Faxi - 01.12.1976, Qupperneq 18
Elliheimilið í Garðinum, Garðvangur,
var formlega tekið í notkun við hátíð-
lega athöfn þann 13. nóv. s.l. að við-
stöddum mörgum gestum. Meðal þeirra
voru yfirmenn heilbrigðismála á land-
inu og á Suðurnesjum, sveitastjórna-
menn, læknar og forvígismenn samtaka
um málefni aldraðra á Suðurnesjum.
Haraldur Gíslason, sveitarstjóri í Gerða-
hreppi, formaður samstarfsnefndar
sveitarfélaganna um elliheimilismál,
flutti ávarp og lýsti aðdragandanum að
stofnun heimilisins og öðrum þáttum,
og er það birt hér í hei
Það var um haustið 1974, að fyrst
komst til tals, að Gerðahreppur festi
kaup á verbúð af hlutafélaginu Gríms-
hól í Garði. Eigendur voru fiskverk-
endur á staðnum. Húsið hafði þá staðið
autt um langt skeið og var ekki sam-
komulag um rekstur verbúðarinnar.
Húseignin var auglýst til sölu og tókust
samningar milli eigenda og kaupenda
um veturinn.
Hreppsnefnd Gerðahrepps ákvað þann
2. maí 1975 að festa kaup á húseigninni
með það fyrir augum, að hugsanlegt
væri að þetta gæti orðið aðstaða fyrir
aldraða á Suðurnesjum. Var þegar leit-
að álits hjá nærliggjandi sveitarfélögum
um væntanlega þátttöku í slíkum rekstri
yfirvalda fengist.
Öllum er ljóst, að æskilegast er að
aldraðir geti dvalist sem lengst á eigin
heimilum, en sé það ekki fyrir hendi
eru dvalarheimilin lausn á vandanum.
Þó ber að ýta undir sjálfsbjargarvið-
leitni fólks á slíkum stofnunum og efla
aðstöðu þess að tómstunda og félags-
starfa, annað hvort í heimilunum eða í
nánum tengslum við þau.
Við athugun á þörfinni fyrir slikar
stofnanir var haft til hliðsjónar rit heil-
brigðis- og tryggingarmálaráðuneytisins
nr. 3/1973 varðandi vistunarþörf heil-
brigðisstofnana, en þar er gert ráð fyrir,
að þörf fyrir vistunarrými í dvalarheim-
ilum á Suðurnesjum sé á tímabilinu
1980—1985, 35—39 rúm, eða staðall
vistunarrýmis 322 rúm á 100.000 íbúa
GARÐVANGUR — Nýtt elliheimili
Vistmenn býð ég velkomna til nýrra heimkynna
sagði HARALDUR GÍSLASON
í ávarpi sínu við vígslu heimilisins
Að máli hans loknu tóku til máls:
Matthías Bjarnason heilbrigðismálaráð-
herra; Jón Ölafsson formaður rekstrar-
nefndar, Ólafur G. Einarsson alþingis-
maður; Ingólfur Bárðarson frá Lions-
klúbbnum Nirði í Njarðvík, sem afhenti
gjöf til heimilisins, litasjónvarp; Þor-
grímur Einarsson frá Kiwanisklúbbnum
Brú á Keflavíkurflugvelli sem gaf reyk-
og eldskynjunartæki o.fl.; Sigrún Odds-
dóttir frá kvenfél. Gefn, sem gaf sex
lampa; Elsa Líndal frá kvenfél. Njarð-
víkur og færði að gjöf vegglampa og
klukku; Sesselja Magnúsdóttir forstöðu-
kona Hlévangs; Matti Ó. Ásbjörnsson
form. Styrktarfél. aldraðra á Suðurnesj-
um; Sigurbergur H. Þorleifsson hrepp-
stjóri og einnig flutti Guðmundur Finn-
bogason frumort kvæði aí*.þessu tilefni.
Kvenfélögin á Suðurnesjum og Verka-
kvennafél. í Keflavík og Njarðvík voru
með kertasölu til ágóða fyrir elliheim-
ilið.
Við úttekt á húsinu kom í ljós, að
húsið hafði verið tekið í notkun haustið
1972 og rekið sem verbúð í rúmt l'/o ár.
Húsið var þó langt frá því að vera full
búið og var ljóst, að miklar endurbætur
þurftu að fara fram á húsinu, bæði utan
og innan, til þess að gera það íbúðar-
hæft fyrir dvalarheimili og fullnægja
ströngustu reglum þar um. Húsið er
þrjár álmur, sem mætast í kjarna, þar
sem setustofa og borðstofa, samtals 532
ferm. að stærð,teiknað af Rögnvaldi
Johnsen. í vesturálmu er nú heilsu-
gæslustöð með inngangi og einnig eld-
hús, þvottahús, geymslur og kynding.
í austur- og suðurálmum eru 22 her-
bergi auk skrifstofu og snyrtiherberga.
Niðurstöður þessarar úttektar leiddu
í ljós, að möguleikar voru á að breyta
þessu húsi í dvalarheimili fyrir aldraða,
sem væri sjálfbjarga í flestu tilliti, en
gætu notið nauðsynlegrar þjónustu sem
slíkar stofnanir veita, og árangurinn er
sá, sem við sjáum hér í dag.
Hér í þessu húsi eru í dag 24 vist-
menn og í Keflavík 17, eða samtals 41
og nokkrir á biðlista. Ber því hér nokk-
uð á milli í áætlunum um vistunarrým-
isþörfina.
Niðurstöður þessarar könnunar urðu
þær, að húsnæðið mundi henta fyrir 24
—30 vistmenn með miklum stækkunar-
möguleikum, ef þörf krefði. Málinu var
síðan vísað til samstarfsnefndar sveit-
arfélaga á Suðurnesjum, sem kynnti það
sveitarstjórnarmönnum. Sveitarfélögin,
sem sýndu þessu máli áhuga eru: Kefla-
vík, Njarðvík, Miðneshreppur, Vatns-
leysustrandarhreppur, Hafnarhreppur
og Gerðahreppur.
Ákveðið var að senda heilbrigðis- og
tryggingarráðuneytinu bréf og óska eft-
ir samþykki ráðuneytisins fyrir þessu
máli. Bréfið var undirritað af öllum
áðurnefndum sveitarfélögum. Hinn 30.
júlí 1975 var haldinn fundur með full-
trúum frá ráðuneytinu og formleg um-
sókn um rekstrarleyfi fyrir dvalar-
FAXI — 18