Fréttablaðið - 10.09.2011, Page 30
10. september 2011 LAUGARDAGUR30
Lausir tímar til leigu í íþróttahúsi
Menntaskólans við Sund
Í íþróttahúsi Menntaskólans við Sund eru lausir til leigu
nokkrir tímar í vetur. Nánari upplýsingar er að finna á vef
skólans www.msund.is.
Rektor
Í
viðtali við Fréttablaðið um
síðustu helgi reiddi eitís-
popparinn Paul Young fram
uppskrift að einfaldri en ljúf-
fengri pastasósu, enda er
hann einlægur áhugamaður
um matargerð og leitar þessa dag-
ana að útgefanda fyrir kokkabók
sína „Paul Young on His Travels“,
auk þess að leggja drög að opnun
veitingastaðar í London.
En Paul Young er ekki eina stjarn-
an úr skemmtanaiðnaðinum sem
þráir að færa ástríðu sína fyrir
matargerð úr eldhúsinu heima hjá
sér og fyrir augu og bragðlauka
almennings. Margt frægðarfólk
hefur ákveðið að reyna sig við slíkt
með misjöfnum árangri.
Hin svarta Rachel Ray
Rapparinn Coolio, sem gerði garð-
inn frægan um miðjan tíunda ára-
tuginn með smellum á borð við
Gangsta‘s Paradise og C U When
U Get There, vakti athygli þegar
hann gaf út bók sína Cookin‘ with
Coolio – 5 Star Meals At A 1 Star
Price (Eldað með Coolio – 5 stjörnu
máltíðir á 1 stjörnu verði) síðla árs
2009. Í bókinni leiðir rapparinn,
sem staðhæfir að hann sé „Martha
Stewart minnihlutahópahverf-
anna og svarta útgáfan af Rachel
Ray“, lesendur í allan sannleika um
leyndardóma „Ghetto gourmet“-
matargerðar sinnar og lýsir réttun-
um á sinn einstaka og óheflaða hátt.
„Allt sem ég elda bragðast betur
en geirvörturnar á mömmu þinni,“
„Steikti kjúklingurinn sem mamma
vinar míns eldaði var vanur að
klæða sig í strigaskó og hlaupa
með djöfulgangi upp í munninn á
mér“ og „Leyfðu eggjunum að baða
sig í heitu vatni í fimmtán mínútur
eins og sænsk, kynæsandi skutla í
náttúrulegu gufubaði“ eru einung-
is örfá dæmi um orðræðu Coolio í
bókinni, svo ekki sé minnst á heil-
ræði rapparans varðandi vorrúllu-
gerð: „Rúllið þeim þétt upp. Eins og
góðri jónu.“
Ólíklegt verður að teljast að
margt áhugafólk um heilbrigð-
an lífsstíl taki uppskriftum Cool-
io fagnandi, þar sem smjörið og
olían lekur af hverju strái. Þó til-
einkar hann kafla fjögur, „Salad
Eatin‘ Bitches“, grænmetisréttum
og býður meðal annars upp á upp-
skrift að Caprese-salati sem finna
má hér á síðunni.
Dreptu það og grillaðu
Af öðru tónlistarfólki sem gefið
hefur út matreiðslubækur má nefna
söngkonuna vinsælu Sheryl Crow,
sem slegið hefur í gegn með lögum
Matur að hætti
fræga fólksins
Nafntogaðir tónlistarmenn og leikarar í útlöndum elda eins og við hin og
sumir þeirra hafa meira að segja gengið svo langt að bera kokkahæfileika
sína á borð fyrir almenning. Kjartan Guðmundsson rifjaði upp nokkrar upp-
skriftir og matreiðslubækur þeirra frægu, ríku og látnu.
eins og All I Wanna Do, Everyday
Is a Winding Road og If It Makes
You Happy. Síðastnefnda lagið varð
Crow líka innblástur að titli mat-
reiðslubókar hennar If It Makes
You Healthy, sem hún gaf út fyrr á
þessu ári. Söngkonan fékk brjósta-
krabbamein fyrir nokkrum árum
og ákvað í kjölfarið að breyta lífs-
stíl sínum og borða hollari mat,
sem varð kveikjan að bókinni.
Þá má ekki gleyma bandaríska
rokkaranum Ted Nugent, sem hefur
lengi verið ötull talsmaður réttar
almennings til að eiga skotvopn og
háð marga hildi við hin ýmsu dýra-
verndarfélög. „Það er fátt fyndnara
en fólk sem telur að dýr eigi að hafa
einhver réttindi,“ sagði Nugent eitt
sinn í viðtali og til að leggja áherslu
á mál sitt gaf hann út bókina Kill
It & Grill It ásamt Shemane eigin-
konu sinni. Eins og nafnið gefur til
kynna inniheldur bókin upplýsing-
ar um vænlegustu aðferðirnar, að
mati hjónakornanna, til að drepa og
elda villibráð.
Einnig hafa kántrígoðsagnirnar
Kenny Rogers og Tammy Wynette
gefið út matreiðslubækur (sem
heita þeim hugmyndaríku nöfnum
Cooking with Kenny Rogers og The
Tammy Wynette Southern Cook-
book), auk Franks Sinatra, Lindu
McCartney og Liberace heitinna,
söngkvennanna Patti LaBelle,
Gloriu Estefan og fleiri tónlistar-
manna.
