Faxi - 01.10.1986, Page 22
Jón Böðvarsson ávarpar nemendur í meistaraskóla við upphaf haustannar 1981.
lokið við það námsefni sem kröfur
eru gerðar til í þessum áfanga og
kemur aldrei til með að verða
prófaður í því aftur, en hins vegar
byggist framhaldið að sjálfsögðu á
þeirri undirstöðu sem nemandinn
fékk í áfanganum. Nemandi getur
ekki haldið áfram í námsgrein
nema hann hafí uppfyllt lág-
markskröfur í undanfara, þ.e.
hann kemst ekki í STÆ 203 nema
hafa fengið lágmarkseinkunina 5 í
STÆ 103. Undanfari STÆ 302 er
svo STÆ 203.
Talnakeríið í áfangakerfinu
byggist upp á þrem tölum. Fyrsta
talan í þessari þriggja talna röð,
t.d. í 100 eða 200 merkir hvar við-
komandi áfangi stendur í röðinni
og gefur til kynna þann undanfara
sem nemandinn þarf að hafa, þ.e.
undirbúning. Þessi þrep eru oft-
ast 6, það er efstu og síðustu
áfangamir em 600 áfangar og
enginn kemst í 600 áfanga nema
hafa hlotið tilskylda lágmarks-
einkunn þ.e. 5 í 500 áfanga.
Önnur talan í röðinni er etv.
ekki eins þýðingarmikil og fyrsta
talan. Hér er oft um að ræða ein-
hverja sérhæfða áfanga á ákveðn-
um brautum. Til dæmis er stæ
131 ætlaður sérstaklega málmiðn-
aðarmönnum og stæ 232 er versl-
unarreikningur. Miðtölurnar
tákna ekki undanfar, þ.e. ekki
þarf 302 til að komast t.d. í 313
eða 342 o.s.frv.
Þriðja talan og sú síðasta stend-
ur fyrir þær einingar sem viðkom-
HAGKAUP
Vetrarfatnaðurinn
streymir inn
Nýjar vörur
daglega
HAGKAUP
Njarðvík,sími 3655
Frá vélstjómarbraut.
andi áfangi gefur. Áfangi sem hef-
ur töluna 103 gefur þrjár einingar,
102 gefur tvær einingar og einnig
er til 100 áfangi en hann gefur
enga einingu. Reglan er sú að
fylgni er á milli eininga og tíma-
fjölda, en það er þó alls ekki ein-
hlítt. Hver áfangi er miðaður við
eina önn og hver önn er miðuð við
13 vikur. Áfangi sem ber töluna
103 er kenndur í 6 kennslustund-
ir á viku eða 78 kennslustundir á
önn og 202 er kenndur í 4
kennslustundir á viku eða 52
kennslustundir á önn. Ef nem-
andi er á t.d. verslunarbraut þá
verður hann að ljúka 66 einingum
til að teljast fullnuma af þeirri
braut. Verslunarbraut er ijögurra
anna braut og því ætti nemandi að
taka 16 til 17 einingar á önn, eða
32 til 34 kennslustundir á viku að
meðaltali.
Það eru tvær megin undantekn-
ingar frá þessari reglu: 1) Þar sem
um er að ræða verklegt nám s.s í
handavinnu á iðnbrautum, eru
kennslustundir oft fleiri en ein-
ingar gefa til kynna. 2) Byrjunar-
áfangar í sömu grein geta gefið
mismargar einingar t.d. áfangarn-
ir 100, 102, 103, en hafa þó sama
tímafjölda. Fyrir því eru ákveðnar
ástæður sem verður nú nánar
fjallað um.
Undirbúningur úr
grunnskóla
Það er misjafn sauður í mörgu fé
stendur einhvers staðar skrifað.
Það er svo með nemendur sem
aðra. Þegar unglingar koma upp
úr grunnskóla og heija nám í
framhaldsskóla gefur það auga-
leið að undirbúningur þeirra er
misjafn. Áfangakerfið tekur að
nokkru leyti tillit til þessara stað-
reynda, nokkuð sem hið bekkja-
skipta skólakerfi gerði ekki. Góð-
ir nemendur, þ.e. nemendur með
góðan undirbúning úr grunnskóla
taka grunnnámsefnið í fjölbrauta-
skóla á skemmri tíma en slakari.
Það er einkunn sem ræður hvern-
ig nemendum er raðað niður í
grunnáfanga. Tökum ímyndað
dæmi um þrjá nemendur með
ólíkar einkunnir úr samræmdum
prófum í ensku og þar af leiðandi
misjafnan undirbúning. Einn
þeirra hlaut einkunnina 8 eða B á
samræmdum prófum í ensku ,
annar hlaut 6 eða C og sá þriðji
hlaut 4 eða D. Ætli allir þessir
nemendur á stúdentsbraut, verða
þeir að taka sömu grunnenskuna
til stúdentsprófs, en enskan er 10
til 18 einingar eftir braut. En af
því undirbúningur þeirra er mis-
góður fara þeir mishratt í gegnum
enskuna. Sá sem fékk 8 fer beint
inn í ENS 103 og síðan í ENS 203
og svo áfram. Sá sem fékk 6 eða C
fer í ENS 102 síðan í ENS 202 og
svo í ENS 212 og er þá búinn með
sama námsefni í ensku og sá sem
fékk 8. Þriðji nemandinn sem
fékk D eða 4 hefur fallið á sam-
ræmdum prófum í ensku og verð-
ur því að fara í uppriijunaráfanga
í fjölbrautaskólanum og fer því í
ENS 100, sem eru 6 tímar á viku,
en gefur enga einingu. Standist
hann þær kröfur fer hann í ENS
102, síðan í ENS 202 og loks í 212
til að vera búinn að ljúka sama
námsefni og fyrrnefndu nemend-
urnir áður en hann getur farið í
ENS 302 (ef hann fær A í 100 má
hann fara í 103 og síðan í 203).
Þannig eyða þessir þrír nemendur
mismikilli vinnu í þessar sömu 6
grunneiningar í Ensku þegar upp
er staðið. B nemandinn lagði sam-
tals 12 tíma á viku í þessar eining-
ar, C nemandinn 14 og D nemand-
inn 20 tímum. Sjá nánar töflu 2.
226 FAXI