Fréttablaðið - 10.09.2011, Page 49
LAUGARDAGUR 10. september 2011 7
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Fjölbreytt störf í boði
hjá Actavis á Íslandi
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 18. september nk.
Sérfræðingur í þróun mæliaðferða
Þróunardeild mæliaðferða sér um þróun og gildingu á mæliaðferðum sem notaðar eru við þróun á nýjum lyfjaformum og við losun á
framleiðsluvörum á markað. Starfið er sambland af hópavinnu, verklegri vinnu á rannsóknarstofu, úrvinnslu á gögnum og skýrslugerð.
Helstu verkefni:
Þátttaka í verkefnahópum sem vinna að þróun nýrra
lyfjaforma
Þróun og gilding á mæliaðferðum
Umsjón með tækjabúnaði og innleiðing á nýrri tækni
og verklagi
Starfsmaður á lager
Lagerinn heyrir undir vörustjórnunarsvið Actavis hf. og skiptist í hráefnalager, pökkunarefnislager og fullbúinn lager.
Helstu verkefni:
Móttaka hráefna og pökkunarefna
Skráning og frágangur á hráefnum og pökkunarefnum
Afhending hráefna og pökkunarefna inn á vinnslusvæði
og frágangur eftir notkun
Frágangur fullbúinnar vöru til útflutnings
Frágangur lyfja og annarra vara til eyðingar
Frágangur og flokkun vegna endurvinnslu
Starfsmaður í pökkun
Í pökkunardeild fer fram vélakeyrsla í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir vinnslu og skjalfesting. Einnig tæknileg umsjón/aðstoð
við uppsetningu auk breytinga og stillinga á pökkunarlínum. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Ef þú ert...
hress og jákvæð/ur
stundvís
samviskusöm/samur og getur tileinkað þér
nákvæm vinnubrögð
verklagin/n
með góða enskukunnáttu
góð/ur í að vinna í hópi
Við leitum að einstaklingi:
með háskólapróf á sviði raunvísinda
með þekkingu á efnafræði og efnagreiningum (kostur)
með reynslu af rannsóknarstörfum þar sem krafist er nákvæmni
og staðlaðra vinnubragða við öflun og úrvinnslu gagna
með góða samskiptahæfni
með góða ensku- og tölvukunnáttu
Þekkingar- og hæfniskröfur:
Reynsla af lagerstörfum er kostur
Lyftarapróf mjög æskilegt
Góð tölvuþekking
Vinnutími:
Þriðju hverja viku er unnið frá kl. 10 til 19 á virkum dögum, ásamt
skipulagðri helgarvinnu. Einnig er um tilfallandi yfirvinnu að ræða.
… þá bjóðum við
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag
sími: 511 1144