Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 28

Faxi - 01.10.1986, Blaðsíða 28
Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri 70 ára Viðburðamk og farsæl starfcævi Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri varð 70 ára 22. ágúst sl. Þegar þessi áhrifaríku tímamót nálguðust baðst hann lausnar úr embætti eins og lög gera ráð fýrir og óskaði eftir að eftirmaðm' hans tæki við embættinu 1. september. Jón á langa og farsæla starfsbraut að baki og síðustu 15 árin í einu viðamesta embætti þjóðarinnar. Jón var fæddur 22. ágúst 1916 í Keflavík sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Skúla Högnasonar, byggingameist- ara. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1937. Hélt þá um haustið til háskólanáms í Kaupmanna- hafnarháskóla og nam þar rafmagnsverkfræði, með síma- og radíóverkfræði sem sérgrein og lauk þar námi í janúar 1943. Þá höfðu Þjóðverjar hemumið Danmörku og var Jón meðal margra Islendinga, sem ekki komust heim af þeim sökum. Störf hans eftir heimkomuna varða alla landsbyggðina, en þar sem Keflavík eignar sér æsku hans og uppvöxt taldi Faxi sér skylt að fá þann ágæta mann til að gera Suðumesjafólki nokkra grein fyrir viðburðaríkri starfsævi. borð í Gautaborg og steig í land í Reykjavík 9. júlí 1945. Þá hefur þú farið að leita fyrir þér um starf? Já, ég sneri mér strax til Lands- síma Islands. Ræddi við Gunn- laug Briem yfirverkfræðing. Þá var kominn þar til starfa Þorvald- ur Hlíðdal bekkjarbróðir minn. Mér var vel tekið og ég var ráðinn til L.í. í júlí 1945, fáum dögum eftir að ég steig á land. Þar hefur þú svo unnið alla tíð síðan? Já. Eina frávikið var kjaradeila Verkfræðingafélagsins 1954. Þá kenndi ég stærðfræði einn vetur í MR. Sástu fyrir þá miklu tæknibylt- ingu og þenslu hjá L.Í., er þú hófst nám og gerðir símaverk- fræði að sérgrein? Eg held að enginn lifandi maður hafi getað séð hana fyrir, til þess hefði þurft mikið hugarflug. Það er þó gaman að minnast þess að strax á bamaskólaaldri og á æskudögum heima í Keflavík hafði ég hug á verkfræði, fannst að þar hlyti að vera skemmtilegt og mikið verksvið sem biði mín. Það er eiginlega eina framtíðar- sýnin sem ég hef séð. Stærðfræði var mér alltaf töm og kann það að hafa ráðið einhverju um náms- braut mína. Þegar ég hóf verk- fræðinám var margt alveg óþekkt, sem nú er samgróið lífsformi okkar. Dæmi um það? T.d. tölvur. Þær voru óþekktar fyrir stríð. Nokkru eftir að ég kom heim komu þær fyrstu til íslands og vom þá mjög ólíkar því sem nú tíðkast. Smátölvur, sem nú geta nánast verið hvers manns eign, fylltu stór herbergi er þær komu fyrst á markað og vom fokdýrar. Hver var staða okkar í síma- og annarri fjarskiptaþjónustu, borið saman við Norðurlönd, þegar þú Þegar þú laukst námi í Kaup- mannahafnarháskóla í ársbyrjun 1943 var þýskur her í Danmörku og engar samgöngur við ísland og höfðu ekki verið frá því að Esja kom frá Petsamó 16. október 1940 með 258 íslendinga, sem dvalist höfðu á Norðurlöndum en ekki komist heim vegna stríðsátaka, fyrr en með þessari ævintýraferð. Þér hefur ekki fundist fært að hætta námi og halda heim með Esjunni haustið 1940? Þegar Þjóðverjar hemámu Dan- mörku var ég langt kominn með mitt nám og taldi því ekki rétt að fara heim. Margir skólafélagar mínir og vinir tóku sömu afstöðu enda reiknuðum við ekki með að stríðið stæði lengi. Það reiknaði enginn með að það gæti staðið í 5 ár. Hafði stríðið áhrif á kennslu eða skólahald? Nei, ekki varð maður var við að það gerði það beinlínis — það kann að hafa gert það óbeint. Já, þú hélst þínu striki og laukst námi 1943 í janúar. Hvað tók þá við hjá þér? Ég fékk strax vinnu við verk- fræðistörf í Danmörku og nokkr- um mánuðum fyrir stríðslok tók ég við starfi vinar míns og skóla- bróður, sem kallaður var í herinn, sem sérfræðingur í, ,elektro-aku- stik“ við Konunglega ftkniska Högskolan í Stokkhólmi. Þegar svo stríðinu lauk fékk ég far heim með fyrstu ferð Esjunnar, fór um SUÐURNESJAMENN Nú fer í hönd sá árstími þegar allra veðra er von. Almannavarnanefnd Suðurnesja hvetur húseigendur og umsjónarmenn fasteigna til þess að ganga sem best frá öllu utan dyra sem fyrst, og draga þannig úr hættu á óveðurstjóni í haust og vetur. Almannavarnarnefndir á Suðurnesjum Jón A. Skúlason. 232 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.