Reyr Halldórsson Steinunn Guðjónsdóttir Hulda R. Einarsdóttir Jón Pálsson Jón Guðmundsson Guðrún Ólafsdóttir Helgi Guðmundsson Anna Magnúsdóttir afabörn og langafabarn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Guðbjargar Gísladóttur frá Selnesi, Gullsmára 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Ingibjörg Óskarsdóttir Helgi Óskar Óskarsson Kristín Þorkelsdóttir Þröstur Óskarsson Guðrún Margrét Karlsdóttir Svala Óskarsdóttir Bjarni Sævar Geirsson barnabörn og langömmubörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.