Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 6

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 6
nesjum til sóma. Skólann ætti að reisa á nýjum stað, þar sem land- rými er meira og stækkunar- möguleikar eru fyrir hendi. Má nefna sem dæmi svæðið vestan við Samkaup í Njarðvík. Annar aðbúnaður skólans svo sem tækjakostur var lengi vel fá- brotinn, en hefur aukist til muna nú síðustu ár. Þessu er að sjálf- sögðu peningaleysi um að kenna, en skólinn hefur einmitt búið við óeðlilegt fjársvelti undanfarin ár, þar sem ríkið hefur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Brautirnar eru þó mis vel tækjum búnar. Verknámsbrautimar s.s. tréiðna- og málmiðnabrautimar búa við einna besta tækjakostinn, en bók- námið hefur hins vegar setið á hakanum og búið við slakar að- stæður. Þess má geta að bókasafn- ið býr við þröngan kost og kennsluaðstaða í raungreinum s.s. aðstaða til tilrauna í efna- fræði, eðlisfræði og líffræði var lengi vel svo frumstæð að undmn sætti, en úr hefur þó ræst nokkuð síðustu tvö ár. Ekki hafa heldur verið til lágmarks kennslutæki s.s. myndvarpar nema í örfáar stofur og hefur það valdið kenn- umm miklum óþægindum. Þó hefur skólinn reynt af veikum mætti að halda í við tækniþróun- ina og má nefna að fyrir tveim ár- um eignaðist skólinn mynd- bandstæki, sem nýtt er í æ ríkara mæli til kennslu og einnig hefur tölvukostur skólans eflst mjög, sem reyndar er frekar einstakling- um, félögum, og fyrirtækjum að þakka en opinberum aðilum, þannig að í dag má segja að skól- inn sé það vel búinn tölvum að hann skari fram úr öðrum skólum landsins á því sviði. En betur má ef duga skal. Hvers vegna áfangakerfi? Fyrir um 20 árum var íslenskt skólakerfi orðið staðnað. Litlar breytingar höfðu orðið í áratugi og velflesta framhaldsmenntun varð að sækja til Reykjavíkur eða Ak- ureyrar. Þá voru menntaskólarnir tveir í Reykjavík, einn á Akureyri og einn á Laugarvatni. Einn versl- Skólakór FS veturinn 1985—86 Skrúðganga við upphaf starfsdaga í febrúar 1984. Allt í skólann fyrir alla aldursflokka Allar skólavörur, ritföng, skólatöskur, skjalatöskur, allar kennslubækur, ritvélar og margt fleira. — NESBÓK — Hafnargötu 54 - Sími 3066 unarskóli í Reykjavík. Auk þeirra voru nokkrir sérskólar s.s. iðn- skólar, sjómannaskólar, svo að nokkuð sé nefnt. Það gefur auga leið að þeir sem bjuggu í stóru þéttbýliskjömunum eins og Reykvíkingar og Akureyringar áttu mun greiðari aðgang að fram- haldsmenntun en aðrir lands- menn, sem oft og iðulega urðu að leggja frekara nám á hilluna vegna of mikils kostnaðar. Gárungarnir sögðu í þá tíð að aðeins tveir há- skólamenntaðir menn byggju fyr- ir sunnan Straum, þ.e. presturinn og apótekarinn. Það var svo á seinnihluta 7. ára- tugsins sem hugmyndir komu upp um að setja á stofn skóla, sem byggðir væm upp á eininga- eða áfangakerfi. Slíkir skólar vom og eru mjög útbreiddir um vestur- lönd og víðar. Hugmyndirnar, sem að baki lágu vom fyrst og fremst a) að auka fjölbreytnina í íslenska skólakerfinu, sem var bæði einhæft og að mörgu leyti staðnað, b) íjölga námsleiðum nemenda, c) tengja saman bók- nám og iðnnám og reyna þannig FRAMHALD Á BLS. 224 210 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.