Faxi - 01.10.1986, Side 29
komst fyrst til Danmerkur?
Það er nánast undravert hve ís-
lendingar hafa verið fljótir að til-
einka sér tækniframfarir. í Kaup-
mannahöfn var þá t.d. hálf sjál-
virk símstöð. Svíþjóð og Noregur
voru komin lengra í sjálfvirkn-
inni. Þess má þó geta að sjálfvirka
stöðin í Reykjavík var opnuð
1932. Og þrátt fyrir fámenni og
dreifbýli hefur þróunin í stórum
dráttum verið sú að Akureyri
verður sjálMrk nokkru eftir stríð,
Keflavík 2. janúar 1960 og síðan
hver stöðin á fætur annarri og nú
í sumar verða síðustu dreifbýlis-
sveitabæimir teknir inn í kerfi
sjálfvirkra stöðva.
Stöndum við þá nú jafnfætis ná-
grannaþjóðum í fjarskiptamál-
um?
Já, ég get ekki betur séð en að
svo sé. Við höfum fylgt þeim í þró-
un og að fullkomnum búnaði,
endurbætt og tekið upp nýjungar
samhliða þeim. Fyrstu sjálfvirku
stöðvarnar okkar vora svokallað-
ar AGF stöðvar, síðan komu Hnit-
stöðvar, eftir það Stafrænar stöðv-
ar, fylgjum sem sagt nágrönnum
okkar, sem taldir eru fremstir í
símatækni í heiminum. Við eram
líka byrjaðir á að leggja ljósleiðara
í stað koparvíra og er það gjörbylt-
ing í flutningsgetu talaðs orðs-
skeyta og myndsendinga. Sjálf-
virki farsíminn er þó kannski
stærsta nýjungin — þ.e.a.s. sú nýj-
ung sem er beint í höndum fólks-
ins (notandans), ómetanlegt tæki
til þjónustu og öryggis, bæði á sjó
og í landi, að ógleymdu gagna-
flutningsnetinu. Þess má geta hér,
að einmitt vegna þess mikla
öryggis sem farsíminn á að geta
veitt fékk samgönguráðherra þvf
komið til leiðar að aðflutnings-
gjöld voru felld niður af þeim.
Era þetta stærstu skrefin í sögu
fjarskipta á íslandi?
Varðandi innanlandsþjónustu
L.í. tel ég það vera, en þá er
Skyggnir — jarðstöðin — ótalin, en
um hana erum við með yfir 200
sambönd til útlanda og það er
náttúrulega gífurleg fjölgun frá
því sem áður var. í póstsamgöng-
um hafa líka orðið stórstígar fr am-
farir. Póstmiðstöðin í Múla er vel
innréttuð eftir því sem best gerist
miðað við okkar aðstæður og það
litla póstmagn sem við höfum.
Það er ekki nógu mikið til að það
borgi sig að vélvæða á við fjöÞ
mennar þjóðir. Það eru ekki til
vélar sem henta okkar litla póst-
magni. Að öðra leyti er aðstaðan
góð og vel skipulögð. Við nutum
ráðgjafar frönsku póststjórnar-
innar við endurskipulagningu
póstþjónustunnar. Annars er
stöðugt leitað og unnið að endur-
bótum í meðferð og dreifingu
pósts.
Eru enn stórar nýjungar í aug-
sýn í póst- og símamálum?
Það er viðbúið að svo sé. Þegar
maður horfir til baka og sér þá
byltingu sem orðið hefur á tiltölu-
lega skömmum tíma verður mað-
ur að álykta að margt eigi eftir að
koma fram, sem ekki er nú fyrir
séð. Það kann að. vera að eitthvað
af því verði okkur erfitt í fram-
kvæmd vegna fámennis og lands-
stærðar en við höfum haldið vel í
horfinu með hliðsjón til stórþjóða.
Við eram byrjaðir á lagningu ljós-
leiðara, nú til Hvolsvallar, á næsta
ári til Sauðárkróks svo til Akur-
eyrar og síðar vonandi umhverfis
landið, ef Guð lofar. Þá er breið-
bandsnet að ryðja sér til rúms,
sem verður kannski næsti áfangi
okkar á fjarskiptabrautinni.
í hverju er það fólgið?
Það era net sem taka miklu
breiðara svið en tón- eða talsvið og
fjölgar þá nýtingarmöguleikunum
stórlega. Með stafrænum stöðv-
um og breiðbandsnetum má segja
að orðið hafi ný bylting í afkasta-
getu símþjónustunnar.
Eru þá ekki sjónvarpssímar á
næsta leyti?
Jú, þegar við eram komnir með
breiðbandskerfi þá er möguleiki á
sjónvarpssíma. Við getum fiutt
myndir eftir núverandi kerfi, en
það er hægfara og getur ekki orðið
almennt. Ljósleiðaratæknin kem-
ur til með að auðvelda og jafnvel
gera sjónvarpssímann að almenn-
ingseign. Og vafalaust kemur að
því að hægt verður að leggja
magnaralausa ljósleiðarastrengi
yfir heimshöfin.
Hver eru nú brýnustu verkefnin
framundan?
