Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 31
Fermiagarbörn að
Útskálum fyrir
arum
Prests/rúin Steinvör Kristófersdóttir, Sigurdur Oddsson, Gudmundur Guðmundsson, Guðrún
Guðmundsdóttir, Guðmann Grimsson og séra Guðmundur Guðmundsson. Á litlu mynditmi er
Guðmunda Eggertsdóttir frá Kothúsum ein af gefendunum en Znín treysti sér ekki af heilsufars-
ástœðum að fara til myndatöku í kirkjunni. Mynd J.T.
Það var hvítasunnudagur, bjart-
ur og hlýr, 16. maí 1916. Sextán
böm gengu hamingjusöm og glöð
upp að altarinu í Útskálakirkju til
að fá síðustu leiðsögn og kristilega
handleiðslu ástsæls prests sem
var að kveðja söfnuð sinn. Séra
Kristinn Daníclsson hafði verið
ráðinn til annars hlutverks í
Reykjavík og voru þetta síðustu
fermingarböm hans í Útskála-
sókn.
Flest þeirra eru nú látin, en
nokkur lifa, sum við góða heilsu.
Þau halda mikið upp á töluna
sextán, enda kom hún mikið við
sögu á fermingardag þeirra —
þann dag sem flestum ungmenn-
um verður minnisstæðastur sök-
um þess að hann er hlið milli
bernsku og manndóms, þar sem
þau lofa því við altari kirkjunnar,
frammi fyrir presti og söfnuði að
stunda kristilegt siðgæði og
bregðast vel við hverjum vanda
sem að höndum ber svo að fram-
tíðin megi verða þeim björt og far-
sæl.
Fimm þessara fermingarsystk-
ina, búsett á Suðurnesjum, af-
hentu séra Guðmundi Guð-
mundssyni á Útskálum kr.
16.000.- við hátíðarguðsþjónustu
á hvítasunnudag s.l., með eftirfar-
andi bréfi:
Til Útskálakirkju.
Við undirrituð fœrum Útskála-
kirkju þessa gjöf í tilefni þess að
sjötíu ár eru liðin frá því, að við
vorum fermd í Útskálakirkju,
sem var á hvitasunnudag 1916.
Guðmunda Eggertsdóttir frá Kot-
húsum, Guðrún Guðmundsdóttir,
Bala M iðnesh reppi ,Guðmundur
Guðmundsson, Bala Miðnes-
hreppi, Guðmann Grímsson frá
Sandgeiði, Suðurgötu 12 Keflavik,
Sigurður Oddsson, Ásabraut 14,
Sandgcrði.
Færði sóknarprestur gefendum
innilegar þakkir kirkju og safnað-
ar fyrir gjöfina.
J.T.
HVAÐA FOLK ER ÞAÐ?
I síðasta blaði Faxa var sagt frá glæsilegri sýningu hjá Baðstoíu-
fólki. Nokkrar spumingar hafa blaðinu borist varðandi þetta Bað-
stofufólk, þar sem í umræddri grein er sagt að 30 úr hópnum hafi
sýnt 240 myndir, en aðeins fárra getið. Við lok sýningarinnar var
því meðfylgjandi mynd tekin af hópnum, svo það yrði fremur í
minnum haft hvaða snillingar stóðu að þessari frábæm sýningu
áhugafólksáSuðumesjum 1986, ummyndlistoghverjirvomhin-
ir ágætu leiðbeinendur þess.
Fremsta röð frá vinstri: Steinar Geirdal, Elsa Hertertvig, Ásta
Ámadóttir, Eiríkur Smith, Jón Gunnarsson, Sigríður Rósinkars-
dóttir, Jón Agúst Pálmason, I>ómnn Guðmundsdóttir. Miðröð frá
vinstri: Sigfrið Rögnvaldsdóttir, Anna María Guðlaugsdóttir,
Halla Gísladóttir, Oskar Pálsson, Soffía Þorkelsdóttir, Halldóra
Ottósdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Ólína Siguijónsdóttir,
Hrefna Einarsdóttir, Sigurdfs Pétursdóttir, Þórður Kristjánsson,
Vilhjálmur Grímsson. Aftasta röð frá vinstri: Ingunn Sigurðar-
dóttir, Gréta Fjeldsted, Gréta Eiríksdóttir, Skúli Óskarsson, Grét-
ar Ellertsson, Ólöf Anna Guðjónsdóttir, Bjötgvin Hreinn Guð-
mundsson, Guðmundur Maríusson, Gísli Garðarson, Kristín
Sæmundsdóttir, Jófríður Jónsdóttir. Á myndina vantar Ilelgu Sif
Jónsdóttur, Sólveigu Björk Granz, Önnu Þ. Þorbergsdóttur.
FAXI 235