Faxi - 01.01.1984, Side 28
MINNING
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
Fædd 20. mars 1899 — Dáin 28. desember 1983
Amma er dáin...
Síðustu dagana, sem ég heim-
sótti ömmu á spítalann, bað ég til
guðs, að hann tæki til sín þá
stærstu gjöf, sem hann hafði gefið
okkur systkinunum, sem hann og
gerði á hægan og þjáningarlausan
hátt.
Þegar móðir mín, Bergey Jó-
hanna Júlíusdóttir, féll frá í svefni,
öllum að óvörum fyrir aldur fram
24. nóvember 1979, var í raun, sem
hún hefði tekið ömmu með sér,
slíkt var henni áfallið, eftir það
varð hún bjargarlaus og lagðist inn
á Sjúkrahús Keflavíkur skömmu
seinna, naut hún góðrar aðhlynn-
ingar starfsfólksins síðustu 4 ár
ævinnar.
Nú þegar amma er dáin, og ég
nýbúinn að biðja guð að taka það
sem hann gaf, tekur við söknuður
og minningamar ná svo sterkum
tökum á mér, að ég vildi helst af
öllu upplifa þær aftur. Þegar ég lít
til baka geri ég mér grein fyrir því
að mikil kaflaskil hafa orðið í lífi
mínu á mínum uppvaxtarárum á
Tjamargötu 6. Auk þess að vera
hjartahlý amma og ráðagóð vann
hún fyrir sér lengst af, fyrst í skúr-
ingum í kaupfélaginu og um árabil
í Alþýðubrauðgerðinni, en þaðan
minnast hennar margir á mínu ald-
ursskeiði.
Það leið vart sá dagur, að við
krakkamir kæmum ekki við í Al-
þýðunni hjá ömmu og fengjum
marsipan eða negrakoss.
Auk þess að vera okkur hjarta-
hlý amma og stunda vinnu sína,
átti hún ætíð aflögu tíma fýrir líkn-
arstörf sem var í mínu minni h júkr-
un, var þá sprautuverkið oftast
með í ferðinni auk þess sat hún oft
yfir dauðvona sjúklingum þar til
yfir lauk. Kom líkinu fyrir í kist-
unni, skreytti kistuna í kirjunni og
setti blóm í vasa, sama hvað til féll í
þessum óeigingjömu hknarstörf-
um hennar, þáði hún aldrei neitt,
hvorki fyrir útlögðum kostnaði né
vinnu. Þessi fómfýsi hefur, eftir
því sem mér hefur verið sagt, ein-
kennt hennar æviskeið.
Dreg ég nú upp stutta mynd af
því sem drifið hefur á daga hennar
fyrir mína tíð.
Auk þeirra hknarstarfa er ég
hefi þegar nefnt hefur hún komið
víða við... Var í sóknamefnd um
46 ára skeið eða þar til hana þraut
kraftur til og hlaut viðurkenningar
fyrir störf sín þar og í systrafélag-
inu. Var einn af forvígismönnum,
ásamt afa, um söfnun fjár til bygg-
ingar sjúkrahússins, meðal annars
með því að fá sérstakt ieyfí til
kaupa á bíl er notaður var sem
vinningur í happadrætti til fjáröfl-
unar. Var í stjórn, og virkur þátt-
takandi, í slysavarnafélaginu.
Vom þá oft ýmsar uppákomur á
lokadaginn í fjáröflunarskyni.
Auk þess að undirbúa jarðar-
farir og messur í kirkjunni aðstoð-
aði hún við fermingarundirbún-
inginn.
Til marks um hjartahlýju henn-
ar og ástúð er hún virtist finna í
öllum er hún umgekkst vil ég
nefna tvö dæmi.
Frá Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavíkog Sjúkra
húsi Keflavíkurlæknishéraðs:
Símaþjónusta á Sjúkrahúsi Keflavík-
urlæknishéraðs og Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík (vakt- og neyð-
arþjónusta lækna) er með eftirfarandi
hætti:
Heilsugæslustöð:
Alla virka daga, mánudaga til föstudaga kl. 08.00 til
17.00-Sími 3360.
Alla virka daga frá kl. 24.00 til 08.00. Símsvari - Sími
3360.
Símatími lækna:
Kl. 08.30 til 09.30 og 12.30 til 13.30.
Alla virka daga frá kl. 16.00 til 24.00.
Auk þess helgidaga kl. 08.00 til 24.00 er sími 1400 -
1401 -1138, þ.e. símar á Sjúkrahúsi.
Sjúkrahús:
Alla virka daga, allan sólarhringinn. Sími 1400 -1401
-1138.
Samband frá skiptiborði frá kl. 08.00 til 24.00.
