Fréttablaðið - 10.09.2011, Síða 83
LAUGARDAGUR 10. september 2011 47
Flugvirkjun
Flugskóli Íslands/Tækniskólinn og Lufthansa Resource Technical
Training bjóða nýtt nám í flugvirkjun. Leyfi og viðurkenning náms er
á vegum Lufthansa Resource Technical Training, sem er viðurkenndur
þjálfunaraðili, Part 145. Námið er viðurkennt af íslenskum flugmála-
yfirvöldum.
Kennt er í tvær annir í staðbundnu námi og fjarnámi. Að loknu námi,
gefst nemendum kostur á að sækja um að fara í starfsþjálfun hjá
viðurkenndu viðhaldsfyrirtæki. Námið hefst með staðbundinni lotu
14. nóvember.
Kynningafundur verður í Flugskóla Íslands Bæjarflöt 1-3, mánudaginn
12. september kl. 20:00. Allar nánari upplýsingar eru hjá Flugskóla
Íslands á flugskoli.is eða í tölvupóst á flugvirki@flugskoli.is.
www.flugskoli.is
Vertu vinur okkar á facebook, www.facebook.com/flugskoli
Tónleikar ★★★
Þriðji píanókonsert Rakmaninoffs og
fimmta sinfónía Sjostakóvitsj
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson.
Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy.
Eldborgarsalur Hörpu
Oft glæsilegt
Þeir eru margir píanókonsertarnir sem gera miklar kröfur til einleikarans. En
Everestfjallið í píanóheiminum er líklega þriðji konsertinn eftir Rakmaninoff.
Hann er svínslega erfiður. Ofurhraðar, flóknar nótnarunur eru óteljandi; heljar-
stökkin eftir hljómborðinu eins og áhættuatriði í geimtrylli.
Konsertinn hefur verið fluttur nokkrum sinnum á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Hann fékk að hljóma enn á ný á upphafstónleikum
vetrarins núna í vikunni. Að þessu sinni var Víkingur Heiðar Ólafsson í einleiks-
hlutverkinu, en stjórnandi Vladimir Ashkenazy.
Ashkenazy er sjálfur hættur að spila á píanó, en hann var óumdeilanlega
einn mesti píanóleikari heims. Ef ég man rétt eru til þrjár mismunandi
upptökur á plötum með honum þar sem hann spilar þriðja konsertinn eftir
Rakmaninoff. Þær eru hver annarri magnaðri.
Að leika einleik í þessum konsert, þar sem hljómsveitarstjórinn er slíkt ofur-
menni, og gera það skammlaust, er afrek í sjálfu sér. Víkingur var með langflest
á hreinu, allskyns tækniatriði voru prýðilega af hendi leyst. Hann lék skýrt
og af öryggi. Margt í öðrum kaflanum var flott og ofsafenginn hraði síðasta
kaflans var aðdáunarverður.
Það var samt ekki allt sannfærandi. Þótt túlkunin hafi vissulega skartað
töfrandi augnablikum var hún býsna dauf í það heila í fyrri hluta verksins.
Stígandin hefði oft mátt vera markvissari. Flutningurinn var dálítið svarthvítur,
ýmist algerlega innhverfur eða allt var á fullu. Fyrir bragðið gerðist ekki nóg
í tónlistinni. Heildaryfirbragðið var svo litlaust. Það vantaði spennuna sem
myndast þegar listamaðurinn leyfir frásögninni í tónlistinni að byggjast upp í
trylling – án þess að flýta sér að gera það.
Útkoman var mun betri eftir því sem á leið. Segja má að Víkingur hafi
virkilega komist í gang í seinni hluta konsertsins. Þá var líka gaman!
Hitt verkið á efnisskránni, fimmta sinfónían eftir Sjostakóvitsj, var almennt
betur heppnað. Ashkenazy nær einstaklega vel að segja sögu í tónum, og í
rússneskri tónlist er hann á heimavelli. Í þessu verki er dramatíkin allsráðandi,
frá afar þunglyndislegum ládeyðuköflum upp í rafmagnaða hápunkta. Hljóm-
sveitin spilaði af fagmennsku, strengirnir voru flottir, málm- og tréblásturinn
hnitmiðaður, og allt annað eins og best verður á kosið. Samhljómurinn var líka
fallegur og ég dáðist sérstaklega að bassalínunum, sem komu sérlega vel út.
Helst mátti finna að því að undiraldan í rólegu köflunum var ekki nógu
ógnandi. Túlkunin var ef til vill of stílhrein, Ashkenazy vissi nákvæmlega hvað
hann vildi og hann kom því fumlaust til skila. En af of mikilli skynsemi. Fyrir
bragðið greip tónlistin mann ekki. Jónas Sen
Niðurstaða: Ég hef farið á skemmtilegri tónleika um ævina.