Fréttablaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 10. september 2011 13
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
NS
KA
SI
A.
IS
A
RI
56
27
5
09
/1
1
Heimilisbókhald Arion banka
Ókeypis námskeið
í Meniga
Arion banki býður viðskiptavinum sínum námskeið
fyrir byrjendur í notkun Meniga heimilisbókhaldsins.
Lærðu grunnatriðin og þú kemst að því hvað það getur
verið létt og skemmtilegt að sinna heimilisbókhaldinu.
Námskeiðið er haldið miðvikudaginn 14. september
kl. 17.30 í Háskólanum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is
BÓLIVÍA Yfirvöld í Bólivíu hafa lagt fram
lagafrumvarp sem mun veita náttúrunni
sömu réttindi og manneskju. Lögin bera
heitið „Lögmál Móður jarðar“ og er þetta í
fyrsta sinn sem svo róttækar breytingar eru
lagðar fram í heiminum er varða náttúru-
vernd. Þetta kemur fram á vef Guardian.
Ríkar steinefnanámur landsins eru nú
skilgreindar sem „blessun“ og er það meðal
annars talið munu leiða til róttækra breyt-
inga í friðun landsins og samfélagslegri
ábyrgð til að draga úr mengun.
Lögin eru í ellefu þáttum og varða þeir
allir réttindi náttúrunnar til að vera til.
Meðal þeirra eru réttindi hennar til lífs,
réttindi hennar til tilveru án afskipta
manna, aðgang að hreinu vatni og hreinu
lofti, rétt til að vera ekki menguð og verða
ekki genabreytt af mannfólkinu.
Eitt umdeildasta atriðið er talið réttur
náttúrunnar til að verða ekki fyrir áhrifum
af stórum mannvirkjum og þróunarfram-
kvæmdum sem gætu raskað jafnvægi líf-
ríkis eða velferð íbúa.
Lögmál móður jarðar eru hluti af heildar-
endurskilgreiningu á bólivíska lagakerfinu
sem kom í kjölfar breytinga á stjórnarskrá
landsins árið 2009. Þau eru undir miklum
áhrifum af andlegum heimssjónarmiðum
frumbyggja Andesfjalla sem líta á náttúr-
una og jörðina sem miðpunkt alls lífs.
- sv
Bólivísk yfirvöld eru brautryðjendur í náttúrvernd í heiminum:
Náttúran fær sömu réttindi og mannfólkið
SAJARMA-ELDFJALLIÐ Í BÓLIVÍU Ein af greinum nýju
laganna snýst um að náttúran hafi sama rétt á hreinu
vatni og lofti og mannfólkið. NORDICPHOTOS/GETTY
VIÐSKIPTI Samningar hafa ekki
tekist um sölu á eftirstandandi
eignum þrotabús útgerðarfyrir-
tækisins Eyrarodda á Flateyri.
Sigurður Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Fish, sem
lagði fram tilboð í eignirnar í
ágúst, segir furðu sæta að niður-
staða sé ekki komin í málið.
Ekki náðist í skiptastjóra Eyrar-
odda í gær.
Eyraroddi fór í þrot í byrjun
árs og misstu við það 42 starfs-
menn vinnuna. Útgerðarfyrir-
tækið Lotna gekk frá kaupum
á hluta eigna fyrirtækisins um
miðjan síðasta mánuð. Arctic
Fish keypti fyrir skömmu Dýr-
fisk á Þingeyri sem stundar eldi á
regnbogasilungi. - jab
Mál Eyrarodda enn óleyst:
Furðar sig á
töfum málsins
FLATEYRI Níu mánuðir eru síðan
Eyraroddi á Flateyri var úrskurðaður
gjaldþrota. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL Manni á þrítugsaldri
hefur verið birt ákæra fyrir árás á
lögregluþjón 9. apríl síðastliðinn.
Samkvæmt ákærunni brást
maðurinn hinn versti við þegar
lögregluþjónninn hugðist rétta
honum vatnsglas og sló til hans.
Lögreglumaðurinn vék sér undan
högginu en þá náði maðurinn taki
á höfði hans, þrýsti því að sér og
sló hann í kjölfarið í búkinn. Lög-
regluþjónninn hlaut hruflsár hér
og þar um líkamann.
Ákæran var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. - sh
Ákærður fyrir árás:
Greip um höfuð
lögreglumanns
KÍNA Kínversk yfirvöld hafa gefið
í skyn að innan tíðar muni þau
hætta að handstýra gengi gjald-
eyris síns júansins. Að sögn tals-
manns verslunarráðs ESB í Kína
hafa embættismann þar í landi
sagt að gengi júans yrði komið á
flot fyrir árið 2015.
Þetta eru nokkur tíðindi þar sem
Kínverjar hafa legið undir ámæli
í áraraðir fyrir að halda genginu
lágu gagnvart evru og Bandaríkja-
dal, til þess að styrkja samkeppn-
ishæfni útflutningsgreina. Undan-
farið hafa matsaðilar þó talið að
raungengi júansins hafi sannar-
lega verið að lækka. - þj
Tímamót í augsýn hjá Kína:
Júanið á flot
fyrir árið 2015
SAMGÖNGUR Loftferðasamningur
sem Ísland hefur gert við Víetnam
heimilar flugrekendum ríkjanna
að fljúga áætlunarflug með far-
þega til ákvörðunarstaða í hvoru
ríki og áfanga- og viðkomustaða
á flugleiðinni auk heimilda fyrir
fraktflug.
„Samningurinn opnar einnig
möguleika fyrir íslenska flug-
rekendur til að bjóða upp á leigu-
flug milli Íslands og Víetnams.
Samningurinn við Víetnam styrk-
ir möguleika íslenskra flugrek-
enda sem hafa sinnt og vilja sinna
verkefnum í þessum heimshluta,“
segir í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu sem kveður stefnt að
undirritun loftferðasamninga við
Armeníu, Barbados, Brasilíu, Síle,
Jamaíku og Kólumbíu. - gar
Nýr loftferðasamningur:
Geta boðið flug
til Víetnam