Þá kom árið 1996 út matreiðslu-
bókin In the Kitchen with Miss
Piggy, þar sem sjálf Svínka úr
Prúðuleikurunum safnar saman
uppskriftum frá ýmsu frægu fólki
á borð við Harry Belafonte, Clint
Eastwood, Jodie Foster, Brooke
Shields, Samuel L. Jackson og John
Travolta. Svínakjöt er meðal þeirra
hráefna sem notast er við í bókinni,
sem minnir óþægilega á það þegar
fígúran Þorri þorskur var látin aug-
lýsa þorskalýsi hér um árið.
Lætur þér líða vel
Þegar gamanleikarinn þéttvaxni
Dom DeLuise gaf út matreiðslubók
sína Eat This ... It’ll Make You Feel
Better árið 1988 naut hún svo mik-
illa vinsælda að tvær framhalds-
bækur, Eat This Again og Eat This
Too fylgdu í kjölfarið. Titill bókar-
innar er eftirtektarverður í ljósi
þess að tveimur áratugum síðar
lést leikarinn á sjúkrahúsi, þar sem
hann lá sökum lifrarbilunar og of
hás blóðþrýstings.
Af öðrum lunknum leikurum í
eldhúsinu má nefna Tony Danza,
stjörnu Who‘s the Boss-þáttanna
sígildu, sem hefur sérhæft sig í að
leika ítalskar/bandarískar steríó-
týpur og vék ekki frá þeirri reglu
með útgáfu bókarinnar Don’t Fill
Up on the Antipasto sem er pakk-
full af ítölskum uppskriftum.
Hrollvekjumeistarinn Vincent
Price sendi frá sér kokkabók og
einnig Hollywood-leikkonurnar
Eva Longoria, Alicia Silverstone
og Gwyneth Paltrow, þótt óvíst sé
hversu hátt hlutfall lesenda geti
fylgt þeim ráðum þeirrar síðast-
nefndu að best sé að baka pitsur í
eldofni eins og þeim sem leikkonan
á og geymir í garðinum sínum.
Einn frægasti matmaður tónlistarsögunnar,
kóngurinn Elvis Presley, gaf því miður ekki
út matreiðslubók meðan hann var á lífi.
Eftir dauða hans hafa þó nokkrar slíkar
verið skrifaðar og þeirra frægust er líklega
Are You Hungry Tonight? eftir Brendu
Arlene Butler frá 1992. Þar má meðal
annars finna uppskrift að þessum ein-
kennisrétti kóngsins:
Steikt hnetusmjörs- og banana-
samloka
1 lítill og þroskaður banani
2 sneiðar af franskbrauði
3 matskeiðar af hnetusmjöri
2 matskeiðar af smjöri
1. Stappið bananann með bakhluta skeiðar í lítilli skál.
2. Léttristið brauðið.
3. Smyrjið hnetusmjörinu á aðra brauðsneiðina og stappaða banananum
á hina.
4. Steikið samlokuna í bráðnu smjöri þar til báðar hliðar eru gullinbrúnar.
Skerið frá horni til horns og berið fram heitt.
■ UPPÁHALD KÓNGSINS
Innihald:
Buffalo-mozzarella ostur
Miðlungsstór laukur
Stór tómatur
Fersk basilíka
Balsamik-edik
Ólífuolía
Smá af salti
Aðeins minna af pipar
Smá oregano
Leiðbeiningar:
1. Skerið tómatinn í átta eða níu
skítþunnar sneiðar og dreifið
þessum skít um diskinn.
2. Skerið laukinn í þunnar sneiðar
og dreifið ríflega. Mjög ríflega.
3. Skerið niður ostinn og komið
honum fyrir í kringum tómatana.
Þetta snýst allt um framsetningu,
tíkur!
4. Þrumið smá salti á diskinn. Shaka!
5. Og svo smá pipar. Zulu!
6. Hristið örlítið af ólífuolíu yfir allt
heila klabbið, því olíublautt salat
er rusl.
7. Þekið alla auða bletti með
balsam ediki. Framsetning,
muniði?
8. Komið ykkur í gírinn.
9. Takið ferskt basil og skvettið yfir
allt draslið.
10. Skvettið líka smá oregano.
11. Ef það lítur vel út, lyktar vel og
bragðast vel, þá er það GOTT.
Shaka Zulu!
12. Takið hreinan gaffal og setjið
smá tómat, smá basil, smá ost
og smá lauk og leyfið þessu að
hlaupa um í munninum.
13. Fylgist með nærbuxunum renna
niður.
Úr matreiðslubókinni Cookin‘ with Coolio
■ CAPRESE-SALAT COOLIOS
Kántrýboltanum Dolly Parton er ýmislegt til
lista lagt fyrir utan sönginn og lagasmíðarnar.
Í matreiðslubók hennar, Dolly‘s Dixie Fixin‘s
frá 1996, er að finna þessa uppskrift að fimm
laga kvöldverði fyrir átta manns.
2 bollar af skornum kartöflum
2 bollar af nautahakki
1 bolli af skornum lauk
2 bollar af soðnum tómötum
Salt og pipar
1 græn paprika, skorin
Leggið kartöflurnar, nautahakkið, laukinn
og tómatana í eldfast mót og kryddið hvert lag með
salti og pipar eftir smekk. Stráið skornu paprikunni ofan á. Setjið álpappír
yfir og eldið í tvær klukkustundir í 175 gráðu heitum ofni.
■ FIMM LAGA KVÖLDVERÐUR DOLLY PARTON