Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1986, Síða 9

Faxi - 01.10.1986, Síða 9
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA ÍOO ÁRA Avarp formanns sóknamefndar Virðulegi söfnuður og aðrir gestir. Ef við færum okkur hundrað ár aftur í tímann, 18. júlí 1886, þá var þetta vígsludagur kirkjunnar; Innri-Njarðvíkurkirkju, sem er sú kirkjubygging sem við erum stödd í hér og nú. Þetta eru því merkileg tímamót sem ber að minnast með þakklæti og virð- ingu til þeirrar kynslóðar, er hafði hug og dug til framkvæmda og voru sjáandi þeirrar blessunar sem kirkjulífið mundi hafa á komandi tímum. Þessi árin sem bæst hafa í tíma- keðjuna, hafa sannað að sjáendur fyrri tíma höfðu rétt fyrir sér. Því kirkjulífið hefur lifað með fólkinu til þessa dags, jafnt ung- um sem eldri og er það mikil blessun fyrir okkur öll. Ég hef í höndunum bréf frá 10. september 1886, til biskupsins yfir íslandi, sem hér fylgir. KJALARNESSÞINGS PRÓFASTSDÆMI Hér með leyfi ég mér að senda biskupinum yjir íslandi útdrátt úr vísitasíu og úttextabók Kjalar- nesþings prófastsdœmis um hina nýju steinkirkju, sem bóndinn Asbjörn Ólafsson í Innri-Njarð- vík hefir byggt þar. Tók hann við kirkju þessari í laklegu standi og léttum efnum og byggði hana fyrst úr timbri ár 1858, en tók það hús nú niður og byggði mjög trausta og álitlega steinkirkju. Leyfi ég mér að leggja það til, að hannfái opinbera viðurkenningu fyrir þetta mikla sómaverk, sem er sjaldgœfa á þessum tímum. Eg hefi óskað aðfá reikningyfir bygginguna en eigi meðtekið ann- an rcikning en uppteiknun þá, sem ég legg hér með. Hitt er mér kunnugt, að sjald- gœf hagsýni hefir verið viðhöfð Wð bygginguna. Virðingarfyllst Þórarinn Böðvarsson I. Afmœlishátíð 18.júlí 1986. Afmælishátíðin hófst í kirkjunni föstudagskvöldið 18. júlí með bæn meðhjálpara, síðan sungin sálmur og ritningarlestur. Því næst nokk- ur ávarpsorð formanns sóknarnefndar. Meðal annars lesin fundar- gerð sóknamefndar frá vígsludegi kirkjunnar. Síðan tónlistaratriði — orgelleikur og söngur. Lokabæn — Faðir vor — blessunarorð og söng- ur. Að lokinni athöfn í kirkjunni var gengið í Safnaðarheimilið þar sem kaffi og meðlæti var framborið. II. Hátíðarguðsþjónusta 20. júlí 1986. 1. Guðsþjónustan. Hófst kl. 14 með skrúðgöngu presta, sóknamefndar og safnaðarfull- trúa frá Njarðvíkurhúsinu í kirkju. Sóknarpresturinn séra Þorvaldur Karl Helgason þjónaði fyrir altari ásamt fyrrverandi sóknarpresti séra Bimi Jónssyni. Lesarar ritningargreina: formaður sóknar- nelhdar Helga Óskarsdóttir og safhaðarfulltrúi Lára Guðmundsdótt- ir. Predikari: séra Bragi Friðriksson, prófastur. Altarisganga. Kirkju- kórar Njarðvíkur sungu. Organisti Gróa Hreinsdóttir. 