Faxi - 01.10.1986, Qupperneq 33
milli þeirra, sem síðar komu og
hinna, sem fyrst námu land-
svæði. Þá er það og sérstætt með
hve skjótum hætti landið má heita
fullnumið, svo víðlent sem það er
og torsótt yfirferðar. Þetta á auð-
vitað sína höfuðorsakir í því,
hvemig stjómmálaþróunin var þá
í Noregi og öðrum Norðurlönd-
um, og á norðanverðum Bret-
landseyjum, svo og í hinu að vik-
ingaöldin var að syngja sitt síð-
asta, svo að gamlir víkingar hafa
ugglaust séð sitt óvænna og leitað
ömggs hælis hér á landi.
En þetta, hversu landið byggðist
á skömmum tíma, er síðan höfuð-
orsökin til þess, hversu fljótlega
stofnast hér íslensk þjóðarvitund,
með skipulögðu þjóðveldi og lög-
gjafarsamkundu. — Alþingi,
löngu á undan því sem annars-
staðar gerðist.
Og forfeður okkar gerðu sér það
jafnframt ljóst, að það var ekki
nóg að koma skipulagi á sam-
skipti allra landsmanna, með
sameiginlegri löggjöf, heldur var
brýn nauðsyn, að nágrannar
bindust sérstökum böndum til úr-
lausnar vandamála hvers héraðs.
Skipulag hreppa og hreppstjórn-
armála bar fljótlega af öllu, sem
17.júní 1986. Þad var óvcnjugódþátt-
taka heimamatma í hátiðarhöldun-
um, enda veður gott og margt um að
vera í Skníðgarðinum í Keflavík. Hér
hlýðir margt manna á Tómas Tómas-
son flytja hátíðarrœðuna. Mynd J.T.
Föstudaginn 18. júlí s.l. var
Hótel Kristína að Holtsgötu 49 í
Njarðvík formlega tekið í notkun.
Eigendurnir, Steindór Sigurðsson
og kona hans Kristín Stefánsdótt-
ir, buðu þá framámönnum bæjar-
ins, ferðaáhugafólki, blaðamönn-
um og byggingaiðnaðarmönnum
að skoða húsakynni, gestamót-
töku og þjónustuaðstöðu hótels-
ins og veittu gestum góðar veiting-
ar að hætti slíkra tilefna.
Steindór er Skagfirðingur að ætt
— frá Fitjum í Lýtingsstaðahreppi.
Fimmtán ára fór hann á vertíð í
Innri-Njarðvík. Þar hefur honum
litist ljúft að lifa, enda famast vel.
Heimasætan Kristín í Njarðvík
hefur verið hluthafi í farsæld
þeirra. Hann hóf bifreiðaútgerð
fyrir 16 árum og hefur nú sérleyf-
ið Grindavík, Njarðvík og Kefla-
vík. Hann annast einnig skóla- og
hópferðaakstur til lengri og styttri
ferða. Bifreiðaeign hans er nú 6
bifreiðir. Það fór ekki hjá því að
glöggur maður í þessari þjónustu-
HótelKristma
Hótel Kristina hefurgóða lóð ogstœkkunar möguleika. íhúsinu er einnigskrif-
stofa Steindórs og bifreiðaafgreiðsla hans.
grein kæmi fljótlega auga á hótel-
skort hér á Suðurnesjum. Um
árabil hefur hugur hans verið að
þróast til þeirrar framkvæmdar er
nú hefur verið tekin í notkun —
Hótel Kristína — 10 tveggjamanna
herbergi, til að byrja með en hug-
ur hans stefnir að verulegri
stækkun. Tíminn verður að leiða
í ljós hver þörfin verður — en
manni virðist að þessar tvær at-
vinnugreinar Steindórs geti átt
góða samleið, ef vel er á spilum
haldið og Steindór hefur sýnt hag-
sýni og dugnað.
Auk 10 herbergja er þarna góður
borðsalur sem rúmar um 70
manns. Þar má halda minni fundi
og samkvæmi.
Gestamóttakan er ágætlega
vinaleg og yfir afgreiðsluborðinu
trónir virðulegur tímamælir sem
upplýsir gesti um hvað klukkan
er í ýmsum stórborgum heims.
Njarðvíkingar mega vera stoltir af
framtaki Steindórs.
Steindór Sigurðsson og Kristín Stefánsdóttir hóteleigendur, Ingibjörg Salome
Danivalsdóttir, móðir Kristínar og hótelstýran IngibjörgSalome Steindórsdótt-
ir, dóttir Kristínar og Steindórs. Það er þó vœntanlega bráðabirgðastarfþví að
Ingibjörg hyggur á frekara nám.
Fjórir frammámenn á góðri vígslustund. Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra, Ellert Skúlason, verktaki, Albert K. Sanders, bœjarstjóri
og séra Þorvaldur Karl Helgason.
Myndir: J.T.
FAXI 237