Faxi - 01.10.1986, Síða 3
Fjölbrautaskóli Suðurnesja var
formlega stofnaður 10. september
1976 og er því 10 ára um þessar
mundir. Stofnun skólans var sam-
starfsverkefni sveitarfélaganna
sjö á Suðurnesjum, sem eru
rekstraraðilar skólans til helm-
ings á móts við ríkisvaldið. Haust-
ið 1976 þegar skólinn tók til starfa
fékk hann undir starfsemi sína
Iðnskólahúsið í Keflavík, en Iðn-
skólinn var þá sameinaður Fjöl-
brautaskólanum. Hefur starfsemi
skólans verið í því húsnæði síðan.
Skólameistari var frá upphafi og
til vors 1985 eða í 9 ár, Jón Böðv-
arsson. Aðstoðarskólameistari
hefur ffá upphafi verið Ingólfur
Halldórsson, en hann gegndi
stöðu skólameistara á vorönn
1985 í leyfi Jóns Böðvarssonar. í
júní 1985 var svo Hjálmar Árna-
son settur skólameistari til eins
árs, en skipaður til þess embættis
í apríllok 1986.
Frá upphafi hefur starfsemi
skólans verið að þenjast út og
nemendafjöldi vaxið frá ári til árs,
auk þess sem fjölbreytni í starfi
hefur aukist. í upphafi voru nem-
endur á annað hundrað og náms-
framboð hefðbundið, þ.e. al-
mennt iðnnám og bóknám í dags-
skóla, auk flugliðabrautar, en
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er eini
skóli landsins sem rétt hefur til að
útskrifa flugmenn með atvinnu-
flugmannsréttindi. Árið 1978
fékkst svo leyfi fyrir starfrækslu
öldungadeildar, sú fyrsta utan
Reykjavíkur og var það mikið
framfaraskref. Öldungadeildin
hefur frá fyrstu tíð verið vinsæl
meðal Suðurnesjamanna og opn-
aði hún mörgum nýja möguleika,
sem menntast vildu frekar, en
áttu óhægt um vik að setjast á al-
mennan skólabekk í dagsskóla
vegna vinnu og fjölskyldu. Starf-
semi skólans hélt áfram að hlaða
utan á sig og áff am var haldið á
braut nýbreytni. Sem dæmi um
nýbreytni má nefna námsflokka
sem tóku til starfa haustið 1984 í
samstarfi við verkalýðsfélögin á
staðnum og nutu þeir strax vin-
sælda, einnig má nefna réttinda-
nám ýmis konar svo sem réttinda-
nám bifvélavirkja, vélstjóra og
skipstjómarmanna auk meistara-
skóla. Fjölbrautaskóli Suðumesja
var einn fyrsti skólinn utan
Reykjavíkur sem öðlaðist rétt til
að bjóða upp á slíkt réttindanám.
Skólaárið 1985 til ’86 var starf-
semi skólans orðin mjög umfangs-
mikil og nálguðust virkir nem-
endur töluna 1000. Haustið 1986
lítur þó út fyrir að ætla að verða
metár í sögu skólans, því að þegar
Útskriftarncmcndur vorið 1985 við Útskúlakirkju. Þetta varfyrsta útskriftarathöfn
Hjálmars Ámasonar í forföllum Ingólfs Halldórssonar.
Verknámshúsið að Iðavöllum 3 Keflavík.
F0RSÍÐA
Skólameistarar Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá upphafi þeir Jón Böðvarsson og
Hjálmar Arnason. A myndina vantar Ingólf Halldórsson aðst. skólameistara sem
gegndi stöðu skólameistara á vorönn 1985.
FAXI 207