2.Samkoman í Safhaðarheimilinu. Veislustjóri var séra Þorvaldur Karl Helgason. Öllum viðstöddum var boðið kaffi og meðlæti. Sest var að borðum og dagskráin kynnt. Aðalræðuna flutti Hörður Agústsson, listfræðingur, er rakti í stór- um dráttum sögu kirkjubygginga frá upphafi og einkum sögu núver- andi kirkju. Magnús Guðjónsson, biskupsritari, flutti ávarp ásamt kveðjum frá biskupi íslands herra Pétri Sigurgeirssyni. Séra Bjöm Jónsson flutti ræðu, þar sem hann fór orðum um prest- þjónustu og safnaðarstörf frá liðnum tíma en hann var sóknarprestur í Keflavíkur- og Njarðvíkursóknum í 23 ár. Auður Stefánsdóttir minntist heimsókna suður í Njarðvík á yngri ámm og vildi ásamt öðm ættfólki Ásbjamar Ólafssonar, sem var við hátíðahöldin flytja kirkju og söfnuði Innri-Njarðvíkur innilegar af- mælis og blessunaróskir. María Þorsteinsdóttir afhenti gjöf með heilla og blessunaróskum. Formenn sóknarnefnda Ytri-Njarðvíkur, Ámi Júlíusson og Kefla- víkur, Bjami Jónsson færðu kirkjunni gjafir með góðum orðum. Oddur Einarsson, bæjarstjóri Njarðvíkur flutti ávarp, um leið og hann afhenti kirkjunni gjöf fyrir hönd bjæarstjómar Njarðvíkur. Eftirtöldum einstaklingum vom færðar postulínsklukkur að gjöf: Herði Agústssyni listfræðingi, Guðmundi A. Finnbogasyni fræði- manni, séra Braga Friðrikssyni prófasti, séra Þorvaldi Karli Helga- syni sóknarpresti, fyrrverandi prófastfrú Sveinbjörgu Helgadóttur, fyrrverandi prestfrúm Guðrún Guðmundsdóttur og Guðrúnu Gísla- dóttur, fyrrverandi sóknarpresti séra Bimi Jónssyni og formanni sóknamefndar Helgu Óskarsdóttur. í lok hátíðarhaldanna flutti Helga Óskarsdóttir þakkarorð. Þetta bréf Þórarins Böðvarsson- ar prófasts í Görðum er sýnileg staðreynd um hvernig kirkjan er byggð af velunnanda kirkjunnar Ásbirni Ólafssyni sem skildi og vissi þörf allra fyrir að reisa kirkj- una, enda sýndi fólkið í söfnuðin- um samvinnu og fórnarlund við byggingu hennar. Áð þessu ávarpi loknu felum við þessi dýrmætu hundrað ár misk- unn Guðs og biðjum nútíðinni kærleika Guðs og framtíð kirkj- unnar og okkur sjálfum forsjá Guðs. Erindi Harðar Agústssonar listfræðings Ekki er vitað hvenær kirkja reis fyrst af gmnni í Njarðvík suður en gera má ráð fyrir að það hafi verið í öndverðri kristni. Elsta heimild um guðshús þar er máldagi frá 1269 er Staða-Árni setti. Kirkjan er þá að fornum sið helguð Maríu mey, Pétri og Páli postulum ásamt píslarvottunum Laurentíusi og Ólafi konungi. Hún er augljóslega bændakirkja, áhlut íheimalandi, auk þess kvikfé, skip, vöru og er sæmilega búin. Á ofanverðri 14. öld hefur nafni dýrlingana verið breytt. María guðsmóðir heldur að vísu sínum fyrra sessi, en í stað postulanna og píslarvottanna er kominn höfuðdýrlingur íslend- inga, Þorlákur helgi. í þennan tíma hefur veraldlegri eign henn- ar hrakað en er sæmilega á sig komin enda nýbyggð skömmu fýrir 1397. Fyrir því verki stóð kirkjubóndinn Helgi að nafni, sem engin deili em kunn á að öðm leyti. Nú hverfur Njarðvík- urkirkja í mistur sögunnar og birtist okkur ekki aftur fyrr en líða tekur á aðra helft 17. aldar. Með vissu er kirkjan niðri fýrir 1760 og hefur líklega lengi verið. Jörðin Njarðvík komst undir kon- ung 1515. Hætt er við að þau eignaskipti ásamt óreiðu í kirkju- stjórnarmálum, er sigldi í kjölfar siðskiptanna, hafi valdið því að kirkjan féll í vanhirðu, a.m.k. segir Þórður biskup Þorláksson FAXI 213

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.