Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1984, Page 4

Faxi - 01.10.1984, Page 4
 * /áfQjÉ-. .1. £ t nt »»1 1 ÍÍ! flíi .?'*'■ ■fB'íllH Á sídustu öld — raunar miklu lengur — var Kotvogur í Höfn- um eitt kunnasta stórbýli á sud-vesturlandi. Það þótti í frásögur fœrandi ad bœjarhús voru þaralls lóogað heimilis- fólk á vertídum var allt ad 72, karlar, konur og böm. Séra Jón Thorarensen ólst þar upp, naut ástar og virdingar heimafólks og hefur réttilega launað þad ástfóstur með skrádum heimildum um þann höjÖingsbrag er þar rfkti œvinlega. matur úr hennar höndum var af- bragð. Hún var afburða vinnu- garpur við hvað eitt, sem hún tók höndum til. Hún sameinaði mikla fjölhæfa verkþekkingu og hús- bóndahollustu eins og allt fólkið. Guðrún Guðmundsdóttir var vinnukona, sem sá um þjónustu- brögð karlmanna, Bjarna for- manns, Ólafs stóra og Ólafs Ólafs- sonar, sem var maður hennar. Hún var frekar stór kona og gild, andlitið stórt og reglulegt. Hún hafði mikla verkþekkingu á öllum störfum, bæði á stóryrkju svo sem aðgerð, þangfjöru, sölvatekju, vöskun og þurrkun á saltfiski; við ullarvinnu, prjóna og rokk var hún jafnvíg. Prekið var mikið samfara verklagni, en það var henni mjög andstætt að Iáta nokkuð á sér bera nema sem eðlilegt mátti kallast. Þannig var hún bæði utan og innan heimilis. Þess var og síst þörf því að hún var vinsæl af öllum. Hún gekk með stóran dökkbrúnan eik- arbauk og sló honum duglega á hné sér og stútaði sig. Ég tók eftir því, þótt ekki væri gamall, að langt leið á milli, og aldrei sá ég tóbak fyrir neðan nef hennar. Það þótti mér merklegt, því það sá ég á mörgum, sem tóku í nefið. Hún var dæmalaus gæðakona, hafði yndi af sögum og sagnalestri. Hjá henni var alltaf öruggt athvarf fyrir okkur krakkana, og gaman að vera hjá henni við stórelda á haust- in. Ólafur Ólafsson, vinnumaður, var eiginmaður Guðrúnar. Hann var meðalmaður með alskegg. Hann var fastur maður við sjó- sóknina með Bjama formanni á sumrum, jafnt og á haust- og vetr- arvertíð. Hann var orðlagður fiski- dráttarmaður, hann var fáskipt- inn, vinnusamur og reglusamur. Hann dó snemma á mínum árum í Kotvogi, svo ég kynntist honum minnst. Einni sögu man ég þó eftir í sambandi við hann. Ég hef líklega verið á níunda ári þetta sumar. Þetta mun hafa verið í ágústmán- uði í góðu veðri, og rétt fyrir há- degi. Þennan dag lentu þeirBjarni formaður og Ólafur Ólafsson í hol- unni syokölluðu fyrir neðan bæ- inn. Ég fór niður til þeirra og horfði á. Þá mælti Ólafur: „Farðu Nonni og sæktu stóra brýnið, það FRAMHALD Á BLS. 249 Fjárbúskapur í Keflavík — liðin tíð Nú í haust komust tíðinda- menn Faxa á snoðir um, að Hilmar Eyberg, rafvirki og fjár- bóndi, hyggðist farga fé sínu og hætta búskap,, en eftir því sem næst verður komist er hann eini fjáreigandinn, sem að undan- fömu hefur verið með búskap sinn innan bæjarmarka Keflavík- ur. Það var því ekki seinna vænna að smella af honum mynd, þar sem hann var að huga að fé sínu í Vatnsleysustrandar- rétt nú á dögunum. Aðspurður kveðst hann hafa rekið um 90 skepnur á f jall í vor, en hann er nú eftir fyrstu leitir í Grindavík og á Ströndinni aðeins búinn að heimta 15. Eins og að Iíkum lætur kann Hilmar frá mörgu að segja eftir að hafa verið fjárbóndi í Keflavík um 20 ár skeið, - en það er álíka langur tími og fjárhald hefur ver- ið bannað þar. Leyfi hefur hann haft til að reka kindur sínar á fjall með Grindvíkingum. Á vetuma hefur hann svo haft aðstöðu fyrir fé sitt norðan við Grófina í Kefla- vík, en það land var til skamms tíma í Gerðahreppi. Þar nytjar hann tún það sem tengdafaðir hans, Jón heitinn Brandsson ræktaði á sinni tíð. Vegna rúmleysis í þessu blaði verður greinargóð og skemmti- leg upprifjun á búmannsraunum seinasta fjárbóndans í Keflavík að bíða að sinni. Réttardagur í Vatnsleysustrandarrétt erstór dagur hjá ungum sem öldnum, ogannasamur hjá fjárbœndum. Böm af dagheimilum ogúrskólum Skagans fara ístórum rútum íréttim- ar til að sjá þessa aldagömlu hefð landbúnadaríns, þger varla seinna vœnna þar eð þessir búskaparhœttir em ad hverfa af þessum landshluta. Hér er Hilmar Eyfförd, síöast ffárbóndi í Keflavfk, aö draga fé sitt f dilk. Hann hyggst nú hœtta þessu búskaparbasli. Fyrír framan hann er réttarstjórínn $iguijón Sigurðsson f Traöarkoti. Á efiir Hilmari koma tveir ffárbœndur úr Gríndavfk — en fé Gríndvfkinga og strandamanna gengur gjaman saman á ffallinu.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.