Faxi - 01.01.1984, Síða 26
Sjómannablaðið Víkingur
Sjómannablaðið Víkingur hefur
verið aufúgsugestur á heimilum og
vinnustöðum sjómanna í tæp 45 ár. 8.
tölublað 1983 er nýútkomið. Miklar
útlitsbreytingar hafa verið gerðar á
blaðinu og er blaðið í heild mun líf-
legra og nútímalegra en fyrr.
Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda
og má nefna m.a. Greinaroglitmynda-
syrpa í tilefni 90 ára afmælis Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins Old-
unnar. Viðtöl við Guðjón Pétursson,
gamlan Oldufélaga, Gunnar Gunnars-
son, stjómarmann í Öldunni og Lauf-
eyju Halldórsdóttur, ekkju Guð-
mundar H. Oddssonar. Laufey var
fyrsti formaður kvenfélags Öldunnar.
Þá eru greinar um Lífeyrissjóðinn
Hlíf, um fund forsvarsmanna-stýri;
mannaskóla á Norðurlöndum, Tölvu-
ratsjáin ARPA er kynnt, Ásgeir
Matthíasson ritar grein um blóðgun og
slægingu bolfisks. Stefán Þórarinsson
ritar grein um ýmsa mikilvæga þætti
sem hafa ber í huga þegar rætt er um
endumýjun fiskiskipaflotans. Kjartan
Bergsteinsson fjallar um aukabúnað
við örbylgjustöðvar.
Smásagan er eftir Hafliða Magnús-
son frá Bíldudal. Myndasyrpa og
kynning frá björgunaræfingu í m/s
Skaftá. Föstum þáttum mun fjölga
nokkuð í næstu tölublöðum, en tveir
slíkir em þegar komnir á sinn stað í
blaðinu. Þeir em ,,Eg skipti“ þar sem
leitað er svara við spumingum les-
enda. í þessu blaði var spurt um flutn-
ing eiturefna, og ummæli sjvarútvegs-
ráðherra, um að lögleiða frídag sjó-
manna. Hinn þátturinn nefnist ,,Við
kabyssuna" og er ætlunin að kynna
margvíslega matreisiumöguleika á
sjávarréttum.
Nú er hart vegið að sjómannastétt-
inni og því aldrei brýnna en einmitt nú
að standa vörð um hagsmuni hennar.
Sjómannablaðið Víkingur er eina mál-
gagn Far- og fiskimannasambandsins.
Á 31. þingi þess í nóv. s.l. var sam-
þykkt að stórefla blaðið. Nú stendur
Unnið að björgun báta, sem rak upp í fjöru í Sandgerði íóveðrinu.
Myndin er af starfsliði blaðsins. Frá
vinstri: Elísabet Þorgeirsdóttir rit-
stjóri, Kristín Einarsdóttir auglýs-
ingastjóri og G. Margrét Óskarsdótt-
ir útgáfustjóri.
yfir mikil herferð í útbreiðslu þess,
bæði hvað varðar áskrift og lausasölu.
Það hefur vakið nokkra athygli að
þeir 3 starfsmenn sem vinna við blaðið
eru konur, Elísabet Þorgeirsdóttir rit-
stjóri, Kristín Einarsdóttir auglýsinga-
stjóri og G. Margrét Óskarsdóttir út-
gáfustjóri.
Setningu, umbrot og prentun annast
Prentstofa G. Benediktssonar. Rit-
stjóm, afgreiðsla og auglýsingar er í
Borgartúni 18, sími 29933.
Fárveður
f veðrafárinu sem gekk yfir mikinn
hluta landsins í fyrstu viku ársins varð
víða stórtjón á eignum, en manntjón
varð hvergi svo vitað sé.
Sums staðar lá þó nærri að svo yrði er
menn unnu að björgunarstörfum t.d. í
Sandgerði. Þar slitnaðu 11 bátar frá
landfestum og rak upp í fjöm. Þrír
þeirra em dæmdir ónýtir. Er Svavar
Ingibersson, skipstjóri, ætlaði að
bjarga báti sínum frá fjömgrjótinu sem
hann lamdist við, með því að festa í
vörubifreið og draga bátinn aftur út að
bryggjunni, en í sömu svipan gekk
mikið ólag yfir bryggjuna, sem þeytti
bflnum út í höfnina. Rólegheit Svavars
hafa vafalaust bjargað honum. Hann
beið meðan hús bifreiðarinnar nær
fylltist, en þá gat hann skrúfað niður
bflrúðuna og komst þar út, svamlaði að
bryggju þar sem tveir sjómenn björg-
uðu honum.
Svavar var fluttur á sjúkrahúsið í
Keflavík, þar sem hann hresstist fljót-
lega.
Friðrik aftur sölukóngur
Hann seldi 100 jóla-Faxa og þurfti
meira en þá var blaðið uppselt í af-
greiðslunni.
Leifur Isaksson, sveitarstjóri.
Stálfélagið h/f
All mörg ár em liðin síðan farið var að
ræða um að koma á fót Stálbræðslu hér
á landi. Árlega fellur mikið til af brota-
jámi, sem hingað til hefur ýmist verið
flutt út til endurvinnslu eða að það
liggur hér hist og her, til óþurftar og
óþrifa. Lengi vel var talið að brotajám
þetta nægði ekki til að arðbært teídist
að endurvinna það hér. Mikil fólks-
fjölgun (tvöföldun á 40 ámm) og stór
aukin umsvif leiða til mikillar aukning-
ar brotajáms og því lflcur fyrir að arð-
semi aukist. Formlegt félag hefur nú
verið stofnað og því valið heimilisfang í
Vatnsleysustrandarhreppi - kannske
ekki að ástæðulausu þar sem hreppur-
inn hyggst leggja til 20% af hlutafénu.
Á aðalfundi í haust var svo Leifur
ísaksson, sveitarstjóri í Vogum kosinn
formaður stjómar, en hann hefur
reynst dugmikill og vökull sveitarstjóri
og því líklegur til að búa Stálfélaginu
traustan gmndvöll.
Þegar maður hefur ekið um Kúa-
gerði síðustu vikumar, hafa þunga-
vinnuvélar og mannskapur sést þar að
verki og nú nýverið var búið að móta
þar fyrir húsgmnni.
26-FAXI