Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 36

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 36
Sunnudaginn 30. ágúst s.l. hófust vikulöng hátíðarhöld í tilefni af 100 ára afmæli Miðneshrepps. Fyrirhugað var að setning hátíðar- innar og fyrstu atriði hennar færu fram á grænum bala sunnan undir íþróttahúsinu, en vegna veðurs varð að flytja þau inn í húsið, sem er mjög rúmgott og myndarlegt bæði úti og inni. Þar setti Guðjón Kristj- ánsson, skólastjóri hátíðina með stuttu ávarpi. Hátíðarræðuna flutti síðan Ólafur Gunnlaugsson, odd- viti. Kirkjukórinn, undir stjóm Franks Herlufsen, söng því næst nokkur lög. Næsti ræðumaður var Jón Norðfjörð, forstjóri, en hann flutti einnig Hátfdarljóð, sem Ingi- björg Sigurðardóttir, skáldkona í Sandgerði, hafði gert í tilefni af- mælisins. Síðan var farið að nýgerðu minnis- merki er komið hefur verið fyrir á Kötlu-Jóns hóli, sem er í suðaustur jaðri byggðarinnar. Listaverkið af- hjúpaði sjómannskonan Sveinlaug Sveinsdóttir. Höfundurinn, lista- konan Steinunn Þórarinsdóttir kall- ar verkið ÁLÖG — álög sjómanna- stéttarinnar að heyja ævarandi bar- áttu við óblíð náttúmöfl — álaga- ham hafsins sem kallar dáða drengi til starfa við örðug skilyrði og tekur drjúgan toll af þeirri vösku sveit. Séra Guðmundur Guðmundsson, sóknarprestur Miðnesinga, flutti þeim hamingjuóskir og velfamaðar- bæn. Að svo búnu var gestum boðið til samsætis, þeirra á meðal voru þing- menn kjördæmisins, fomstumenn sveitarstjóma á Skaganum og fleira fyrirmanna. Aðrir fóru í Björgunar- stöðina, en þar var sjóminjasýning opnuð á sama tíma, hún var síðan opin alla vikuna og þar fluttu erindi Ásgeir Ásgeirsson, sagnfr. og Gils Guðmundsson, rithöfundur. Heim- ilisiðnaðar sýning var í Samkomu- húsinu þar var einnig tónlistarflutn- ingur, vísnakvöld og dansleikir. I Gmnnskólanum var ljósmynda- og myndlistarsýning. I Iþróttamiðstöð- inni fóm fram íþróttir — leikir og létt gaman. Hátíðavikunni lauk með flugelda- sýningu og dansleik. ára Listaverkid ÁLÖG e/tir Steinunni 1‘órarinsdótlur. Myndir J.T. Miðneshreppur Þrir sveitarstjórar voru viðstaddir við setningu hótídarhaldanna, Alfreð G. Alfreðs- son, Jón K. Ólafsson og Stefán Jón Bjamason. K* ' t . W\' ■ ' ■JP í> * ' * Héreru þingmenn kjördœmisins ú fremsta bekk dsamt oddvita Miðneshrepps Ólafi Gunnlaugssyni, Jórunni Guðmundsdóttur og syni þeirra. Margt jyrirmanna af Skaganum mó einnig sjá ú myndinni. Irigibjörg S igu röa rdótti r Hátíðarljóð Miðneshreppur minnist, merkrar aldarsögu. Hörð var lífsins glfma, háð á sjó og landi. Sigrar gáfu grósku, og gull til stórra verka. Afhugsjón fram til heilla, hlýtt var tímans kalli. Á merkum tímamótum, minnst er hér í verki. Hetjunnar, sem hefur, hafið sótt um aldir. Yfir brim og boða, blœ kyrr sund og gullin. Borið björg að landi, betra mannlíf skapað. Fylgi hverju fleyi, fararheill og gœfa. Er frá landi leggur, lífsbjörg dýra að fanga. Megi byggðin blómgast, bruna fley um sundið. Sjómannslíf og saga, sigrar, fórn og dáðir. 240 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.