Ef ég á að taka símann fyrst er
mest aðkallandi að fjölga línum á
milli stöðva, stæklca og breyta
stöðvum með mikla afgreiðslu,
breyta þeim í stafrænar stöðvar
eins og við höfum þegar gert við
all margar stöðvar. Við höfum
plægt niður rúmlega 1000 km af
strengjum á ári að undanförnu
m.a. til að koma öllum sveitabæj-
urn í sjálfvirkt símasamband, það
hefur þýtt aukið álag á stöðvarnar
og línukerfið. Áætlað var að það
tæki 5 ár að leggja alla strengina
en við lukum því á fjóram árum
og kostnaðaráætlun stóðst svo til
nákvæmlega. Verklagni og verk-
þjálfun mannanna er unnið hafa
að þessutn verkefnum hefur verið
með ágætum og skilað þessum
góða árangri.
í póstinum er stöðugt unnið að
því að flýta póstinum og gera hann
skilvísari og öraggari. Sjálfsagt
þarf að fjölga afgreiðslustöðvum,
sem er eðlileg þróun og tekur mið
af fólksijölgun og póstmagni. Það
eru undirbúnar framfarir í póst-
þjónustunni, sem síðar koma í
ljós.
Þú ert nú búinn að vera í einu
stærsta og virðulegasta embætti
þjóðarinnar í rúm 15 ár. Þetta hef-
ur verið farsælt og hagkvæmt
tímabil í sögu Pósts og síma. Get-
ur þú ekki fallist á að svo hafi ver-
ið?
Jú, í það heila tekið finnst mér
það. Við höfum ekki orðið fyrir
stór áföllum og okkur hefur tekist
að halda gjöldum í skefjum, eins
og ríkisstjórnin hefur lagt áherslu
á. Samkvæmt athugun sem gerð
hefur verið eru t.d. símagjöld með
því lægsta sem gerist í Evrópu,
það má telja gott. Grundvöllurinn
að því liggur í ágætu samstarfi
allra í stofnuninni. Ég tel það
gæfu mína að ég hef átt ágætt
samstarf við alla starfsmenn
stofnunarinnar.
Finnst þér hafa gustað um þetta
háa embætti?
Já, það er stundum kalt á
toppnum. Það varð talsvert fjaðra-
fok um skrefamálið svokallaða en
það hefur nú sýnt sig að þar var rétt
á málum haldið. Það komst á
æskilegur jöfnuður og eðlilegt
mat á gjaldtöku fyrir símaþjón-
ustuna sem alþingismenn sættu
sig betur við en áður.
Hafa ekki allar þessar fram-
kvæmdir kostað offjár og verið
þungur baggi á ríkissjóði?
Póstur og sími er ríkisstofnun,
en þannig hefur verið á málum
haldið að í áratugi hefur hún verið
byggð upp fyrir eigið fé og m.a.s.
stundum skilað drjúgum sjóði í
ríkissjóð með innheimtum sölu-
skatti. Já, það má heita að hver
einasti íslendingur hafi lagt stofn-
uninni fé og sé því beinn eigandi
að þessu stóra fyrirtæki er tengir
okkur öll saman eins og stóra fjöl-
skyldu. Erfitt er að hugsa sér
landið án síma og annarra fjar-
skipta. An þeirra væri þjóðin ekki
í hópi menningarþjóða.
Þú átt náttúrlega margar merkar
minningar frá starfinu. Hverjar
eru þér efstar í huga að starfs-
lokum?
Hugurinn er fullur af góðum
minningum og þá vil ég sérstak-
lega geta hins góða samstarfs sem
mér er kært, bæði við starfsfólk
stofnunarinnar og einnig við full-
trúa ríkisvaldsins og ég vil gjarn-
an að fram komi þakklæti mitt og
frábært samstarf við núverandi
samgönguráðherra Matthías
Bjarnason. Það hefur líka verið
mér ánægjuefni að sjá að við höf-
um, þrátt fyrir fámenni og fátækt,
getað fylgt nágrannaþjóðum í
tækni og þjónustu við dreifða
landsmenn. Já, hugur minn er
barmafullur af góðum minning-
um sem ég tel vera heilsugjafa. Ég
hef alla tíð verið heilsugóður, það
vitnar um að mér hafi fallið vel
vistin hjá Pósti og síma og að ég
hafi átt ánægjulegt samstarf við
gott fólk.
Hér starfa um 2000 manns og
mánaðarlegar launagreiðslur eru
rúmar hundrað milljónir. Það
mundi höggva skarð í heilsufarið
ef þarna yrðu meinbaugir á.
Eg þakka Jóni samtalið og fyrir
löng og góð kynni. Hann er virtur
af öllu samstarfsfólki fyrir hóg-
værð og réttsýni. Það verða því
margir sem taka undir með mér er
ég óska Jóni heilla og hamingju á
þessum tímamótum og farsældar
á ókomnum árum, sem væntan-
lega verða mörg, því að enn er Jón
frár á fæti, sem ungur væri. J.T.
Prjónakonur
Viljum kaupa lopapeysur í eftirtöldum stærðum:
Heilar í large, mórauðar, hvítar og gráar
extra large, alla liti.
Hnepptar herra í medium, gráar
largra, alla liti
extra large, alla liti.
Hnepptar dömu large, alla liti
medium, hvítar.
Einnig sjónvarpssokka.
Móttaka verður að Iðavöllum 14b,
miðvikudaginn 10. sept. kl. 10—12.
II9 ISLENZKUR MARKADUR HF.
|1|| mí&ms
FAXI 233