Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 14
Hörður Guðmundsson, form. Golf-
klúbbs Suðumesja, flutti vígslurœðu,
er húsið varformlega tekið í notkun, við
fullt hús gesta og áhugafólks um golf-
íþróltina. Neðri mynd: Sveinn Bjöms-
son, forseti I.S.I. var einn margra er
flutti rœðu, kveðjur og hamingjuóskir
meðglœsilegt afrek golfmanna á Suður-
nesjum með íþróttamannvirkin f Leiru.
Golfklúbbur Suðumesja
Starfsemi G.S. hefur vakið verulega athygli síðustu árin.
Þeir hafá breytt eyðibyggðinni Leiru í áhugaverðan og fallegan
leikvang fyrir golfunnendur og raunar fyrir alla þá er unna
útivist og hollri hreyfingu. Þeir hafa eignast mikið landsvæði,
tún, mela og hæðir, komið öllu í ræktun og gert þar 18 holu
golfvöll sem fullnægir kröfum íþróttarinnar. Að sögn fróðra
manna mun Hólsvöllur í Leiru vera einn allra besti og
skemmtilegasti golfvöllur landsins. Hann var formlega tek-
inn ínotkun 6. júlí s.l. og þar fór fram fjölmennasta landsmót
sem fram hefur farið á Islandi um mánaðamót júlí/ágúst, vel-
sótt og velheppnað. Golfvöllurinn er afrek margra samhentra
manna og góðrar forustu. Hann hefur vakið athygli um allt
land og setur svip á Suðumesin, sem ekki hafa þótt auðug af
grænum grundum. Klúbbhús G.S., sem Hörður Guðmunds-
son, formaður Golfklúbbs Suðurnesja gerir grein fyrir hér á
eftir, er einnig stórglæsilegt og vel staðsett. Þaðan sér yfir all-
an völlinn og í fögru veðri sést allur fjallahringur Faxaflóa. Þó
að bæði þessi mannvirki kosti mikið fé og ómælda fómfysi
fjölda manna í sjálfboðavinnu boðaði Hörður að áfram yrði
haldið í uppbyggingu í Leirunni. Haim sér fyrir sér alhliða
íþróttasvæði í fremstu röð. J.T.
Ágœtu gestir og félagar
I nafni Golfklúbbs Suðumesja,
býð ég ykkur öll hjartanlega vel-
komin, — velkomin til þessa fagn-
aðar, af margþættu tilefni eins og
stendur á boðskortinu. Hér er
margt gesta samankomið og sum-
ir hverjir em að koma í heimsókn
til golfklúbbsins í fyrsta sinn, þ. á
m. forseti Í.S.Í. hr. Sveinn Björns-
son, einnig íþróttafulltrúi ríkis-
ins, Reynir Karlsson. Vil ég sér-
staklega bjóða þessa forystumenn
íþróttamála í landinu velkomna.
Það er áreiðanlegt að árið 1986,
verður lengi í minnum haft í hug-
um félaga, sem nú eru starfandi í
G.S. og þá sérstaklega 6. júlí s.l.
sem ekki er ólíklegt, að verði sér-
stakur hátíðisdagur hjá golf-
klúbbnum í framtíðinni, en þann
dag tókum við formlega í notkun
18 holu völlinn, í þeirri mynd,
sem hann verður leikinn í fram-
tíðinni, einnig fluttum við búferl-
um úr gamla litla golfskálanum í
þetta glæsilega klúbbhús, félags-
heimili, golfskála eða hvaða nafn-
gift skal hafa um hús þetta, sem
við erum hér samankomin í, til að
taka formlega í notkun. Svo margt
hefur verið skrifað og skrafað um
starfsemi og framkvæmdir golf-
klúbbsins á undanförnum mán-
uðum, að þar er vart á bætandi.
Þó verður ekki komist hjá því að
rekja atburði liðinna ára, sem ein-
kennst hafa af miklum fram-
kvæmdum og jafnframt miklum
vandræðum. 1980 var tekin
ákvörðun um að hefja undirbún-
ing, að byggingu framtíðarklúbb-
húss, og var mér, sem hér stend,
falið að sjá um að útvega teikning-
ar, semja við íþróttafulltrúa ríkis-
ins, útvega tilskilin byggingarleyfi
o.fl. Gekk þetta allt, eftir mikið
undirbúningsstarf. Í þessu sam-
bandi vil ég minnast ágætrar sam-
vinnu við þáverandi íþróttafull-
trúa Þorstein Einarsson, sem því
miður gat ekki komið því við að
vera með okkur hér í dag.
Biður Þorsteinn fyrir bestu
kveðjur og hamingjuóskir í tilefni
þessara tímamóta eftir mikið und-
irbúningsstarf. Mikill áhugi og
bjartsýni ríkti varðandi þetta
verkefni, þó ekki væru neinir
sjóðir til að ausa úr. Fyrsta
skóflustungan var tekin að bygg-
ingunni 20. júní 1982. Raunveru-
legar framkvæmdir hófust þó
ekki fyrr en í október sama ár. Var
þá einnig skipuð byggingarnefnd,
sem hefur starfað svo til óbreytt
síðan. Nefndina skipa þeir: Jón
Pálmi Skarphéðinsson sem verið
hefur formaður hennar á þessum
lokaspretti, Einar Gunnarsson,
Hólmgeir Guðmundsson, Haf-
steinn Sigurvinsson og ég sem hér
tala. Eins og ég gat um áður var
ekki til króna í sjóði klúbbsins, til
að hefja þessar framkvæmdir.
Segja má að fyrsta verk nefndar-
innar, hafi verið að fara í eigin
vasa og sækja þangað 5000,00 kr.
frá hverjum nefndarmanni, sem
stofn að ijáröflun meðal félaga
klúbbsins. Þá var efnt til happ-
drættis, sem gaf ágætlega af sér.
Fyrir áramót voru sökklar svo
uppsteyptir, og um mitt ár 1984
var húsið að kalla má fokhelt, en
þá dró skyndilega fyrir sólu, því
þá barst mér í hendur skeyti. Þar
sem þess var krafist að húsið verði
Hladborð veislusalarins var ávallt hlaðið girnilegum réttum
er konur úr kliíbbnum höfðu útbúið fyrir vígslugesti sem fjöhnenntu
218 FAXI