Símatími lækna á Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík
Arnbjörn Ólafsson:
Mánudagur: kl. 8.15-9.00
Þriðjudagur: kl. 8.15-9.00 og 12.15-13.00
Fimmtudagur: kl. 12.15-13.00
Föstudagur: kl. 12.15-13.00
Hreggviður Hermannsson:
Mánudagur: kl. 13.00-13.45
Þriðjudagur: kl. 13.00-13.45
Fimmtudagur: kl. 9.00-9.45
Föstudagur: kl. 9.00-9.45
Jón A. Jóhannsson:
Mánudagur: kl. 9.00-9.45
Miðvikudagur: kl. 9.00 - 9.45 og 13.00 -13.45
Föstudagur: kl. 8.15-9.00 og 13.00-13.45
Læknir:
Mánudagur: kl. 12.15-13.00
Þriðjudagur: kl. 9.00-9.45
Miðvikudagur: kl. 8.15-9.00 og 12.15-13.00
Fimmtudagur: kl. 8.15-9.00
28-FAXI
Ekkjumaður nefndur Lási í
Lásabæ við Tjarnargötu og ráðs-
kona hans, Ólöf Helga Ólafsdótt-
>r, nefnd Lóa, lögðust bæði veik og
hjúkraði hún þeim, yfirlegan varð
það mikil að afi bauð ömmu að
þau yrðu flutt heim til þeirra svo
hún mætti hjúkra þeim betur. Lási
lést úr þessum veikindum en Lóa
gerðist fjölskyldumeðlimur upp
frá því og lifði í mörg ár eftir það.
1944 lá amma á sjúkrahúsi í
Reykjavík með ungri konu úr
Eyjafirði, Elínu Ásu Jónsdóttur,
nefnd Ella, mörgum Suðurnesja-
manninum kunn sem Ella í Ellu-
húð, er hún vann hjá verslun
Nonna og Bubba. Er jólin nálguð-
ust sá amma fram á dauf jól hjá
Ellu og bauð henni að gista yfir
jólin, sem Ella þáði. Gerðist hún
þá ein af fjölskyldunni að Tjarnar-
götu 6 næstu 5 árin, og alla tíð
síðan hefur hún verið í Keflavík.
Ellu kalla ég alltaf mömmu auk
móður mjnnar sálugu og geri enn.
María Guðmundsdóttir með yngsta af-
komandann í fanginu.
Af þessu má sjá að amma á stór-
ar> þátt í mótun okkarsystkinanna,
því lengst af bjuggum við í sama
húsi auk foreldra minna, við 6
systkinin, amma, Ella og Lóa. En
arin líða og guð gefur og guð tek-
ur.
Amma var gift Einari Guðberg
Sigurðssyni, skipstjóra og bjuggu
Þau allan sinn búskap í Keflavík,
attu 5 börn, föður minn Gunnar,
ekkjumann eftir móður mína,
Guðrúnu, eiginkonu Bjöms
Magnússonar og Ingimar, ekki
Lórunnar Rafnar, er lést 2.
febrúar I974, Lúðvík, er dó
skömmu eftir fermingaraldur
1934, og Bergþóru Huldu, er dó 10
áragömul 1931.
Amma mistti mann sinn 1947 er
hann var á skipi sínu á miðunum,
María Guðmundsdóttir ásamt fjórum œttliðum. Yngst er Stefanía Bonny Lúðvíksdótlir í fangi móður sinnar Jóhönnu Elínar
Björnsdóttur. Næst er Bergjxira Hulda Gunnarsdóttir og Gunnar Einarsson, sonur Maríu. Myndin vartekin fáum vikumfyrir
andlát Maríu.
féll fyrir borð og drukknaði, um
það leyti tók móðir mín við hlut-
verki húsmóðurinnar á þessu stóra
heimili sem amma hafði skapað.
Lætur hún eftir sig 3 börn, 13
barnabörn, auk þeirra ól Guðrún,
dóttir ömmu sveinbarn er lést
innan I árs, 35 barnabarnaböm og
1 barnabarnabarnabarn.
Vil ég að lokum, fyrir hönd okk-
ar systkinanna nota hin hjartnæmu
orð móður minnar sálugu sem hún
notaði svo oft: VERTU GUÐI
FALIN.
Hin latiga þraut er liðin,
nú loksins hlaustu fridinn,
og allt er orðið rótl
nú sæll er sigttr unninn
og sólin hjört upp runnin
á hak við dimma dauðans nótt.
Einar Guðberg
n.
l f
-Æ i'f
Jw
m wfSsBk & ,
JfZgSr
f ta-... i
.
■11011S (,('
XKJOÍcf'
m- v* -c. ,
Suðurnesjamenn
Konur - Karlar
Enn aukum við úrvalið
af snyrtivörunum.
Nú getum við boðið
hinar heimsþekktu
vörur frá
guerlain
Berta Guðjónsdóttir
snyrtifræðingur,
aðstoðar og leiðbeinir
á laugardögum.
VERIÐ VELKOMIN
í APÓTEKIÐ.
Apótek Keflavíkur
FAXI-29