Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 11

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 11
reikninginn, heldur láti það eins og annað hvíla á þessari fátæku sókn.“ Fyrir bragðið er okkur t.d. ókunnugt um nafn þess manns er vann trésmíði og snikkaraverk. Innri-Njarðvíkurkirkja stóð með sóma og prýði, vel hirt fram til 1917, er hún svo að segja orða- laust var lögð niður og sóknin sameinuð árið eftir Keflavíkur- sókn. Þegar tímar liðu gátu Njarð- víkingar auðvitað ekki unað því að kirkja þeirra hin góða sæti í sútum. l>að mun hafa verið upp- haf fimmta tugs þessarar aldar að heimamenn tóku að hreyfa endur- reisnarmálum. Árið 1942 var haf- ist handa um viðgerð á kirkjunni og hún vígð 24. september 1944. Töluverðar breytingar voru gerðar á hússinu. Nýr turn ann- arrar gerðar var reistur, skífa fjar- lægð af þaki og bárujárn sett á í staðinn, gluggum breytt, steinskil fengu breið múrbönd, timburgólf fjarlægt, kór minnkaður og veggir klæddir asbest plötum. Altari, predikunarstóll, bekkir og hvelf- ing í framkirkju fengu að halda sér og auðvitað megingerð húss- ins. Enginn vafi er þó á því að þetta framtak bjargaði þessu merka húsi ffá falli. Innri-Njarð- víkurkirkja er fyrsta steinkirkja hérlendis sem byggð er úr al- höggnum steini. Hún er ásamt Hvalsneskirkju eina guðshús sinnar tegundar á íslandi, auk þess að vera í hópi örfárra stein- kirkna yfirleitt. Hvernig sem á er litið verður þessi blessaða kirkja að teljast eitt af merkustu verkum íslenskrar byggingarlistar frá 19. öld. ,,Hún ber“ eins og Guð- mundur A. Finnbogason orðar það, sá maður sem mest og best hefur kynnt sér sögu Njarðvíkur, , ,steinsmiðnum, hleðslumeistara sínum Magnúsi Magnússyni vitni meðan stendur.“ Njarðvikingar, jafnt sem landsmen allir, standa í þakkarskuld við listamenn á borð við Magnús. Því ber okkur að hlúa að verkum þeirra og gæta þess að þeim sé ekki spillt með annarlegum viðbótum. Við i>:« -------\ krukkum ekki í verk skálda okk- ar. Því miður hafa íslendingar ekki alltaf áttað sig á því að húsa- meistarar eru skáld forma, vídda og stærða. Að vísu er erfiðara að gæta bókar en húss. Engu að síð- ur leggja flestar menningarþjóðir alla list að jöfnu og verja miklum fjármunum til verndunar henni í hvaða mynd sem er. Gætið að því góðir áheyrendur að við erum mun fátækari af sjónlistarlegum verkum en nágrannaþjóðir. Líkja má arfi okkar í þeim efnum við gróður landsins, hann er næstum örfoka. Því er okkur brýnna en öðrum að snúa vörn í sókn, vemda þær andlegu gróðurvinjar er enn ber fyrir augu í gervi fornra merkilegra húsa og leggja af þeim stilkinn til nýrra stofna. í dag er haldin hátíð til að minn- ast þess að Innri-Njarðvíkur- kirkja er aldargömul. Vil ég nota tækifærið og árna heimamönnum heilla í því tilefni. í hugum okkar húsafr iðunarmanna er einnig öðr- um áfanga náð. Sóknarnefnd Innri-Njarðvíkurkirkju féllst á ár- ið 1980 að kirkja þeirra fengi þann búning sem henni ber að okkar mati og er í samræmi við þau verndunarsjónarmið sem ég lýsti áðan. í dag er formlega fyrstu lotu í þeirri áætlun náð. Stein- kirkjan þeirra góða stendur nú að ytra búningi svo sem eins og meistari hennar Magnús Magnús- son skildi við hana. Þetta er okkur mikið gleðiefni, og vonandi Njarðvíkingum einnig. Að lokum vil ég svo þakka samstarfið við sóknarnefnd, einkum formanni hennar Helgu Óskarsdóttur, sem hefur verið vakin og sofin um vel- ferð kirkju sinnar og stýrt verk- legum þáttum viðgerðarinnar af miklum dugnaði, sóknarpresti séra Þorvaldi Karli Helgasyni, sem ffá upphafi hefur sýnt endur- Prestar talid frá vinstri: Séra Þorvaldur, Karl Helgason, séra Björn Jónsson, séra Örn Bárður Jónsson, séra Guðmundur Örn Ragnarsson, séra Ólafur Oddur Jónsson, séra Bragi Friðriksson, prófastur og séra Gunnþór Ingason. Sóknarnefndin lét gera litlar postulínskirkjuklukkur, er eiga að minna á kirkjuklukku kirkjunnar sem er frá 1725 og mun vera elsti gripur í Njarðvík. Nokkrir aðilar voru heiðraðir með klukkugjöf. Á myndinni eru frá hœgri: Pró- fasturBragi Friðriksson, frú Guðrún Guðmundsdóttir, ekkja séra Eiríks Brynj- ólfssonar, frú Sveinbjörg Helgadóttir, ekkja Garðars Þorsteinssonar prófasts, séra Björn Jónsson, séra Þorvaldur Karl Helgason og frú Helga Óskarsdóttir. Guðmundur A. Finnbogason, frœðimaður samdi Ijóð oggafkirkjunni í tilefni afmœlisins og var það skrautritað. Séra Björn Jónsson flutti kvœðið. Aðrir á myndinni eru Helga Óskarsdóttir, formaður sóknarnefhdar ogséra Þorvaldur Karl Helgason, en hann var vcislustjóri. Margargjafir bárust kirkjunni. HérerOddurEinarsson, bœjarstjóri íNjarðvik að afhenda Helgu Óskarsdóttur sóknarncfndarformanni gjöf frá Njarðvíkur- bœ. FAXI 215

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.